Vikan


Vikan - 02.07.1987, Síða 25

Vikan - 02.07.1987, Síða 25
Texti: Guðmundur S. Jónasson vegna meðferðinni nreð því að leggja rneginá- herslu á að ýta undir endurlifun tilfmningatengdra minninga. Margir sjúklinga hans voru á hinn bóginn ófærir urn að komast í sámband við tilfinn- ingar sem þeir höfðu haldið áralangt í skeíjum. Eitthvað virtist koma í veg fyrir slíka endurlifun. Freud nefndi þessa mótstöðu sjúklingsins gegn eigin bata „viðnám" og olli það nriklum vand- kvæðum í meðhöndluninni. Wilhelm Reich var fyreti kenninraður sálgrein- ingar til að uppgötva eðli viðnámsins og finna áhrifaríka leið til að yfirvinna það. Rannsóknir hans leiddu í Ijós að vöðvakerfið er oft notað sem hemlakerfi til að stöðva framrás tilfinninga. Með því að hemja öndunina og spenna vöðva, sem hafa mest með tjáningu að gera, myndast sam- felld vöðvabrynja sem byrgir inni upplifun sem ekki má sýna. Mismunandi spennumynstur ein- staklinga endurspegla hvemig þeir bregðast við umhverfi sínu og segir til um hvemig samskiptum þeirra við foreldra og nákomna var háttað. Þann- ig má líta á vöðvabrynjuna sem ritmál bemsku- reynslunnar. Á sama hátt og öll reynsla einstakl- ingsins er skráð einhvers staðar í heilaberkinum og hægt er að framkalla hana aftur með til dæm- is vægum rafstraumi er öll bæld tilfmningareynsla geymd í vöðvunum. Þessi vöðvabrynja hefur heftandi áhrif á ein- staklinginn og veldur þvi að hann bregst við síbreytilegum aðstæðum á fyrirfram ákveðinn hátt. Hann er háður ákveðinni persónumótun og á erfitt með að breyta viðmóti sínu og viðbrögðum í samskiptum við annað fólk. Líf hans er bundið fjötmm vanans og í stað raunverulegrar lífsgleði verður vart við depurð. Persónan veit ekki hvað hún vill eða hefur ekki lengur dug til að skapa sér markmið og koma þeim í framkvæmd. Orku- leysi og óttinn við að taka áhættu og, þegar betur er að gáð, ábyrgð á eigin lífi er allsráðandi. LífeJUsmeðfevð vevðuv til I framhaldi af þessari uppgötvun tók Wilhelm Reich að þróa eigjn aðferðir til að íjúfa vöðva- brynjuna. Hann gagnrýndi hefðbundna sálgrein- ingu fyrir að leggja ofuráherslu á munnlega tjáningu og að týna sér í fræðilegri skilgreiningu á fortíðinni. Þess í stað hvatti hann skjólstæðinga sína til að beina sjónum sínum að þvi sem er að gerast hér og nú. Reich uppgötvaði að auðveldast er að veita bældum tilfinningum jákvæða útrás með því að vinna beint með strengda vöðva líkam- ans. Vöðvabrynjan er liðkuð með sérstökum hreyf- ingum, öndun, nuddi og fieiru. Yfirleitt er byijað efst með höfuð- og andlitsvöðva og unnið niður eftir líkamanum og endað á stjörfum vöðvum mjaðmagrindarinnar. Reich notaði einkameðferð i þessum tilgangi og var árangur hennar ekki aðeins víðtæk breyting á persónuleikanum heldur einnig líkamanum. Langvarandi vöðvaspennu létti, óheppileg líkamsstaða breyttist, hreyfihæfni jókst og öndunin var ekki lengur hamin. Útlistun Reichs á vöðvabrynjunni og þær leið- ir, sem hann þróaði til að losa fólk úr viðjum hennar, er af mörgum talin eitt merkasta framlag til sállækninga á þessari öld. Aðferðir hans þykja gefa skjótan og víðtækan árangur. Þrátt fyrir þetta notfæra sálfræðingar sér ekki þessa þekkingu. Flestir þeirra láta sér nægja meðferðartækni sem byggist á viðtölum og atferlismótun og lætur lík- amann að öllu leyti afskiptan. Fveud og Mavx í sálarfræði þeirra tíma skorti alla hefð fyrir nálgun Reichs og mætti hún því litlum skilningi. Áhersla hans á mikilvægi líkamlegrar munúðar og hlutverki samfélagsins í að hindra kynferðislega tjáningu fór fyrir bijóstið á mörgum broddborgur- unum. Freud var orðinn þreyttur á öllu fjaðrafok- inu í kringum Reich og ekki síst þegar starfsfélagar hans fóru að kvarta undan því að Reich „sneiti“ 27. TBL VIKAN 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.