Vikan - 28.12.1989, Qupperneq 18
5TJ0RNUMERKIM
■ Breyting er lykill að
betra lífi vatnsberans,
segja stjörnurnar.
■ Hrúturinn kemur
með krafti inn í árið
1990 - og hamingjan
verður hans megin í
sumar.
■ Skapið verður
nokkuð sveiflukennt
hjá krabbanum fyrstu
mánuði ársins.
■ Seint í vor hefur
Ijónið komið sér í þá
aðstöðu að það verður
að byrja á byrjuninni.
■ Finnur meyjan sér
nýjan maka?
■ Vogin leggur sig
fram um að leita að
einhverju nýju í lífi
sínu.
■ Sporðdrekinn mun
taka að sér forystuhlut-
verk í hóp, sem vinnur
að uppbyggingu í vor.
■ Bogmaðurinn upp-
lifir í sumar breytingar
sem hann hafði alls
ekki óskað eftir.
■ Steingeitin verður
fyrir mótbyr á fyrstu
mánuðum ársins hvað
varðar ástarmálin.
Vatnsberinn
20.1. - 18.2.
Ástúð og hlýja mun umlykja
þig í ársbyrjun — og einnig tals-
verð ástríða en þessum mjúka
árstíma fylgir einnig mótbyr.
Einhver sem þú umgengst
reglulega mun valda þér von-
brigðum og það eru líkur á að
vinartengslin slitni milli þín og
góðs vinar. Eftir það kemur
góður tími til að rækta sam-
bandið við ættingja og vini,
auk starfssystkina á vinnustað.
Munir þú svona inn á milli eft-
ir að eiga einhvern tíma fyrir
þig - til að hugsa um það sem
er að gerast í lífi þínu — þá stíg-
urðu stórt skref fram á við
varðandi samskipti þín við
aðra. Ef þú fterð ekki líka tíma
til að gera það sem þig langar
þá visnar þú og það væri synd
og skömm. Þú ert í eðli þínu
forvitin(n) og hugsar rökrétt
þannig að þú ert í stakk
búin(n) til að framkvæma
eitthvað stórt. Breyting er lyk-
illinn að betra lífi því ráðandi
pláneta fyrir þig er Úranus og
hún stendur fyrir breytingar,
sjálfstæði og uppreisn. Höfuð-
skepna vatnsberans er loft.
Besti tíminn fyrir þig á árinu-.
Seinni hluti janúarmánaðar og
allur febrúar, einnig júní og
október.
Fiskarnir
19.2. - 203-
Þér finnst að þú komir sem
sigurvegari inn í árið 1990 en
fljótt munu eiga sér stað um-
skipti í lífi þínu. Þér mun um
tíma finnast að þú sért fangi í
óákveðnu lífsmunstri og þér
mun jafhvel finnast að maður á
vinnustað þínum fari á bak við
þig og taki ákvarðanir, sem
varða þig, án þíns samþykkis.
Það er þó alltaf eitthvað ákveð-
ið yfirskilvitlegt sem fylgir þér
og þú hefur undraverða and-
lega og listræna hæfileika. Þú
tekur tillit til annarra, ert til-
finninganæm(ur) og tekur
ffumkvæði sem gerir það að
verkum að þú átt gott með að
hlusta á vandamál annarra,
þannig að ef þú gerir þitt besta
til að berjast á móti óumflýjan-
legum biturleika vegna þess
sem þér finnst á móti þér gert
muntu — líklega í sumarbyrjun
— uppgötva nýja leið sem þú
getur farið, jafnt í vinnunni
sem í einkalífinu. Þessi Ieið
mun ekki síst vera til þess góð
að færa þér ástina sem mið-
punkt í lífinu. Ráðandi pláneta
er Neptúnus, höfuðskepnan er
vatn. Besti tíminn Jýrir þig á
árinu-. Janúar, júlí, september
og byrjun október.
Hrúfurinn
21.3. - 19.4.
Mars er ráðandi pláneta fyrir
þig, eldurinn höfuðskepnan og
allt bendir til að þú komir með
krafti inn í árið 1990 og að þú
munir nota þennan styrk
þannig að hann gagnist bæði
þér, þínum nánustu og öllum
öðrum sem þurfa á hjálp þinni
að halda. Hamingjan — og hér
er einkum átt við ástina —
verður einnig þín megin,
nema í sumar ef þú lætur sem
vind um eyrun þjóta einlæga
ósk einhvers þér viðkomandi
um hjálp eða ef þú lætur tæki-
feri, sem býðst til að nýta hæfi-
leika þína, framhjá þér fara.
Gerist eitthvað þessu líkt á þér
eftir að finnast að þú hafir tap-
að miklu en í rauninni muntu
samt fljótt geta bætt þann
skaða sem orðið hefur. Þú
þrífst þó best þegar þú ert að
skipuleggja og setja í gang nýj-
ar ffamkvæmdir en vegna
óþolinmæði þinnar hefurðu
tilhneigingu til að fara úr einu
verkefni yfir í annað. Þú vildir
í raun miklu frekar fara í leit að
nýjum ævintýrum, vinum og
nýrri ást heldur en sinna
hversdagslegum störfum. Besti
tími þinn á árinu-. Janúar, fe-
brúar, seinni hluti maí og júní.
Frh. á næstu opnu
18 VIKAN 26. TBL.1989