Vikan - 02.07.1987, Blaðsíða 26
Hugur og heilsa
skjólstæðinga sína. Það þótti einnig meiri háttar
hneyksli þegar Reich hóf visindalega athúgun á
áhrifum kossa, atlota og annarrar kynörvunar á
líkamann. Ákveðnir aðilar innan Sálgreiningar-
sambandsins tóku að grafa undan Reich. Sá
orðrómur gekk fjöllunum hærra að Reich fróaði
kvensjúklingum sínum og skipulegði kynsvall á
laun.
Uppgötvanir hans á sviði kynferðismála, lík-
amstjáningu og sambandi hugar og líkama þóttu
stinga í stúf við kennisetningu Freuds. Geðlíkams-
meðferð Reichs hafði einnig sett hann út fyrir
raðir sanntrúaðra sálgreinenda. Róttækar stjóm-
málaskoðanir Reichs og óvægin gagnrýni á
nasismann olli ugg hjá Freud og fylgjsmönnum
hans. Um þetta leyti vom flestir búnir að fyrir-
gefa Freud að hafa uppgötvað kynvitund bama
og hann var óðum að öðlast almenna viðurkenn-
ingu. Reich var þvi til vandræða.
Til að vega upp á móti ítökum Hitlers meðal
ungs fólks hafði Reich skipulagt, í samvinnu við
vinstri hreyfmguna, fjöldahreyfingu um kynferðis-
legar úrbætur. Leiðtogar kommúnista reyndust
hins vegar vera jafnstífir og kynferðislega bældir
og fjöldinn sem þeir vildu frelsa. Þegar róttækni
Reichs hafði gengið fram af hugmyndafræðingum
flokksins lýstu þeir því yfir að „kynferðisleg bæl-
ing þekktist aðeins meðal borgarastéttarinnar“ og
að „starf Reichs saurgaði hinn byltingarsinnaða
anda“. Wilhelm Reich var því rekinn úr Komm-
únistaflokki Þýskalands árið 1932. Ári síðar var
hann jafnframt rekinn úr Alþjóðasambandi sál-
greinenda.
Ofsöttur hugsuður
Skömmu síðar var hann eftirlýstur af nasistum
því útlistun hans á fjöldasálfræði fasismans var
þeim ekki að skapi. Vegna ofsókna nasista
hrökklaðist Reich til Danmerkur. Þar var honum
lýst sem Júðskum klámhundi", meðal annars
vegna þess að hann var ekki meðmæltur hörðum
refsingum sem svari við sjálfsfróun bama. Hann
fór þvi til Svíþjóðar en fékk litlu betri móttökur
þar því ýmsir læknar og sálfræðingar töldu að
„heppilegra væri fyrir lögregluna að vísa þessum
öfugugga úr landi áður en hann tæki til við að
spilla sakleysi sænskrar æsku“.
Hann sá þá þann kost vænstan að flytja til
Noregs. Þar var hann látinn óáreittur þangað til
hann uppgötvaði áður óþekkta lífsorku sem hann
nefndi orgon. Norsk dagblöð níddu þessa upp-
götvun niður með flennistómm fyrirsögnum eins
og GUÐ REICH SKAPAR LÍF. Ýmiss konar
óhróður og slúður fylgdi síðan daglega í kjölfarið.
Reich svaraði þessu engu en ákvað þess í stað
að flytja til Bandarikjanna. Við komuna til New
York var hann handtekinn og ákærður fyrir að
vera nasisti en var látinn laus eftir stutt gæsluvarð-
hald.
Endalok Wilhelms Reich
I Bandaríkjunum fékk hann að staifa í friði
framan af. Hann hóf nú af miklum móði rann-
sóknir á eðli orgon-orkunnar. Fljótlega hafði hann
fundið raunvísindalegar aðferðir til að mæla lífork-
una, gera hana sýnilega og safna henni saman.
Reich hannaði sérstakan líforkusafnara (orgone
Saga visindanna kennir að þaö er fallvalt lán að vera langt á undan sinni samtið: Reich fylgt
í fangelsið af William Doherty lögreglustjóra, í mars 1957.
VÖÐVABRYNJAN
Vöðvabrynja er samfellt mynstur spenntra og
slappra vöðva sem einstaklingurinn myndar sem
vöm gegn afneituðum tilfinningum, einkum kvíða,
ýgð og kynferðislegri örvun. Vöðvabrynjan er lið-
skipt og greinist í sjö parta sem ganga þversum á
líkamann frá höfði til fóta. Með því að losa um
vöðvaspennuna og koma á eðlilegri öndun brýst
tilfinningin fram af endumýjuðum krafti.
26 VIKAN 27. TBL