Vikan - 04.05.1989, Síða 31
HJONABAHD
Hér er María Björk að farða einn leikar-
ann í Litlu hryllingsbúðinni, en við
vinnu sína þar kynntíst hún eigin-
manninum.
Boðsferð til Egyptalands
og önnur gylliboð
Eins og fyrr segir þá tók María Björk
þátt í keppninni Ungfrú heimur, eða Miss
World, árið 1982. Ungu stúlkurnar fengu
þá ýmis ffeistandi gylliboð, sem erfltt gat
verið fyrir þær að neita. Eitt þeirra sem
María Björk fékk var boðsferð til Egypta-
lands. „Til mín kom maður í veislu sem var
haldin effir keppnina og sagðist vilja bjóða
mér til Egyptalands til að vera við opnun
nýs staðar í Kairó sem átti að heita Omar
Sharif. Mér fannst þetta auðvitað mjög
ffeistandi, en þegar ég sagði mömmu ffá
þessu þá leist henni nú ekki mjög vel á og
fór að tala um kvennabúr og allt það. Ég
skrifaði þeim tilbaka og sagðist ekki geta
komið ein og vildi fá að taka einhvern með
mér. Ég ætlaði þá að fá Ólaf Laufdal til að
fara með mér, eða þá einhverja aðra stelpu
sem var auðvitað alveg jafh vitlaust og
að ætla að fara ein — þeir hefðu þá bara
fengið tvær stelpur í einu höggi í staðinn.
En svo varð aldrei neitt úr þessu, kannski
sem betur fer. í keppninni Mrs. World eru
aftur á móti engir karlar á eftir konunum
með svona gylliboð, enda konurnar orðn-
ar þroskaðri og falla ekki svo auðveldlega
fyrir svona löguðu."
Fyrst og fremst skemmtun
María Björk og Pétur eru á Ieið í afmæl-
iskafifl til föður Péturs, sem á afmæli þenn-
an dag og Pétur reyndar líka. Sara Dís átti
afmæli daginn eftir þannig að litlu munaði
að þau þrjú - aflnn, pabbinn og barnið —
ættu afimæli sama dag. Við viljum því ekki
tefja þau lengur, en að lokum eru heilræði
firá Maríu Björk til næsta þátttakanda í Mrs.
World keppninni: „Það á aldrei að fara í
svona keppni með því hugarfari að vinna.
Best er að líta á þetta sem skemmtiferð, þó
ekki ffí því þetta er hörkuvinna, ævintýra-
ferð sem hægt er að njóta - að ekki sé
minnst á að þama gefist smáfrí frá heimil-
inu, karlinum og bömum.“
trurnar koma firam í sundbolum eins og ungfrúrnar. María Björk er sú fimmta í röt
*nni ffá vinstri.
Sjóskíðaíþróttín er eina „dellan“ sem
María segist vera með.
annan fatnað. En sú sem vinnur þarf síðan
að koma fram á vegum keppninnar allt
næsta ár, þannig að það getur orðið dálítið
erfitt fyrir hjónabandið og börnin ef ein-
hver em. Þegar búið var að tilkynna úrslit-
in var svo allt búið. Meira að segja var ekk-
ert gert fyrir okkur eða með okkur meir,
ekki einu sinni boðið upp á kampavín,
þannig að við þurftum að tala um það okk-
ar á milli hvað við ættum að gera.“
Fyrstu tvær vikurnar var María Björk ein
úti, en þá komu þau Pétur og Sara Dís til
hennar þannig að fjölskyldan gat sameinað
ferðina í skemmtiferð fyrir þau öll. María
Björk segist alltaf hafa verið mikið flökku-
dýr þannig að enginn af vinum hennar,
eða hennar nánustu varð hissa þegar hún
tilkynnti að hún hygðist fara til Las Vegas
til að taka þátt í fegurðarsamkeppni. „Pét-
ur er mjög opinn fyrir öllu,“ segir hún, og
hann tók þessu uppátæki konu sinnar bara
vel. Núna segist hún vera búin að gera
Söru litlu að flökkudýri líka, því þó þau
Pétur hafi eignast barn þá þótti þeim ekki
ástæða til að breyta lífsmáta sínum algjör-
Iega. Þess í stað hefur Sara tekið þátt í sem
flestu með þeim, enda mjög bráðþroska
og skýr. Ef þau hafa þurfit að ferðast þá hef-
ur hún vanalega komið með og hefur gert
allt frá því hún var þriggja mánaða. Þá var
Pétur að leika í hljómsveit sem var að fara
í hljómleikaferð um landið og María Björk
ákvað að þarna gæfist gott tækifæri til að
skoða landið - sem þau hefðu gert alltof
lítið af - þannig að hún og Sara litla ný-
fedd gerðu sér lítið fyrir og slógust í
hópinn.
Leyndur draumur
María Björk og Pétur kynntust þegar
bæði voru að vinna við Litlu hryllingsbúð-
ina, María við förðun og Pétur við hljóm-
sveitarstjórn. Eins og þeir vita sem sáu
þessa skemmtilegu sýningu byggist hún að
mestu á sungnum texta og María sá um að
andlitsgervi söngvaranna væri eins og það
átti að vera, en það sem enginn vissi þá var
að María átti sér þann draum að syngja
líka. „Þetta var leyndur draumur. Mér hef-
ur alltaf þótt mjög gaman að syngja, en ég
hef alltaf verið svo ofsalega feimin. Það var
ekki fyrr en ég kynntist Pétri að þetta fór
af mér því hann eiginlega píndi mig til að
hætta að vera hrædd við hljóðnemann.
Hann fór að láta mig syngja bakrödd á
upptökum hjá sér og lesa inn á auglýsingar.
Nú er ég að láta drauminn rætast, því ég er
að læra söng í Söngskólanum. Reyndar er
ég bara rétt að byrja þó ég hafl verið að
læra í tvö ár. Ef ég er dugleg að æfa þá seg-
ir kennarinn minn að ég sé colerado
sópran, sem er hæsta sópranröddin. En ég
er ekkert að stefina að því að verða einhver
mikil söngkona - alla vega ekki ennþá -
þetta er bara þörf hjá mér.“
Hér er sú sem hrepptí títílinn Mrs. World
1989 og er hún frá Perú.
9. TBL. 1989 VIKAN 31