Vikan - 04.05.1989, Qupperneq 28
HJÓhABAIÍD
Aðeins hamingjusamlega
giflar konur koma til greina
Vikuviðtal við Maríu Björk Sverrisdóttur sem nýlega tók þótt í keppninni Mrs. World
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON O.FL.
Ungar stúlkur missa ekki
æskublómann og fegurðina þó
þær gifti sig og eignist börn. Til
að sýna þetta og sanna þykir
þeim í Ameríku ástæða til að halda árlega
heimsfegurðarsamkeppni giftra kvenna,
Mrs. World, og þrisvar hefur gift íslensk
kona farið utan til að taka þátt í keppninni.
í ár varð fyrir valinu frú María Björk Sverr-
isdóttir, sem gift er Pétri Hjaltested
hljómlistarmanni og eiga þau þriggja ára
dóttur, Söru Dís.
„Eitt af skilyrðunum sem konurnar sem
taka þátt í keppninni þurfa að uppfylla, er
að þær séu hamingjusamlega giftar,“ segir
María Björk sem er 25 ára, en þau Pétur
giftu sig í Dómkirkjunni fyrir um þremur
árum og þar sem margir vinir þeirra eru
hljómlistarmenn þá settu þeir saman heila
stórhljómsveit sem lék í kirkjunni. „Þetta
var mjög sérstakt. Þau sungu til okkar
falleg lög og þar á meðal eitt sem þau
höfðu samið sérstaklega fyrir okkur.“ Hún
og Pétur vinna mikið saman því þau eiga
upptökuver sem þau kalla Hljóðsmiðjuna
og er það staðsett í bílskúrnum við heimili
þeirra í Sörlaskjóli. Þannig að segja má að
þau séu saman öllum stundum. „Og þetta
gengur mjög vel; bæði hjónabandið og
samvinnan, þannig að það á alls ekki við
okkur að hjón geti ekki unnið saman,"
segir María Björk með sannferingu. „Ég sé
að mestu um reksturinn og ég er einnig
hugmyndabanki með honum. Hann semur
kannski eitthvert lag, ég hlusta og segi
hvað mér finnst, svo syng ég mikið fyrir
hann. Við vinnum líka töluvert af auglýs-
ingum og ég hef samið eina og eina."
Undirbúninginn þarf
að hef ja snemma
María Björk hefur unnið við fýrirsætu
störf síðan hún var 16 ára, byrjaði í auglýs-
ingum fyrir Karnabæ, en hefur unnið víða
síðan án þess þó að vera á vegum ein-
hverra ákveðinna fýrisætusamtaka. En
hvemig stóð á því að einmitt þessi ham-
ingjusamlega gifta kona tók þátt í keppn-
inni fyrir íslands hönd í ár?
„Unnur Arngrímsdóttir hafði samband
við mig, en hún sér um að tilnefna stúlkur
ffá íslandi. Hún hafði reyndar samband við
mig í nóvember í fyrra, en lengi vel var
óvíst hvar nákvæmlega keppnin feri ffam
og hvenær, þannig að erfitt var að undir-
búa sig. Ef ég væri að fara núna þá myndi
ég byrja strax á því að undribúa mig og fá
ýmsa aðila til að styrkja mig.“ En hvemig
var þá undirbúningurinn hjá Maríu Björk?
„Unnur sá um að fá 75% afslátt hjá Flug-
leiðum af fargjaldinu mínu til New York,
en um annað sá ég sjálf. Þvi hér hefur lítið
sem ekkert verið gert úr þessari keppni og
því er svo til ekkert á bakvið hana. Með
því að tilnefha stúlku veitir Unnur henni
tækiferi til að taka þátt, en um annað verð-
ur hún að sjá sjálf. Keppnin fór ffam í Las
Vegas og ég borgaði sjálf fýrir mig farið
þangað. Ég notaði minn eigin fatnað og
fékk síðan lánað. I flestum öðmm löndum
er lagt töluvert upp úr þessari keppni og
aðstöðumunurinn sást greinilega þegar ég
mætti með mínar 2 ferðatöskur en sú
bandaríska með 7. En mest varð mér þó
um — þó ég léti á engu bera þá — þegar ég
var mætt á staðinn og konan frá Lúxem-
burg kemur til mín brosandi, heilsar og
segir: ’sæl ertu ffá íslandi? Það er gaman
að hitta þig. Þeir vom svo almennilegir við
mig Flugleiðamenn í Lúx, þeir gáfu mér
farió! ’ Frh. á næstu síðu
28 VIKAN 9. TBL.1989