Vikan


Vikan - 12.09.1985, Síða 47

Vikan - 12.09.1985, Síða 47
Þs --------- fyrir utan og vildi ekki fara inn en að lokum fór hún til feitu prjónakonunnar bak við af- greiðsluborðið. ,,Mér var sagt að þér gætuð hjálpað mér.” Konan leit strax niður á magann á Lilí. ,,Hvað ertu komin langt?” Lilí varð eldrauð og leit fast á látúnsbjölluna á afgreiðslu- borðinu. ,,Égveit það ekki. , ,Hvenær áttir þú að byrja?” ,,Fyrir um það bil þremur vikum. En ég er ekki búin að fara til læknis.” ,,Það er alveg eins gott. Sestu á stólinn og bíddu smá- stund.” Berir fæturnir stungust inn í flókaskó, hún kjagaði að símaklefanum innst í anddyrinu. Lilí heyrði ekki lágvært samtalið. Hún kom kjagandi til baka og spurði: ,,Lét hann þig hafa einhverja peninga?” ,Já!” Hún dró upp seðla- búntið og lagði það á borðið. Feitir fingurnir á konunni flettu í gegnum það og töldu. ,,Þú kemst ekki langt á þessu. Þú þarft að fá hundrað þúsund franka í viðbót, segðu honumþað.” ,,En hann lét mig ekki hafa meira. Ég get ekki fengið meira. Hann sagðist skyldu sjá til þess að borga reikninginn. ’ ’ ,,Það segja þeir allir en staðreyndin er sú að í þessum viðskiptum gildir ekkert nema fyrirframgreiðsla í beinhörðum peningum. Getur fjölskyldan ekki hjálpað þér?” Óttaslegið andlitið á Lilí varð angistar- fullt. ,Jæja, getur þú ekki fengið lánað hjá einhverri vin- konu?” Engin af skólasystrum Lilíar hafði nokkru sinni séð hundrað þúsund franka, hvað þá átt þá og lánað. Hún hristi höfuðið hægt. ,,Ég skal segja þér svolítið,” sagði húsvörðurinn hugsi. ,,Ég þekki ijósmyndara sem gæti borgað þér fyrir að sitja fyrir hjá honum. Þrjú þúsund franka á tímann, mínus þóknun til mín. Hvernig litist þér á það?” Lilí kinkaði kolli vongóð. Hún hefði fallist á hvaðeina sem var. Kerlingin kjagaði aftur að símaklefanum og þegar hún kom aftur hripaði hún niður heimilisfang á minnismiða. ,,Serge vill hitta þig strax, væna mín. Hér er heimilisfangið. Þetta er hérna neðar í götunni. Hann er uppi áháalofti.” — 32 — <p ^^erge hafði einu sinni verið frægur txskuljósmyndari en var nú orðinn feitur, leiður, latur og gamall í þessari röð. Hans blómatími hafði hinn hefðbundni heimur hátískunnar og hann skildi ekki óvenjulegan, afslappaðan (SHflMTU) HÁRLAGNINGARFROÐA MEÐ HÁRNÆRINGU __________ Fyrir venjulegt. feitt eða slitið hár, ein tegund sérstaklega fyrir karlmenn. (SHflMTU) HÁRLAKK Fyrir venjulegt. SHflMTU HÁRLAGNINGARFROÐA Venjulegt. feitt eða slitið hár. Einnig sérstaklega sterk og haldgóð. (SHflMTU) LITARSKOL (FROÐA) 14 litir. Þvæst úr eftir 3—4 þvotta. Undirstrikaðu liÍlþMIHfiWii™, glæsileika hársins með SHAMTU Loksins gefst þér (hvort sem þú ert karl- eóa kvenkyns) tækifæri á aó undirstrika glæsileik hárs þíns með hárvörunum frá SHAMTU. Undirstrikaðu með Úrvatið er glæsilegt og þú finnur örugg- lega það sem sniðið er einmitt með þitt hár í huga. SHAMTU fæst nú a//s staðar þar sem máli skiptir. (SHflMTU) Heildsala: KAUPSEL Laugavegi25 Sími: 27770 27774 37. tbl. Vikan 47

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.