Vikan - 05.02.1987, Side 11
INÆSTU VIKU
32
Sigríður Hannesdóttir er fjölhæfur
skemmtikraftur og á að baki litríkan
listamannsferil. Við sveiflumst með
henni yfir lífshlaupið.
38
Tommy Hunt er þeldökkur söngvari
sem skemmtir Reykvíkingum þessa
dagana. Hann hefur víða komið fram
og með mörgum sér þekktari.
44
Skemmtilegast er að skrifa og teikna,
segir tíu ára telpuhnokki, Lísa Anne
Libungan, í Barna-Vikunni. Hvað
finnst henni leiðinlegast?
46
Sting. Hvorter hann hugsuðureóa
flippari? Við verðum að lesa greinina
áðurenviðsvörum.
52
Tímaskekkja, spennandi sakamála-
saga eftir Peter Godfrey. Þessi er ekki
úr bankanum sem er í takt við tímann
heldur hinum.
57
Hinn fasti þáttur okkar „Líf og lyst"
er lagður undir skemmtanalífið í
Reykjavík, sem er aldeilis bara magn-
að.
ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON, löngum
kenndur við Síld og fisk, hefur lagt gjörva hönd
á margt um dagana. Hann hefur verið við versl-
unarstörf, matvælaframleiðslu og hótelrekstur,
svo dæmi séu tekin. Hann er á kafi í „svínarí-
inu" á Vatnsleysuströnd og rekur þar eitt stærsta
og fullkomnasta svínabú á landinu. Þorvaldur
verður viðmælandi okkar í næsta Vikuviðtali
Ég skal gefa þér hvolp - frásögn af hundi og
hundaeigendum sem á erindi til allra sem láta
sig dreyma um að gerast hundauppalendur og
-eigendur. Greinin á líka erindi til þeirra sem
þegar hafa ánetjast „hundalífinu".
Tappasafnari. Menn safna ýmsum skondnum
og mismerkilegum hlutum. Einn aðili hefur kom-
ist í metabók Guinness fyrir tappasafn sitt. Það
er hið merkilegasta safn. Við sjáum brot af því
í næstu Viku.
LITAGREINING. Hvaða litur passar þér best,
eftir hverju ferðu þegar þú velur þér snyrtivörur
eða fatnað? Það er ekki heiglum hent að velja
réttu litina fyrir sérhvern. Við leituðum ráða sem
geta komið fleiri að gagni.
1