Vikan - 04.05.1989, Qupperneq 68
5TJ0RMUMERKI
Aukakílóin valda
erfiðleikum
Þar sem nautinu hættir til að
fara sér hægt og njóta þess sem
í boði er bætir það auðveld-
lega á sig aukakílóum og það
svo um munar og meira en ger-
ist um fólk í öðrum stjörnu-
merkjum. Nautið á erfitt með
að fara í megrun og þótt það
reyni kemur í ljós að ekki næg-
ir að halda í við sig með mat,
þar sem nautið er mjög sólgið
í sætindi. Enda þótt nautið fari
í megrun fellur það ofit í ffeisni
þegar það á leið fram hjá ís-
búðinni. Strax á unga aldri vill
nautið fitna og komi í ljós að
það getur ekki sjálft gætt þess
að borða ekki um of, er rétt að
það fari í megrun undir
ströngu eftirliti eða á heilsu-
hæli — og það því fremur sem
nautið verður eldra. í reynd-
inni er nautið líkamlega sterkt
og ætti að reyna að örva áhug-
SIÐARI HLUTI:
Þannig er nautið
ann á hreyfmgu, en það er ekki
svo auðvelt. Naut eru við-
kvæm og þeim hættir til að fá
kvef og hæsi.
Frá upphafi hafa naut verið
talin laglegri en fólk í öðrum
merkjum. Karlmennirnir eru
oft með undurfalleg, djúp og
hlý augu. Stúlkurnar eru ekki
síðri — bæði kynin hafa hlotið
góðar gjafir frá Venusi, gyðju
fegurðarinnar.
Nautið hefur erfitt skap og
lætur auðveldlega æsa sig upp
og það er lengi að jafha sig
aftur. Mánuðum saman getur
nautið komist hjá því að reið-
ast, en svo skellur óveðrið
fyrirvaralaust á. Nautið ætti að
reyna að læra að hafa stjórn á
sér. Oft er afbrýðisemi ástæða
reiðinnar, en hún fylgir ein-
mitt þörfmni á að eiga alla
hluti. Reiðiköstin eru neikvæð
og nautið þarf að ráða bót að
þessum vanda.
Nautið er listrænt og hefúr
gaman af öllu sem snertir iist
og það kann vel að meta tón-
list og hún hefúr sterk sálræn
áhrif á það. Nautið á gjarnan
mikið plötusafn og mörg naut
syngja mjög vel.
Nautið og ástin
Karlmaðurinn byrjar oft á
því að bjóða út stúlkunni, sem
hann hefur áhuga á, kannski á
tónleika eða til hádegisverðar,
en hann gleymir iðulega að
kanna hvort stúlkan hefúr
áhuga á því sama og hann.
Nautið er ástríðufúllt en gætið.
Það þolir höfnun verr en nokk-
uð annað og vill því vera fúll-
komlega visst í sinni sök
áður en það hefst handa.
Stúlka sem lendir í ástarævin-
týri með nauti getur verið viss
um að vel verður með hana
farið og hún mun fá það besta
af öllu. En hún verður að gera
sér ljóst að nautið vill eiga
hana með húð og hári. Eins fer
fyrir manninum sem verður
ástfanginn af stúlku í nauts-
merkinu. Naut eru betri vinir
en flestir aðrir en stundum
nokkuð þreytandi.
Nautið og
hjónabandið
Nautið byggir lífið umhverf-
is hjónabandið og þarfnast
öryggisins sem því fylgir. Eig-
inkona í nautsmerki eyðir allt
of miklu í vinnusparandi tæki
og hún verður ekki ánægð fyrr
en hún fær dýrustu þvottavél-
ina á markaðinum og heimilið
lýsir af velmegun. Nautið er
fastheldið á venjur og vill ekki
aðeins fá matinn sinn á réttum
tíma heldur líka sama matinn
dag eftir dag. Lífið verður að
fýigja föstum reglum og lífs-
förunauturinn þarf að geta set-
ið hljóður og hlustað á tónlist
eða horft á sjónvarpið. Nautið
er rólegur og hæglátur félagi —
svona alla jafnan.
Hrúturinn
21. mars - 19. apríl
Þú verður að gera þitt til
að hjálpa vini þínum í húsnæði.
Maður nokkur sem hefur lamað
starfsorku þína undanfarið er
brátt úr sögunni. Vertu ekki eig-
ingjarn og varastu afbrýðisemi.
Nautið
20. apríl - 20. mái
Þú ert á báðum áttum í
viðskiptum. Þú verður að herða
þig talsvert ef þú ætlar að ná
betri árangri. Kunningjar þínir
eru mjög ósammála og sundur-
lyndir eins og setendur
Tvíburarnir
21. maí - 21. júní
Þú verður í samkvæmi
með skemmtilegu fólki; þó veld-
ur borðfélagi þinn þér nokkrum
vandræðum. Nú er góður tími til
að gera hvers konar samninga og
taka bindandi ákvarðanir.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Þú verður var við orðróm
sem kemur þér mjög á óvart, en
þar er þú veist betur, geturðu
dregið úr honum. Þú kemst yfir
hlut er þig hefur lengi dreymt
um. Vertu ekki mikið að heiman.
Ljónið
23. júlí - 22. ágúst
Þú átt í fjárhagslegum
erfiðleikum og neyðist til að taka
kosti sem þér eru mjög á móti
skapi. Skemmtu þér í hófi. Þú
eða þínir verða mjög heppnir á
fimmtudag.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Þú nærð góðum árangri
við verk sem þú hefur litla reynslu
við. Þér hættir til að hafa heldur
hátt, en það er óheppilegt eins
og stendur. Þú skemmtir þér
með gömlum félögum.
Vogin
23. sept. - 23. okt.
Þú ert mjög ánægður
með sjálfan þig og sérstaklega
ákveðnar gerðir þínar. Þú ert í
góðu jafnvægi. Þú leggur of mik-
ið upp úr persónulegum vanda-
málum. Vertu vandlátur f vina-
vali.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Félagar þínir eru mjög
hugulsamir. Líkur eru á að þú
farir í nokkuð langt ferðalag. Þú
kemst að ótgryggð ákveðinnar
persónu. Næstu dagar verða á
margan hátt minnisstæðir.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Þú verður að nota alla
þína umgengnishæfileika út í
æsar, ef þú átt að komast klak-
klaust af vikuna út. Ýmis óþægi-
leg atvik og tilsvör steðja að þér.
Áformum þínum seinkar
nokkuð.
Steingeitin
22. des. - 19. janúar
Þú verður að sætta þig
við það næstbesta vegna þess
hve nauman tíma þú hefur. Ef þú
hefur góðan vilja geturðu gert
aðstöðu þína mjög sterka. Þér
berst góður hlutur til eignar.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Visst atvik verður nokkuð
til að draga úr þér kjarkinn. Þú
lendir í óvenjulegri aðstöðu og
finnur glöggt til vanmáttar þíns.
Þér verður kleift að eignast lang-
þráðan hlut innan skamms.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars
Það verður mjög líflegt í
kringum þig, sérstaklega á vinnu-
stað. Innan tíðar verðurðu að
einbeita þér að umfangsmiklu
verkefni. Þú lest áhrifamikla bók.
66 VIKAN 9.TBL.1989
5TJORMU5PA