Vikan - 02.07.1987, Qupperneq 31
Þær leiðir, sem leiða til frægðar, eru æði misjafnar
og misáhrifaríkar. Nick Kamen skaust ótrúlega hratt
upp á stjörnuhimininn á síðasta ári. Hann byrjaði
sem módel og er í dag poppstjarna. Þetta tókst
honum með heppni og aðstoð ýmissa góðra manna
og kvenna.
Hann vakti fyrst á sér athygli þegar hann kom fram
í sjónvarpsauglýsingu fyrir Levi's gallabuxur. Marg-
ir Islendingar kannast vafalaust við þá auglýsingu
þegar hann gengur inn í almenningsþvottahús,
klæðir sig úr, setur fötin í vélina og sest svo niður.
Á meðan horfir fólk á hann eins og hann sé ein-
hver Marsbúi. Það er allavega á hreinu að ef
Marsbúar væru til væri ekki amalegt að þeir litu út
eins og hann því hann er snoppufríður með ein-
dæmum.
Strákinn dreymdi alltaf um að verða poppstjarna
og hafði í tilraunum sínum til að láta þann draum
sinn rætast sungið inn á nokkrar prufuupptökur.
Til allrar hamingju fyrir hann heyrði Madonna þess-
ar upptökur og féll alveg kylliflöt. Hún samdi því
ásamt upptökustjóranum, Stephen Bray, lagið Each
Time You Break My Heart handa drengnum og
ákvað að poppstjarna skyldi hann verða. Honum
voru fengnir ýmsir aðstoðarmenn til að gera lagið
sem best úr garði. Útkoman rauk líka upp alla helstu
vinsældalista í heiminum. Þar skaðaði að sjálfsögðu
ekki allt umtalið um meint ástarsamband Nicks og
Madonnu en á þessum tíma leystist hjónaband
þeirra Madonnu og leikarans Sean Penn upp í frum-
eindir sínar. Það hefur aldrei komist á hreint hvort
um ástarsamband var að ræða eður ei en allavega
kom þetta honum að góðum notum á þessum tíma.
í kjölfarið á Each Time ... fylgdi lag sem kallaðist
Loving You . . . og nú er lagið Nobody Else að klífa
upp breska vinsældalistann.
Nickerfæddur í Essex á Bretlandi og systkinahóp-
urinn er stór, fjórir bræður og fjórar systur. Á tímabili
bjó hann í Bandaríkjunum og þar lærði hann að
syngja. Hann spilar einnig á bassa og gítar en að
vísu hefur hann ekki lært á þau hljóðfæri.
Eldri bróðir hans, Chester, er hljómlistarmaður og
spilaði í ýmsum hljómsveitum þegar Nick varyngri
svo að tónlistin hefur alltaf verið honum nálæg.
Chester þessi hefur undanfarið spilað með Brian
Ferry.
Nick hyggur einnig á frama í kvikmyndum en þó
ekki fyrren árið 1988.
Nick talar alltaf hlýlega um Madonnu og segirað
það hafi verið frábært að vinna með henni og seg-
ist dýrka hana en ef hann er spurður hvort um
ástarsamband hjá þeim hafi verið að ræða kemur
fólk að lokuðum dyrum. Það verður því spennandi
að vita hvort hann kemurtil með að spjara sig eftir
að Madonna sleppir af honum hendinni. Hann er
ákveðinn í því en hvernig honum tekst verðurtíminn
einn að skera úr um.
Umsjón: Helga Margrét ReykdaI
Culture Club
Innan Culture Club hefur ríkt mikill kærleikur og jafnvel
enn meira hatur vegna ástarsambands Boy George og
John Moss sem heyrir nú sögunni til. Hljómsveitin ber
þó til baka allar sögusagnir um að hljómsveitin heyri sög-
unni til eins og fyrrgreint ástarsamband, aðallega vegna
sólóferils Boy George og hljómsveitarinnar Heartbeat UK
þar sem John Moss er meðlimur. Einnig hefur heyrst að
Roy Hay hyggist gera eitthvað upp á eigin spýtur.
Vegna alls þessa hefur verið ákveðið að bíða með að
gefa út plötu í nafni Culture Club þar til í haust.
A-Ha og James Bond
Eins og mörgum er sjálfsagt kunnugt um er nýjasta James
Bond-lagið samið og flutt af norsku hljómsveitinni A-Ha.
Lagið heitir Living Daylights og bíða menn nú spenntir
eftir að vita hvort þetta verður svanasöngur þeirra félaga
eins og reyndin varð hjá kollegum þeirra í Duran Duran
með lagið A View to a Kill úr síðustu James Bond-mynd.
27. TBL VIKAN 31