Vikan - 04.05.1989, Blaðsíða 62
GÆLUDYRIM
Kisa er dýrmæt þótt
hún kosfli ekki peninga
Kisa er dýrmæt og ætli honum Klóa hér á myndinni finnist hún Katrín það ekki líka.
TEXTI: FRlÐA BJÖRNSDÓTTIR
Kettir eru áreiðanlega
algengastir allra
heimilisdýra og
Wggja til þess ýmsar
ástæður: kisur eru falleg dýr,
það kostar ekkert að fá sér
kött, það þarf ekki að greiða
neitt gjald til opinberra aðila
þótt köttur sé á heimilinu og
svo halda margir að það þurfi
lítið að hugsa um köttinn. Nóg
sé að hafa einhvers staðar
smárifú á glugga sem kisa geti
komist inn og út um, og að
öðru leyti gangi hún sjálfala,
þó gefa þurfi henni að borða
að minnsta kosti svona af og
til. En skyldi þetta nú vera gj
alveg rétt? =j
Nei, alls ekki. Það þarf að s
hugsa vel um heimilisköttinn o
ekkert síður en önnur heimil- w
isdýr. Hann á ekki að vera á □
þvælingi úti heilu sólarhring- >
ana og hann þarf að fá að
borða rétt eins og hver annar.
Og það má alls ekki bregða sér
af bæ næturlangt eða jafnvel í
sumarleyfi og hugsa sem svo
að kisa geti séð um sig sjálf,
nóg sé nú af fuglum fyrir hana
að borða eða kannski músum,
og svo geti nágranninn í næsta
húsi líka kastað í hana fiskroði
við og við.
Og enn eitt, það gildir sama
um ketti og önnur dýr, það á
ekki að fá sér kött fyrir börnin,
þótt börn hafi að sjálfsögu
ómælda ánægju af þeim, að
minnsta kosti stundum. Börn
geta ekki borið ein ábyrgð á
dýrum, en hafa auðvitað mjög
gott af að alast upp með dýr-
um og fá að finna fyrir ein-
hverri ábyrgð þeirra vegna.
Kisa kemur
á heimilið
Hafi menn ákveðið að fá sér
kött er rétt að hugleiða hvern-
ig best er að taka á móti hon-
um þegar hann fyrst kemur á
heimilið, því lengi býr að
fyrstu gerð segir máltækið og á
það eflaust ekki síður við um
dýr en menn.
Kettlingurinn hefur trúlega
verið valinn úr hópi systkina
en alls ekki má taka hann frá
móðurinni fyrr en hann er
orðinn 8 vikna gamall. Best er
að sækja ekki kisu litlu fyrr en
tryggt er að heimilisfólk hafi
tiltölulega rólegan dag fyrir
hana, og jafnvel fleiri en einn,
því viðbrigðin eru mikil að
fara frá móður og systkinum
og koma í nýtt umhverfi. Jól
og affnæli eru því ffáleitur tími
til þess að taka kött og sumar-
leyfisferðin má ekki vera
skammt undan. Nauðsynlegt
er að vera búinn að útbúa góð-
an stað fyrir kettlinginn að sofa
á. Góður pappakassi nægir
fyrstu vikurnar, og til þess að
gera kisu auðveldara að kom-
ast úr honum og í er gott að
lækka framhliðina. Kassann
verður að setja á hlýjan og ró-
legan stað og rétt er að gæta
þess að dyr og gluggar séu
vandlega lokaðir áður en þið
sleppið kisu á gólfið í fyrsta
skipti. Það þarf líka að hafa
bakka með kattasandi tilbúinn
því vonandi hefur hún verið
byrjuð að nota sér kattasand-
inn á gamla heimilinu. Nauð-
synlegt er að leggja nokkur
dagblöð í kring um kattasands-
kassann ef kisa ratar ekki alla
leið í hann til að byrja með.
Leyfið nú kettlingnum að
kanna umhverfið og komi
hann til ykkar verður að tala
rólega við hann og strjúka
honum mjúklega, og varist að
láta börn vera að veltast með
hann og leika sér að honum.
Dýr eru ekki leikföng. Vilji kisa
litla vera í friði og leiti hún
skjóls undir stól eða úti í horni
er rétt að leyfa henni það. Hún
þarf að fá að venjast heimilinu
því hún hefur ekki lengur
móður sína að hlaupa til. Sum-
ir kettir eru fljótir að sætta sig
við nýja heimilið, aðrir eru
lengur að jafha sig eftir breyt-
inguna.
Sé annað dýr á heimilinu er
rétt að halda dýrunum aðskild-
um í byrjun en eftir fáeina
daga verða dýrin áreiðanlega
farin að sætta sig við tilvist
hvors annars og eiga eftir að
hafa gaman af að leika sér
saman.
Fyrstu dagana er nauðsyn-
legt að gæta þess að mataræði
nýja heimilisdýrsins sé ekki
breytt of snögglega ffá því sem
það átti að venjast. Kynnið
ykkur því vel, hvað kisa var
vön að fá að borða og viljið
þið gera þar á einhverjar
breytingar — gerið það þá
smátt og smátt, en ekki í stór-
um stökkum. Gefið ketlingn-
um að borða reglulega og fjar-
lægið ævinlega matardiskinn
eftir hálftíma en vatn á stöðugt
að vera fyrir hendi. Matar- og
drykkjarílát mega ekki vera of
djúp og þau þurfa að standa
stöðug á gólfinu svo kisa eigi
létt með að ganga að mat
sínum.
En við ítrekum það enn á
ný, fáið ykkur hvorki kött né
annað dýr nema þið hafið gert
ykkur grein fyrir því að því
fylgir mikil ábyrgð og vinna.
Það er ekki víst að fólkið í
næstu íbúð eða næsta húsi sé
hrifið af köttum, það vill ekki
fá þá inn til sín í tíma og ótíma,
inn um opna glugga eða dyr,
og það vill ekki sjá á eftir fúgl-
unum úr trjánum upp í kisu.
Gættu hennar því eins og sjá-
aldurs auga þíns og láttu það
ekki villa um fyrir þér að þú
þurftir ekki að borga hana
dýru verði. Hún er jafn dýr-
mæt fyrir það.
60 VIKAN 9. TBL.1989