Vikan - 02.07.1987, Blaðsíða 23
River Phoenix
Ungur og
eftirsóttur
Hann heitir River Phoenix
og er sextán ára. Hann hefur
þegar leikið í tveimur athyglis-
verðum kvikmyndum og er
mjög eftirsóttur þessa dagana.
Þykir hann skara fram úr öðr-
um unglingum er fást við
leiklist.
í Moskítóströndinni (The
Moskito Coast) leikur hann
son Harrisons Ford og vakti
leikur hans mikla athygli.
Frægð hans jókst svo með
hinni ágætu Stand by Me þar
sem hann er einn fjögurra pilta
sem leggja upp í leit að líki.
Hann lék foringja drengjanna
og þrátt fyrir að allir strákarnir
hafi staðið fyrir sínu þá verður
því ekki neitað að River Phoen-
ix er sá sem athyglin beinist að.
Nýlega hefur Phoenix lokið
við að leika titilhlutverkið í
Little Nikita. Þar leikur hann
rússneskan ungling sem fær
Sidney Poitier til að hjálpa sér
til að leita uppi foreldra sína
sem eru sagðir njósnarar.
Meðfram leik í kvikmyndum
stundar River Phoenix skóla-
nám og gengur bara vel, að því
er segir. Það fer ekki fram hjá
neinum að River Phoenix er
sérkennilegt nafn. Hann er ekki
sá eini í fjölskyldunni sem heit-
ir sérkennilegu nafni. Hann á
fjögur systkini, bróðurinn Leaf,
sem er tólf ára, og systurnar
Rainbow, 13 ára, Liberty, 10
ára, og Summer, 8 ára.
River Phoenix.
Myndbönd
THE BIG CHILL ★ ★ ★
Leikstjóri: Lawrence Kasdan.
Aöalleikarar: William Hurt, Tom Berenger og Glenn Close.
Sýningartími: 101 mín. - Utgefandi: Skífan hf.
The Big Chill er um nokkur skólasystkini sem höfðu náið samband á
skólaárunum. Þau hittast við jarðarför eins þeirra. Margt hefur á daga
þeirra drifíð og hefur þeim gengið misjafnlega að aðlagast samfélaginu eft-
ir að námi lauk. Þau eru læknir, lögfræðingur, skósali, blaðamaður,
sjónvarpsstjarna, dópsali og húsmóðir. Öll eru þau miður sín yfir dauða
vinar þeirra er framdi sjálfsmorð. Eru þau sammála um að hann hafi verið
fremstur þeirra að gáfum. Margt er rifjað upp eina helgi og gömul kynni
eru endurnýjuð. Þegar að er gáð sakna þau skólaáranna. The Big Chill er
virkilega góð kvikmynd sem á heilbrigðan hátt fjallar um mannleg sam-
skipti. Tónlist frá sjöunda áratugnum gerir mikið til að skapa þá góðu
stemningu er einkennir myndina. Leikur er allur mjög góður. Enginn er
þó betri en William Hurt í hlutverki hins taugaveiklaða dópsala.
BLUE CITY ★ ★
Leikstjóri: Michelle Manning.
Aðalhlutverk: Judd Nelson, Ally Sheedy og Scott Wilson.
Sýningartími: 80 mín. - Útgefandi: Háskólabíó.
Einn af betri sakamálarithöfundum Bandaríkjanna er Ross McDonald.
Hefur hann skrifað margar skáldsögur og hafa nokkrar þeirra verið kvik-
myndaðar. Blue City er ein þeirra. Fjallar hún um Billy Turner sem kemur
tii heimabæjar síns til að reyna að bæta samskiptin við föður sinn. Hann
kemst að því að faðir hans hefur verið myrtur og stjúpmóðir hans hefur
tekið saman við skúrk sem stjórnar öllu skemmtanalífi á staðnum. Að sjálf-
sögðu grunar T urner hann um morðið og ákveður að hefna sín. Það á þó
eftir að koma í Ijós að ekki er allt sem sýnist og koma sögulok örugglega
flestum áhorfendum á óvart. Þetta er ágætur söguþráður en því miður
ekki vel úr honum unnið. Helsti galli myndarinnar er samt slappur leikur
aðalleikaranna, Judd Nelson og Ally Sheedy. Vert er að geta góðrar tónlist-
ar Ry Cooder. Þrátt fyrir ýmsa galla er Blue City hin sæmilegasta afþreying.
SAVAGE HARVEST ★
Aðalleikarar: Tom Skerrit og
Michelle Phillips.
Sýningartími: 84 mín. - Útgefandi: Tefli hf.
Savage Harvest gerist á miklum þurrkatímum í Afríku. Þegar jörðin er
þurr og lítið um fæðu taka hin villtu dýr að sækja á það sem næst er og
það eru mennirnir. Myndin gerist að mestu á búgarði einum. Aðkomumað-
ur einri, sem áður fyrr var giftur húsmóðurinni á staðnum, aðvarar heimilis-
fólkið en ekki nógu fljótt því Ijón hefur þegar náð einni vinnukonunni.
Húsinu er lokað og hefst nú skelfilegur tími fyrir íbúa hússins sem er
umsetið villidýrum. Þetta getur ekki endað nema á einn veg, sérstaklega
þegar svo ber við að ljón kemur niður skorsteininn til að ná sér í æti. Því
er brugðið á það ráð að smíða vírbúr og er freistað að komast í því að
bíleinum ... Hvorki myndin í heild nésöguþráðurermerkilegur-útjask-
að efni sem margoft hefur verið kvikmyndað og örugglega oft betur en
hér. Mótsagnir eru miklar og leikur aðalleikaranna slappur.
BETTER OFF DEAD ★ better off dead
Leikstjóri: Savage Steve Holland.
Aðalleikarar: John Cusack, Diane Franklin og Kim Darby.
Sýningartími: 93 mín. Útgefandi: Steinar hf.
Það kemur fyrir að maður er alveg gáttaður á allri vitleysunni sem þeir
í Hollywood geta látið frá sér fara. Better off Dead er ein slík vitleysan.
Fjallar myndin um táninginn Myer sem er í mikilli ástarsorg. Til að vinna
kærustuna aftur verður hann að skíða niður stærðar fjall en skíðakappi
mikill og töffari hefur tekið við kærustunni. Ekki hjálpar mikið bágborið
heimilislíf þar sem móðir hans eldar lifandi kolkrabba og bróðir hans undir-
býr gerð kjarnorkusprengju. Það lifnar aðeins yfir Myer þegar franskur
skiptinemi, Monique, fer að veita honum athygli. Henni er margt til lista
lagt eins og kemur í ljós. Better off Dead er uppfull af hugmyndum sem
ábyggilega hafa verið sniðugar á pappír en mistakast algjörlega í mynd-
formi. Það þykir gott ef hægt er að brosa út í annað yfir hinum ýmsu
hugdettum.
27. TBL VIKAN 23