Vikan


Vikan - 12.09.1985, Blaðsíða 24

Vikan - 12.09.1985, Blaðsíða 24
„Það ar nú bara einhver fáviska að halda að það sé ódýrara að filma í frysti- húsi heldur en til dœmis í tiskubúð." Hörgárdal en konan mín er akkúrat þaöan og heitir Sólveig Eggertsdóttir. Frá Möðruvöllum er stutt yfir í Þela- merkurskóla. Hvað kemur það málinu við? Nú, ég var þar barnakennari í þrjú ár. Þaö var alveg frábær tími. Skóla- stjórahjónin voru Sæmundur Bjarna- son og Guörún Jónsdóttir, snarroskiö fólk. Fyrsta veturinn vorum viö Sæmundur svolítiö upp á kant vegna þess aö hann hélt aö ég væri kommún- isti og ég hélt að hann væri íhaldsmað- ur. Mættust þið svo í Framsóknarflokkn- um? Nei, viö komumst aö þvi að þessu var þveröfugt háttaö hjá okkur og síðan höfum við verið miklir vinir. Þaö var einmitt á þessum árum sem ég fór aö velta fyrir mér aö skrifa bók sem byggöi á sögum og sögnum um Dunganon. Það varö skáldsagan Para- dísarvíti. Við skulum ræða um Dunganon i næsta skoti. Jæja, vertu þá blessaður í bili. iiiiiiiuiin 3. skot. Greifinn af St. Kildu kemur til sögunnar. Ennfremur Morgunblað á kennarastof- unni. Bríari og SS. Illlllllll III) Hver var þessi Dunganon? Hann hét réttu nafni Karl Einarsson en kallaöi sig ýmist Dunganon eða greifann af St. Kildu. Hann dvaldi mest erlendis en sögur um hann voru þekktar hér uppi á íslandi í vissum kræsum. Þekktir þú hann persónulega? Nei, ég sá hann aldrei. Hann dó um þaö leyti sem ég var aö skrifa bókina. Ég komst aö því aö hann haföi arfleitt íslenska ríkiö aö öllum eigum sínum og hringdi upp í menntamálaráðuneytiö og spurði hvort ég gæti fengið aö kíkja á draslið. Þaö var mér meinað sem ég hef aldrei skiliö vegna þess aö ég hélt aö Dunganon heföi gefiö rikinu þetta i þeim tilgangi aö fólk fengi aö skoða þetta. Veistu hvar þetta dót er núna niður- komlö? Ég hef bara ekki hugmynd um þaö, sennilega einhvers staöar í pappa- kassa. Einu sinni var þó haldin sýning á verkunum hans. Mér finnst mjög gaman aö týpum eins og Dunganon og til dæmis Sölva Helgasyni sem neita aö gútera veröldina eins og hún sýnist vera og lifa í raun og veru í allt öðrum heimi. Þú skrifaðir Paradisarvíti í Mexíkó sumariö 1974, er það ekki rétt munaö hjá mór? Jú, mikiö rétt og missti fyrir bragöiö af öllum þessum skemmtilegu hátíöa- höldum sem voru í tilefni af þjóöhátíð- inni. Næsta vetur kenndi ég líka á Laugalandi og þá varö mér litið í Morgunblaöiö í einum frímínútunum. Þar rekst ég á auglýsingu um kvik- myndaskóla í Svíþjóö sem ég sæki um í einhverju bríarii. Þaö er ekki aö orð- lengja þaö aöjiæstu þrjú árin er ég viö nám í kvikmyndagerð í Stokkhólmi. Og síöan áriö 1978 fórstu aö vinna á sjónvarpinu, ekki satt? Jú, ég fór beint þangaö sem dagskrárgerðarmaður. Þar líkaöi mér sérlega vel. Jón Þórarinsson var dagskrárstjóri og reyndist mér mjög vel. Þetta gekk ágætlega þangaö til mér var faliö aö gera ódýrustu stór- mynd sögunnar um umdeildasta per- sónuleika sem verið hefur uppi í land- inu. Þaö var merkileg lífsreynsla og fyrsta íslenska stórslysamyndin. Hvað var það sem brást í sambandi við þessa frægu mynd um Snorra Sturluson? Ég held í raun og veru aö ég hafi ekki gert nema eina grundvallarskyssu og þaö var aö samþykkja aö gera hana fyrir þaö fé sem til hennar var varið. Þaö heföi kannski átt að taka þaö fram í myndarlok aö upphæðin, sem veitt var í þetta, var eins og til aö gera meðalklámmynd. Auövitaö þróaöist þetta út í þaö aö maður fór aö hamast viö aö gera bara einhverja mynd fyrir þessa peninga. Svo voru þaö líka mistök aö