Vikan - 04.05.1989, Blaðsíða 16
Stórkostleg frammistaða
íslenskra fegurðardísa á
erlendri grund á
undanförnum árum hefur orð-
ið til þess að áhugi lands-
manna á Fegurðarsamkeppni
íslands hefur aukist verulega.
Það getum við á Vikunni
staðfest, en þau tölublöð Vik-
unnar, sem á þessu ári og því
síðasta fjölluðu um keppnis-
haldið, seldust í stórum upp-
lögum.
Og nú styttist í að Fegurðar-
drottning íslands 1989 verði
krýnd, en það gerir að sjálf-
sögðu drottningin sem krýnd
var 1988, Linda Pétursdóttir,
sem í millitíðinni hefur bætt á
sig titlinum Ungfrú Heimur.
Tíu keppendur
Tíu stúlkur keppa um titil-
inn í ár og eru þær allar kynnt-
ar í þessu tölublaði Vikunnar
sem og tveim síðustu tölu-
blöðum. Atkvæðaseðill fylgir
þessari Viku og hafa atkvæði
lesenda visst vægi þegar dóm-
Geysileg undirbúningsvinna
- og ekki minnkar álagið eftir krýningarkvöldið
Fegurðardrottning íslands 1988, Linda Pétursdóttir, verður að
sjálfsögðu heiðursgestur á krýningarkvöldinu, en þar mun
hún krýna arftaka sinn. Linda hefur verið á stöðugum ferða-
lögum um heiminn síðan hún var kjörin Ungfrú Heimur í
nóvember. Þessi mynd var tekin af henni í Japan þar sem hún
lagði sitt af mörkum til söluaukningar á íslenskum fiski
þangað.
nefndin ber saman bækur
sínar. Dómneíndin er að þessu
sinni skipuð þeim Ólafi Lauf-
dal, Erlu Haraldsdóttur, Frið-
þjófi Helgasyni, Sigtryggi Sig-
tryggssyni, Sóley Jóhannes-
dóttur, Inga Birni Albertssyni
og Önnu Margréti Jónsdóttur.
Þrír úr dómneíndinni hafa svo
átt sæti í þeim dómnefhdum,
sem setið hafa í þeim sjö for-
keppnum sem haldnar hafa
verið frá því 2. mars, er ungfrú
Norðurland var kjörin. Síðan
hafa verið valdir fulltrúar
Reykjavíkur, Suðurlands,
Suðurnesja, Vestfjarða, Vestur-
lands og Austfjarða. Um leið
hafa verið valdar ljósmynda-
fýrirsætur viðkomandi staða
og taka tvær þeirra þátt í feg-
urðarsamkeppninni, önnur ffá
Reykjavík og hin frá Suður-
nesjum.
Krýnir
Fegurðardrottningu
Rússlands
Framkvæmdastjóri keppn-
innar er Gróa Ásgeirsdóttir,
sem starfað hefur sem mót-
tökustjóri Hótel Borgar. Er
þetta annað árið sem hún stýr-
ir keppninni. Slíkt er gífurlega
mikið starf, en Gróa hefur
leyst það af hendi af aðdáunar-
verðri vandvirkni.
Auk þess að taka þátt í
undirbúningi forkeppnanna og
úrslitakvöldsins sem og undir-
búningi keppenda fýrir úrslita-
kvöldið kemur það í hlut Gróu
að undirbúa þær stúlkur sem
fara síðan sem fulltrúar íslands
til þátttöku í alþjóðlegum feg-
urðarsamkeppnum, en þær
eru sjö talsins. Enn bætist það
svo við annir Gróu þegar svo
vel tekst til, að okkar fulltrúi
kemst í fyrsta sæti eins og
Linda Pétursdóttir núna síðast.
í rauninni gæti það eitt hæg-
lega verið fullt starf Gróu ef
vel ætti að vera því Ungfrú
Heimur er á nær viðstöðulaus-
um ferðalögum út um allan
heim og slíkt krefst nákvæmrar
skipulagningar svo ekkert fari
úrskeiðis. Jafnvel hefur það
komið í hlut Gróu að ferðast
langa vegu með Lindu til að
vera henni til aðstoðar þar
sem hún hefur þurft að koma
fram.
Of langt mál yrði að rekja
hér öll þau erindi sem Linda
Pétursdóttir hefur átt til út-
landa á því hálfa ári sem hún
hefur borið titilinn Ungfrú
Heimur og þiggur fýrir að
launum hátt í þrjár milljónir
króna. Þess má þó geta að hún
kemur um hvítasunnuna til ís-
lands frá Noregi til að krýna
Fegurðarclrottningu íslands.
Héðan heldur hún svo strax að
því búnu til Rússlands til að
krýna fyrstu fegurðardrottn-
ingu þess lands, en áður hefur
verið valin Fegurðardrottning
Moskvuborgar.
Komst langt í Taipei
Um þessar mundir er Guð-
björg Gissurardóttir stödd í
Mexíkó þar sem stendur yfir
16 VIKAN 9.TBL. 1989