Vikan - 02.07.1987, Qupperneq 39
Hljómsveitin Módel sem flutti lagið Lífið er lag í söngvakeppni sjónvarpsins. „Þaö væri synd ef
við legðum strax upp laupana," segir Friðrik. Liðsmenn hljómsveitarinnar eru Edda Ólafsdóttir,
Friðrik, Gunnlaugur Briem, Eiríkur Hauksson, Eva Albertsdóttir og Erna Þórarinsdóttir.
EITTHVAÐ með þessu? Nú, ög ekki er langt
síðan hún móðir mín hætti að spyrja hvenær
ég ætlaði að fá mér almennilega vinnu!"
- Er þessi afstaða landans önnur en sú sem
gengur og gerist erlendis?
,,Já, heldur betur. í Englandi er til dæmis
borin feikileg virðing fyrir tónlistarmönnum.
Þetta eru smáguðir; dýrkaðir af ungum sern
öldnum. Menn líta á tónlist sem arðsama iðn-
grein. Ég tók til dæmis eftir því að tónlistar-
menn fá mjög góða þjónustu í bankakerfinu.
eiga auðvelt með að fá fyrirgreiðslu. En við
verðum líka að muna að enski markaðurinn
snýst um feikilegar peningafúlgur og ef þér
tekst að slá í gegn gefur það drjúgt í aðra
hönd.“
- Hverjar eru helstu tekjulindir ykkar?
,,Nú, það er sala á plötum, tekjur af hljóm-
leikum og svo fáum við auðvitað höfundar-
laun fyrir hvert spilað lag. Erlendis eru mörg
laga okkar notuð til kynningar á ýmsum föst-
um útvarps- og sjónvarpsþáttum og hafa þær
greiðslur drýgt nokkuð tekjurnar. Annars
vorum við íslendingar til skamms tíma ekki
aðilar að alþjóðlegum samtökum um höfund-
arrétt og við töpuðum nokkurri fúlgu af þeim
sökum. Þó höfum við þurft að standa frammi
fyrir sýnu verra vandamáli: Einhvers staðar
neðarlega í Evrópu hafa plöturnar okkar ver-
ið íjölfaldaðar ólöglega og seldar fyrir slikk-
prís. Mér finnst þetta nú fremur leitt og verst
að erfitt er að ná sökudólgunum og taka fyr-
ir þennan iðnað.“
- Hefur lögum verið stolið frá ykkur?
„Nei, ekki hingað til en aftur á móti hafa
nokkrir aðilar útsett og flutt lögin okkar.
Frægasta dæmið er eflaust þegar Herb Albert
útsetti pg flutti lagið hans Eyþórs, Garden
Party. Ég varð nú fyrir hálfgerðum vonbrigð-
um með þá útsetningu, hún er allsérstök og
lagið fær alls ekki að njóta sín. Nú, svo hafa
nokkrar danshljómsveitir, svo sem eins og
hljómsveit Max Gregers, spilað lög eftir okk-
ur.“
- Nú er Mezzoforte eina íslenska hljóm-
sveitin sem nýtur nokkurrar hylli á erlendri
grund. Telur þú þessa sérstöðu ykkar hafa
einhver áhrif á þá athygli sem hljómsveitin
fær?
„Nei, það geri ég ekki. Að vísu finnst fólki
svolítið skrýtið að þessi hálfsuðræna, létta
músík sé samin á íslandi sem menn tengja
einna helst við eskimóa og snjóhús. En það
hjálpar okkur ekkert að vera eina hljómsveit-
in frá íslandi. Á þessum markaði ríkir feikileg
samkeppni og það eitt gildir að standa sig
nógu vel.“
- Standa sig nógu vel, vinna mikið, beita
sjálfan sig aga: Friðrik, hvað gerir þú til þess
að mæta þessum kröfum? Er vinnudagurinn
langur eða strangur?
„Ja, venjulegur vinnudagur er yfirleitt þó-
nokkuð langur og óreglulegur og stundum er
farið ansi seint að sofa. Ég reyni þó alltaf að
vakna fremur snemma og byrja yfirleitt á því
að fara í sund, svona til þess að ná mér í
orku, svo vinn ég þetta 6 til 7 tíma; bæði æfi
ég mig og reyni að semja. Nú, á kvöldin er
maður svo að spila á hinum ýmsu stöðum."
- Kanntu vel við þetta fyrirkomulag?
„Já, það geri ég. Ég er enginn 9 til 5 mað-
ur, orðinn vanur að ráða mínum vinnutíma
sjálfur og ætti eflaust í hinum mestu erfiðleik-
um með að aðlaga mig einhverri rútínu.“
- Klukkan er farin að ganga ellefu og Frið-
rik á að vera mættur út á völl eftir sex tíma.
Ég ákveð að sleppa honum; maðurinn verður
að fá einhvern svefn fyrir ferðina. Ég kýs að
reka endahnútinn á spjallið með einni klass-
ískri: Nokkur framtíðaráform, á að slá í gegn,
verða heimsfrægur?
„Nei% mig dreymir hvorki um frægð né
frama. Ég hef verið lánsamur, fengið að vinna
að því sem á hug minn allan og hef endanlega
ákveðið að helga líf mitt tónlistinni. Ég stefni
að því að halda áfram að vinna á svipaðan
hátt og ég hef gert fram til þessa og ég vil
reyna að vera opinn fyrir öllum nýjungum.
Tónlist er svo frjó, svo fjölbreytt og mögnuð
að það ætti að vera ógjörningur að staðna.
Og sá hæfdeiki að geta verið í stöðugri fram-
rás er mikilvægari en vinsældir eða auður.“
27 TBL VIKAN 39