Vikan - 04.05.1989, Síða 14
Oddný Ragna Sigurðardóttir er tvítug,
fædd 4. febrúar 1969. Oddný er frá Fá-
skrúðsfirði, en hefur verið í námi við Iðn-
skólann Reykjavík undanfarna vetur. Hún
lærði tækniteiknun því hún hefur mjög
gaman af að teikna. Einnig saumar hún og
hannar fatnað. Oddný Ragna, sem er
ungfrú Austurland, hefur unnið með föður
sínum við að endurvinna net, eða fella net
eins og það er kallað, auk þess sem hún
vinnur í verslun á Fáskrúðsfirði. Oddný er
173 sm á hæð.
Steinunn Geirsdóttir er 18 ára, íædd 4.
mars 1971. Hún er Akureyringur og er á
náttúrufræðibraut í menntaskólanum þar.
Hún stefhir að því að læra til læknis en það
starf þekkir hún í gegnum föður sinn sem
er barnalæknir. Steinunn er ungfirú
Norðurland og hún stundar ýmsar íþróttir,
æfir t.d. handbolta. Steinunn hefur unnið á
elliheimili en í sumar ætlar hún að vinna í
apóteki. Steinunn er 177 sm á hæð.
14 VIKAN 9. TBL.1989
FEGURÐARDROTTNING
ISLANDS 1989
Theódóra Sæmundsdóttir er tvítug,
fedd 25. september 1969. Hún lærði förð-
un í Englandi og starfar við að farða leikara
Þjóðleikhússins. Hún hefur þó áhuga á
frekari námi í þessu fagi, einkum því sem
tengist kvikmyndum. Theódóra hefur
gaman af að fýlgjast með knattspyrnu, en
sjálf stundar hún líkamsrækt og sund af
kappi. Theódóra er 174 sm á hæð.
Heiðrún Perla Heiðarsdóttir er 19 ára,
fedd 14. nóvember 1970. Heiðrún er
feddur Reykvíkingur en fjölskyldan flutt-
ist til Hveragerðis fyrir tveim árum. Heið-
rún stundar nám við Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi og er hún á tungu-
málabraut, þar sem hún gæti hugsað sér að
starfa sem leiðsögumaður. Heiðrún, sem
er ungfrú Suðurland, hefur unnið á Nátt-
úrulækningahælinu á sumrin og líkað vel.
Heiðrún er 174 sm á hæð.
Elfa Hrund Guttormsdóttir er 18 ára,
fedd 2. júní 1971. Hún er Njarðvíkingur
og stundar nám við Fjölbrautarskólann í
Keflavík og er á tungumálabraut því ferða-
mál heilla hana. Elfa Hrund er ungfrú
Suðurnes. Hún stundar líkamsrækt en var
áður í handboltaliði. Hún hefur unnið við
gróðursetningu og snyrtingu fyrir Kefla-
víkurbæ og getur hugsað sér að vinna við
það í sumar. Elfa Hrund er 169 sm á hæð.