Vikan - 04.05.1989, Page 7
T0NLI5T
Stebbi í Lúdó í afmœlisviðtali:
Breyttum úr Plúdó í Lúdó
eftir dóm hæstaréttar
fegar hljómsveitin Plútó sextett var
h að nálgast hátind frægðarinnar í
w kringum 1960 með Stefán Jóns-
son, Stebba í Lúdó, í fremstu víglínu
lenti hún mjög óvænt í óvenjulegum mála-
ferlum. Silfurbræðslan Plútó, fyrirtæki úti í
bæ, stefhdi þá hljómsveitinni vegna
nafhsins. Félagarnir breyttu nafhinu strax í
Plúdó. Það dugði ekki til. Málsóknin hélt
áfram og málið kom fyrir Hæstarétt íslands
sem dæmdi nafn hljómsveitarinnar Plúdó
ógilt. Þar með varð Lúdó til eða eins og
flestir þekkja hana; Lúdó og Stefán. Hún er
núna að halda upp á 30 ára afmælið með
glæsilegri spilamennsku fyrir fullu húsi í
Vetrarbrautinni í Þórskaffi um helgar þar
sem gamli ÞórskafHs fílingurinn er rifjaður
upp með hörkudansi og stuði. Hæstiréttur
tók nafnið frá þeim. En tónlistin varð ekki
stöðvuð. Hvað þá höfuðpaurinn Stefán
Jónsson, Stebbi í Lúdó.
Raulaði fyrst við
hliðina á Þórskaffi
„Ég byrjaði að raula sem unglingur í
Gagnfræðaskóla Verknáms sem einmitt var
í Brautarholtinu við hliðina á Þórskaffí.
Maður raulaði eins og allir aðrir enda rokk-
ið í algleymingi á þessum árum,“ segir Stef-
án Jónsson sem er Reykvíkingur í húð og
hár. Hann er fæddur 13. nóvember 1942 og
er því 47 ára og heldur upp á þrítugsafmæli
sitt í spilamennskunni.
„Ég kom fyrst opinberlega ffarn á árshá-
tíð skólans sem haldin var í gamla Sjálf-
stæðishúsinu við Austurvöll. Þar kom ég
fram í söngtríói sem kallaði sig SAS. Með
mér í þessu tríói voru félagar mínir Sigurð-
ur Elísson og Ásbjörn Egilsson. Hljómsveit
hússins spilaði en við sungum. Það að
syngja þarna var hrein tilviljun en það var
samt upphafið að ferlinum. Því þeir Svavar
Gests og Kristján Kristjánsson, KK sextett-
inn, voru með hæfileikakeppni nokkrum
dögum síðar sem ég var eggjaður til að taka
þátt í. Svavar, sem hafði spilað á árshátíð-
inni, spurði mig þá að því hvort við vildum
ekki allir þrír í SAS tríóinu koma fram. Það
varð úr og við sungum á hljómleikum í
Austurbæjarbíói. Úrþessu varð svo tilplata
með lögum eins og Jói Jóns og Allt í lagi.
Hún var tekin upp við ákaflega frumstæð
skilyrði á fimmtu hæðinni í gömlu útvarps-
stöðinni við Austurvöll. SAS leystist svo
UPP og þeir Sigurður og Ásbjörn hafa ekki
komið nálægt þessu síðan."
Vitnað í Lúdó í lögfræðinni
Framhaldið hjá Stefáni var einfalt. Hann
hóf að gutla með þremur öðrum í hljóm-
Stefán og Lúdó hressir í bragðl í innganginum að hinum nýju og glæsilegu salar-
kynnum Vetrarbrautarinnar þar sem þeir eru nú að rifja upp þrítugsafrnæli hljóm-
sveitarinnar. Ljósm.: Gunnlaugur Rögnvaldsson
sveit sem lifði stutt og náði aðeins að spila á spila með þeim Bertram Möller, Hans
tveimur til þremur sveitaböUum. En fyrstu Krag, Hans Janssyni, Elfari Berg og Gunnari
sporin voru stigin. Fljótlega fór hann að Kvaran. Þetta var árið 1959. Hljómsveit-
9. TBL. 1989 VIKAN 7