Vikan - 02.07.1987, Blaðsíða 27
accumulator) sem nota má til þess að hlaða líkam-
ann upp af orgoni. Þessi safnari var síðan notaður
til að stemma stigu við krabbameini og ráða bót
á margs konar sjúkdómum sem hefðbundnar
læknisaðferðir dugðu lítt til. Bandarískir lyfjafram-
leiðendur fréttu af árangri Reichs og tóku að
óttast um hag sinn. Þeir kærðu Reich fyrir brot
á skottulækningalöggjöfinni á þeirri forsendu „að
líforkulækningar geta ekki náð árangri þar sem
engin líforka er til". Wilhelm Reich var dæmdur
í tveggja ára fangelsi og öll helstu ritverk hans
brennd á báli sem augljós ógnun við velferð og
öryggi mannkynsins. Þá höfðu útgáfur stærstu
verka hans verið bannaðar í þrernur ríkjum,
Þýskalandi, Sovétrikjunum og Bandaríkjunum.
Wilhelm Reich dó árið 1957 í bandarísku alrík-
isfangelsi.
Samtímaáhrif Wilhelms Reich
Eftir dauða Reichs þróuðu nemendur hans lífs-
starf hans í ýmsar áttir. Dr. Walter Hoppe starfar
í ísrael við rannsóknir á notagildi orgon-orkunnar
og hefur náð eftirtektarverðum árangri í krabba-
meinslækningum. Dr. Alexander Lowen er
upphafsmaður lífeflislækninga og breski sállæknir-
inn David Boadella hefur skapað árangursríkar
aðferðir í einkameðferð og hópvinnu. Boadella
hefur haldið nokkur námskeið hérlendis og sýnt
á snilldarlegan hátt „hvemig líkaminn segir hug
sinn“. Charles Kelley tvinnaði saman lífeflismeð-
ferð Reichs og augnþjálfun dr. W. H. Bates og
hefur þróað leiðir til þess að ráða bót á nærsýni,
fjarsýni og sjónskekkju.
Gestalt-meðferð og fmmópslækningar Arthurs
Janov, ásamt ógrynni af öðrum sállíkamlegum
aðferðum, eru jafnframt undir miklum áhrifum
frá Reich. Olikt Reich hafa flestir þeirra unnið
með hópa og notfært sér þannig möguleika venju-
legs fólks til að hafa jákvæð áhrif hvert á annað.
Handan við þyrrking og áhugaleysi hefðbundinn-
ar sálarfræði leita þeir að leiðum til að virkja
hæfileika fólks. Lífefli er þess vegna ekki aðeins
meðferð við taugaveiklun heldur einnig heppileg
sálvaxtarleið fyrir alla sem vilja auðga líf sitt. I
formi námskeiða er unnið með ýmsar aðferðir sem
miða að því að veita bældum tilfinningum já-
kvæða útrás, auka sjálfskennd, samfara líkamlegri
velliðan. Námskeiðin gefa fólki innsýn í eigið til-
finningalíf og æfa það í að tjá sig af hreinskilni.
Margir taka reglulega þátt í slíkum námskeiðum
á meðan aðrir iðka æfmgar þeirra í heimahúsum.
Úr viðjum vöðvabrynjunnar:
nokkrar lífeflisæfingai•
Alexander Lowen M.D. þróaði út frá verkum
Reichs sérstakt æfmgakerfi sem nefnist lífeflisæfuig-
ar og hefur reynst árangursríkt við að styrkja tengsl
við eigin líkama. Regluleg ástundun lífeflisæfinga
dregur jafnframt úr vöðvaspennu, eykur orku-
streymi líkamans og stuðlar að andlegri og
líkamlegri vellíðan. Lífeflisæfmgamar em kröftug-
ar æfrngar sem fela í sér djúpöndun og sjálfsprott-
inn skjálfta alls vöðvakerfísins. Þær hafa verið
kallaðar ,jóga tuttugustu aldarinnar" og þykja
henta vel sem almenn heilsuvemd.
ÆFING 2:
Þessi æfing er af-
brígði af þeirri sem lýst
er hér á undan. Iðk-
andinn stendur með
fætuma um það bil
sextiu sentímetra i
sundur. Fætumir vísa
inn, hné eru öríítið
beygð, fingumir
mynda hnefa sem
Þessi Irfeflisæfing felst í því að halla likamanum þrýsta á mjóbakið og
aftur á stól með kodda eða upprúllað teppi undir líkaminn er spenntur
bakinu eða herðablöðunum. Mikilvægt er að hafa |fkt og bogi. Mikilvægt
munninn opinn og anda djúpt og rólega. Flestir er að anda djúpt inn í
hafa tilhneigingu til að hemja öndunina í þessari maga, til dæmis í
stöðu en ef það er gert er æfingin til litils. Með gegnum munninn.
því að slaka og gefa eftir í þessari líkamsstöðu
verður öndunin dýpri og fyllri og fíngerður titringur
getur þróast í mjöðmum og fótleggjum. Ef iðkand-
inn finnur til sársauka í mjóbakinu ber það vott um
vöövaspennu þar.
ÆFING 3:
Æfingin er eðlilegt framhald af þeim sem á
undan er lýsL Iðkandinn hallar likamanum fram
án þess þó að snerta að fullu gólfið með fingurgóm-
unum. Nokkurt bil er á milli fótleggja, fætumir visa
inn og hné eru örlrtið beygð. Allur þungi líkamans
á að hvíla á fótleggjum og iljum. Þessi líkamsstell-
ing er notuð til þess að efla tengsl einstaklingsins
við fótleggi sina og fætur. Jafnframt örvar þessi
æfing þindaröndun með því að slaka á magavöðv-
unum sem strekktir voru með æfingunni á undan.
Æfingin veldur með tímanum sjálfvirkum skjálfta í
fótleggjum og jafnvel öðrum líkamshlutum.
ÆFING 4:
Þú liggur eins og sýnt er á myndinni, beygir
hnén örlitið og þrýsir siðan hælunum upp. Þessi
Irfeflisæfing skapar fljótt sjálfvirkan skjálfta í fótleggj-
um sem nær brátt til annarra líkamshluta.
ÆFING S:
Þessi lífeflisæfing byggist á mjaðmahreyfingum
og djúpöndun. Þú andar ýmist í gegnum munninn
eða nefið en ávallt djúpt og vel. Við innöndun:
magi út, mjaðmir aftur. Við útöndun: mjaðmir fram,
magi inn. Þessi æfing losar meðal annars um
spennu i maga, þind og mjaömagrind og eykur
vellíðan í kynlrfi. í þessarí æfingu, eins og reyndar
flestum Irfeflisæfingum, er gott aö gefa frá sér þau
hljóð sem koma upp.
27. TBL VIKAN 27