Vikan - 04.05.1989, Blaðsíða 32
Vikcm í Vetrarbrautinni
Jafnt fyrir augað sem bragðlaukana
f öðrum enda setustofunnar er þessi
skemmtilegi bar og ekki síður skemmti-
legi barþjónn Páll Sigurðsson veitinga-
stjóri.
Matsalurinn minnir á borðstofu. Þetta er ►
sérstakt herbergi, fallega innréttað með
gluggum á einni hlið sem snúa fram í
setustofú.
Nú þegar hverjum veitinga-
staðnum af öðrum er iokað þá er
ánægjulegt að geta sagt frá ein-
um þar sem aðsóknin vex með
hverri vikunni sem líður. Þessi
staður er Vetrarbrautin sem er til
húsa að Brautarholti 20 á þriðju
hæð og eftir að hafa heimsótt
staðinn skiljum við vel hér á Vik-
unni hvers vegna hróður staðar-
ins eykst sífellt.
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Gunnar örn á veggjunum og
Stefán og Lúdó í salnum
Vetrarbrautin höfðar til allra sem vilja
fara út að borða í fallegu umhverfi og
leggja áherslu á fyrsta flokks mat og þjón-
ustu. Fyrirboði þess sem á eftir kemur er
aðkoman að staðnum, þar sem prúðbúinn
dyravörður tekur á móti gestum og fylgir
þeim að fallegri glerlyftu sem flytur gest-
ina upp á þriðju hæð. Þar tekur við fágað,
en jafiiframt notalegt umhverfi - næstum
heimilislegt. Staðurinn skiptist í setustofú
með bar í öðrum endanum, stóran sal þar
sem skemmtun og dans fer fram auk þess
sem hægt er að fá þar að borða. Þar er boð-
Heitt spínatsalat með reyktum silungi.
ið upp á mat af smáréttamatseðli og svo
það sem kallað er „pakkamatseðilT, en þá
er ákveðinn matur í boði það sinnið. Þessa
dagana eru það Lúdó og Stefán sem
skemmta gestum Vetrarbrautar, en á föstu-
dags- og laugardagskvöldum er dansleikur
til klukkan 3 um nóttina.
Mikill matur og nægilegt
olnbogarými
Innaf setustofúnni er borðstofan. Hún
er í sérherbergi, þannig að þar ríkir allt
annað andrúmsloft en ffammi í stóra sal
eða setustofú. Stórar myndir og litlar, aðal-
lega eftir Gunnar Örn, eru þar á .veggjun-
um, en á veggnum sem aðskilur borðstofú
frá setustofú eru stórir bogalagaðir glugg-
ar — sem eru eins konar tákn fyrir Vetrar-
brautina — þannig að skilin þarna á milli
eru ekki skörp auk þess sem hægt er að
fylgjast með því sem er að gerast á báðum
stöðum, megi maður vera að því á milli
rétta.
í borðstofúnni velja gestir sér rétti af
32 VIKAN 9. TBL. 1989
N.