Vikan - 28.12.1989, Síða 9
VOIA/AM
Einn möguleiki er að við nýt-
um gjafir Ægis illa vegna verk-
falla og víst er að útkoman
verður ekki í samræmi við það
sem í sjónum er.
Allur málskostnaður
falli niður
Verðbólgan er geysilega mikil
og heldur áffam að vera það
og auðvitað kemur það illa við
alla launþega. Það minnkar
frekar í pyngjum fólks en
hækkar. Völvan sér ekki að
stjórninni takist að vinna úr
fjármálunum fyrr en með vor-
inu þegar mannabreytingar
verða.
Náttlaus voraldar veröld
Kreppan er ekki afstaðin en
við eigum samt eftir að sjá
miklu bjartari ffamtíð, það hef
ég vitað lengi. Ég sé mikla stór-
iðju og miklar ffamkvæmdir
munu eiga sér stað fljótiega.
Ég sé að minnsta kosti þrjú
stóriðjuver og finnst eins og
Vogarnir eigi eftir að verða
uppgangsstaður og að þar
komi stóriðja. Mér finnst líka
að betur og fastar verði hafdið
um þau mál en gert var við
álið á sínum tíma.
Með sand af gæðum
Eins finnst mér að mikil sala
verði í eldislaxi og hann eigi
víða eff ir að gefa vel af sér og
rífa upp viðkomandi fyrirtæki.
Svo er ég löngu búin að sjá að
við hættum að hafa öll ffysti-
hús í smáeiningum heldur
sameinast til dæmis nokkur
byggðarlög, sem liggja saman,
um eitt frystihús. í Helguvík á
eftir að byggjast meira þó
þetta gerist ekki allt á næsta
ári.
2001?
Um áratuginn sem fer í hönd
segir hún að mjög bjart sé yfir
framtíð okkar íslendinga. Það
eru ekki mörg ár í að þjóðmál-
in breytist til hins betra aftur;
betri menn komi til valda og
þeir fái meira aðhald.
Hún sér fyrir veðurfars-
breytingar, að loffslag fari
hlýnandi hér. Meira jafnvægi
verði á kaupi og kjörum lands-
manna því við erum að ná
enda eymdarinnar.
Hún párar með ofsahraða á
blað meðan við leggjum fyrir
hana spurningar: Þetta kemur
svo hratt inn til mín, ég verð
að reyna að festa það einhvern
veginn, segir hún.
Þriðja íslenska stúlkan verð-
ur kjörin alheimsfegurðar-
drottning á áratugnum, líkiega
eftir fjögur tii fimm ár. Hún sér
ekki kvenforseta á eftir Vigdísi
Finnbogadóttur og telur langt
í að kona verði kosin forseti
hér aftur.
Og mennirnir verða
viðmótsþýðir
Hún sér breyttan hugsana-
gang, meiri áhersla verður
lögð á að hlúa að einstaklingn-
um. Henni finnst þó koma eitt-
hvert bakslag 1994—95 en
heildarmyndin er sú að við
erum á uppleið og ekki bara ís-
lendingar heldur heimurinn
almennt. Meiri samvinna verð-
ur manna og þjóða á milli og
mörg kerfi endurskoðuð á
þessum árum.
Allt fram streymir
Ég sé breytingu á ríkisstjórn.
Það kemur varla til að þeir
haldi þetta út, svo mikið er
öngþveitið orðið. Fólk getur
ekki unað við ástandið eins og
það er núna, hvað þá ef fleiri
hneykslismál koma upp hjá
stjórnarliðum, sem mér sýnist
að verði. Það kemur enn meiri
sori upp á yfirborðið í kring-
um einstöku menn og það
verður litið enn aivarlegri aug-
um en áfengis- og kjólakaupa-
málin. Þetta verður líklega í
febrúar eða mars. Það eru
skuggar yfir leiðtogunum þá
og fleiri verða uppvísir að mis-
notkun á aðstöðu. Það eru ekki
öll kurl komin til grafar og ég
tel að miklu meira eigi eftir að
koma ffarn en verið hefur og
verði til að kollvarpa stjórn-
inni endanlega.
Spáði hruni vissra
þjóða og landa
í sambandi við þetta hneyksli
sé ég eins manns dauða og
gæti mál hans farið fyrir dóm
og almenningur mun einfald-
lega segja: Hingað og ekki
lengra!
Þótt einn og einn maður
standi upp úr er meirihluti
fólks búinn að fá andstyggð á
ríkisstjórninni. Mér finnst að
með vorinu verði sett lög sem
gera það að verkum að þjóðin
fær aldrei framar aðra eins
slagsíðu á báknið.
Þjóðstjórnin okkar
tapar sínu stríði
Mér finnst eins og að með vor-
inu verði skrúfað fyrir ofnotk-
un á risnufé og viðlíka og það á
fleiri en einn hátt. Mér sýnist
að ráðamenn setji sjálfir
strangar reglur þar að lútandi
og önnur eins misnotkun og
átt hefúr sér stað verður
óframkvæmanleg. Þarna sé ég
algera bremsu setta á mörg
stór vafaatriði.
Annarlegt skrumbákn
Mér finnst mjög trúlegt að
skipti verði á Prúðu leikurun-
um á Austurvelli og að skiptin
verði tif þess að hægt sé að rífa
fjárhag fandsmanna upp að
einhverju leyti.
Hækkið þið seglin
Um stærstu málin á dagskrá Al-
þingis sýnist henni að hver og
einn reyni að ota sínum tota
en minni gaumur verði gefinn
að sameiningarmálunum.
Ég hugsa að allir reikni með
því að Sjálfstæðisflokkurinn
verði sterkasti flokkurinn og
hann og Framsóknarflokkur
munu fara saman þegar fer að
vora.
Dóttir guðs hin fríða
Ég sé íslenska listakonu láta
ljós sitt skína og ekki bara hér
á kiakaspöng heldur utan land-
helgi líka. Þetta er kona sem
við þekkjum ekki mikið til
núna en á eftir að slá í gegn.
1994—95 er eins og aftur komi
skriða af íslenskum listamönn-
um sem láta til sín taka heima
og heiman.
Hugarleiftur kvik
Hún segir gefið mál að Davíð
vinni kosningarnar í vor en
verði ekki lengi í sínu embætti
og fari miklu iengra síðar.
Hann fer í annað embætti og
það jafnvel innan tveggja ára.
Ég tel aiveg víst að hann verði
forsætisráðherra.
Sic transrt gloria mundi
Á landsbyggðinni sér hún töiu-
vert áberandi breytingu í einu
byggðarlagi firá þeirri stjórn-
málastefhu sem ríkt hefur þar
um áratugi. Þessi óvæntu úrslit
eru líkiega á Austfjörðum og
munu koma fram í sveitar-
stjórnarkosningunum í vor.
„Rauða bylgjan" frá síðustu
kosningum mun ekki endur-
taka sig.
Þó þú langförull legðir
Meðan enn er allt í óvissu hér
norður í Dumbshafi segir hún
unga fólkið sækja í að flytja til
útlanda og finnst í raun að
landflóttinn eigi eftir að aukast
mikið en að margt af þessu
fólki komi líka heim aftur
seinna.
26. TBL 1989 VIKAN 9