Vikan - 23.07.1987, Page 8
Simon & Garfunkel héldu útitónleika í
Central Park, U2 í Red Rocks og Stuðmenn
í Austurbæjarskólaportinu. Óvenjulegt og
djarft framtak hjá þeim síðastnefndu sem
buðu íslenskum veðurguðum birginn seint í
júní og reykvískum tónlistarunnendum upp á
vandaða skemmtun fyrir hóflegt verð. Veður-
guðirnir héldu að sér höndum þetta kvöld.
Það rigndi ekki dropa á óvarinn sviðsbúnað-
inn né heldur hljómsveitarmeðlimi sem voru
þó við öllu búnir; klæddir í þjóðbúning ís-
lenska veiðinrannsins. Þrátt fyrir blíðviðrið
héldu áheyrendur líka að sér höndum. Þeir
fylltu aðeins skika af fangvíðu, malbikuðu
skólaportinu og voru í daufara lagi; annarlega
allsgáðir á þ@ssu bjarta fimmtudagskvöldi.
Hljómsveitin hóf leik sinn nálægt auglýstum
tíina 'en á efnisskránni voru lög á nýjustu
breiðskífy- hennar ásamt eldra efni. Hljóm-
' burður og fiutningur voru með ágætum, enda
Stuðmenn þekktir fyrir annað en fúsk á þeim
sviðum. Hvort sent um er að kenna áhorf-
endafæð eða þreytu hljómsveitarmeðlima eftir
stranga dagskrá víðsvegar unt land vantaði
samt. einhvern veginn tundrið í tónleikana,
sérstaklega framan af. Hvert lagið tók við af
öðru án mikilla útúrdúra eða óvenjulegra út-
setninga en það eru einmitt slík atriði sem
Texti: Jón Karl Helgason
Myndir: Einar Garibaldi
Oléttasta söngkona íslands, Ragnhildur Gísladóttir, laetur engan bllbug á sér finna.
8 VIKAN 30. TBL