myndin var fyrst sýnd úti í Danmörku og Danir skildu ekkert í þessari mynd enda hafa þeir aldrei heyrt talað um neinn Snorra Sturluson og hafa ekki áhuga á honum frekar en öörum íslendingum. Þetta fréttist heim og þótti merkilegt. <11111 Iftlllll 4. skot. Norðan átta, Þráinn byrjar nýtt lif og upp kemur spurn- ingin hvort maðurinn sé klikk- aður. Hvað tók næst við hjá þér? Eftir aö mér haföi tekist aö slátra Snorra í annaö sinn plataöi ég fólk til aö stofna hlutafélag meö mér sem ég kallaði Noröan átta. Voruð þið að taka upp i átta vindstig- um? Alveg eins. Annars vorum viö átta í hlutafélaginu og þaö vill líka svo til aö viö erum stödd norðarlega á hnettin- um. Þetta hlutafélag geröi aöeins eina mynd, það var myndin um Jón Odd og Jón Bjarna. Handritiö var samið eftir bók Guörúnar Helgadóttur. Þessi mynd fékk raunar verðlaun á frægri kvikmyndahátíö suöur á Italíu. Þá far að styttast i þaö að þú byrjir nýtt líf. Jú, mikiö rétt, ég geröi næst mynd meö þessu nafni. Sú mynd var tekin upp í Vestmannaeyjum og varö nokk- urs konar frystihúsaróman. Ég haföi unnið í frystihúsi í Vestmannaeyjum á námsárunum og þessi reynsla sat í mér. Ari Kristinsson kvikmyndatöku- maöur er gamalt frystihúsa- og tog- arabrýni og bætti inn fullt af sögum. Hann hefur meira aö segja verið næturvöröur í verbúð. Mér þykir alltaf vænt um þessa mynd, kannski vegna þess aö ég held aö það sé ekkert einasta atriöi í henni sem er tóm lygi, aðeins mismunandi mikiö satt. Hefurðu ekki heyrt aö myndirnar þín- ar, Nýtt líf og Dalalíf, sóu kallaðar ófínar? Jú, jú, og þaö þykir mér besti gæöa- stimpillinn. Því ef íslendingar hafa einhver óþolandi karaktereinkenni þá er þaö snobberíið og finheitin og þaö er ekkí vegna þeirra einkenna sem viö erum þjóð heldur þrátt fyrir þau ein- kenni. Þessar myndir eru bara um venjulegt fólk og viö reynum aö finna skoplegu hliðarnar á lífinu og vísa til þeirra hluta sem fólk þekkir úr um- hverfi sínu. Þetta hefur hitt í mark í þessi tvö skipti. Annars er snobbið afskaplega duttlungafulit. Ætli mynd- irnar mínar þyki ekki fínar bráðlega. Þú hefur ekki orðið var við að það sé snobbað fyrir þér? Nei, ég hef ekki enn þá hitt neinn sem er nógu heimskur til þess en ég lifi í voninni. Þá yröi mér dUlað. Getur maður ekki sagt í illkvittni sinni að þú sórt að gera þessar myndir vegna þess að þœr séu ódýrari en aörar mynd- ir? Þaö er nú bara einhver fáviska aö halda aö þaö sé ódýrara að filma í frystihúsi heldur en tU dæmis í tísku- búö. En þið liggið ekki eins yfir hendritinu og tíðkast heldur spilið meira af fingrum fram, erþað ekki? Nei, þaö er mikill misskilningur. En eru áhugaleikararnir ekki ódýrari en atvinnuleikararnir? ERTU KLIKKAÐUR??? Þaö eru leikarasamningar í gangi sem gUda aö sjálfsögöu fyrir aUa og þaö væri sví- virðUegt að undirbjóða gUdandi kjara- samninga. Nú er oft talað um metnaðarfullar myndir og myndirnar um Daniel og Þór mundu ekki teljast metnaðarfullar myndir. Hvað viltu segja um það? Ég hef hverfandi Utlar áhyggjur af því hvaö þetta liö segir. Á meðan koma 80 þúsund manns í bíó þá er mér bara alveg sama. iiiiinn 5. skot. Skammdegismyrkrið skellur á, ennfremur Löggulif, veð- setning á húseignum og fleira. Nú ertu nýbúinn að gera kvikmyndina Skammdegi sem gekk ekki sérlega vel. Hefurðu einhverja skýringu ó því? Myndin hefur bara ekki veriö nógu góö. En ekki að áhorfendur hafi ekki verið nógu góðir? Nei, þetta eru frábærir áhorfendur sem við höfum hérna á Islandi. 24 Vikan 37. tbl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.