Vikan - 28.12.1989, Side 22
STJORHUMERKin
Nautið
20.4. - 20.5.
Þú ert jarðbundin(n),
róleg(ur), staðfastur(föst) og
praktísk(ur) en um leið ertu
mjög upptekin(n) af pening-
um og veraldlegum hlutum.
Að sjálfsögðu hefurðu skap en
það þarf mikið til að þú æsir
þig. Aðallega ert þú þannig að
þú vinnur rólega og hljóðlega
að því sem þú ert að gera,
truflanir gera það aðeins að
verkum að þú vinnur bara af
meira kappi. Þá peninga sem
þú aflar notar þú einna helst til
að dekra við sjálfa(n) þig og
þína nánustu því innst inni
ertu mikil lífsnautnamanneskja
en um leið rómantísk. Stjörn-
urnar segja að þér muni ganga
vel í ársbyrjun en í vor og
sumar er hætta á að þú fyllist
ofmetnaði vegna þess að þú
telur þig alltaf hafa á réttu að
standa. Það er ekki nema þú
takir þér tak þegar þú ert að
hegða þér eins og ofdekrað
barn að þú getur komið í veg
fyrir að missa vini — jafhvel ást-
vinur þinn gæti flúið. Þegar
líður á haustið ferðu að líta
raunsætt á málin og sjálfa(n)
þig og þá er von til að þú finnir
nýja ást eða getir aukið þá sem
fyrir er, áður en árið er úti.
Ráðandi pláneta er Venus og
höfúðskepnan fýrir nautið er
jörðin. Besti tímiþinn á árinu-.
Janúar, mars, september og
byrjun október.
Tvíburarnir
21.5. - 21.6.
k fyrstu mánuðum ársins
getur tilhneiging þín til svart-
sýni orðið til þess að draga úr
þér allan mátt. Þegar vorið
nálgast mun hver dagur verða
þér innblástur og þú munt sjá
tækifæri alls staðar, sérstaklega
tækifæri til hamingju. Þú hefúr
til að bera gáfur sem gera það
að verkum að þú átt gott með
að koma skoðunum þínum og
hugmyndum á framfæri, jafiit í
töluðu sem rituðu máli. Vegna
þess að þú vilt fá svarið við
sem flestu áttu þér mörg
áhugamál. I sumar muntu hafa
mikið að gera og stjörnurnar
segja að það verði ekki fýrr en
líður á haustið að þú getur
vænst þess að eiga rólega tíð.
Eigir þú maka má segja með
næstum fullri vissu að á árinu
muni henni/honum finnast
hann/hún verða útundan
vegna þess að öll þessi vinna
þín hlýtur að ræna þig einkalíf-
inu. Ráðandi pláneta fyrir þig
er Merkúr og höfuðskepnan er
loft. Besti tími þinn á árinu-.
Apríl, ágúst og nóvember.
Krabbinn
22.6. -22.7.
Skap þitt verður nokkuð
sveiflukennt á fyrstu mánuð-
um ársins; fara ffá hlátri yfir í
grát - og án nokkurrar sér-
stakrar ástæðu, að því er virðist
— og þó ... tilfinningar þínar
stjórnast af ríkjandi plánetu
sem er tunglið. Gerðu þitt
besta til að koma í veg fyrir að
þetta bitni á þínum nánustu og
í sumar mun komast á jafn-
vægi. Þrátt fyrir þetta ertu
þannig gerð(ur) að þú finnur
vel hvað öðrum líður og fólki
finnst gott að trúa þér fyrir
áhyggjum sínum enda áttu
gott með að hjálpa öðrum að
sjá leið úr vanda. Heimilið og
fjölskyldan skipta þig mestu og
þér finnst gott að fá vini þína í
heimsókn. Stjörnurnar segja
að þú munir fara í ffí sem á
einhvern hátt tengist gömlum
félögum eða einhverju af
áhugamálum þínum. Auk þess
að vera mjög uppbyggjandi
fyrir þig mun slíkt ffí hafa góð
áhrif á ástamálin. Þú munt hafa
mikið að starfa köldustu mán-
uði ársins en einnig hafa það
mjög notalegt. Höfuðskepnan
fyrir krabbann er vatn. Besti
tími ársins: Apríl, september,
fyrri hluti október og des-
ember.
Ljónið
23-7. -22.8.
Hvort sem þú ert ljónið sem
öskrar svo að allt nötrar í
ffumskóginum eða þú tilheyrir
rólegri og yfirvegaðri hópnum
ertu alltaf dramatísk(ur),
stolt(ur) og virðuleg(ur). Það
ert þú sem stjórnar kóngsrík-
inu og þér gengur nokkuð vel
svo lengi sem þér finnst þú fá
verðskuldaða athygli og að
þegnarnir dekri við þig. Allt
bendir til að árið muni byrja
mjög vel fýrir þig, bæði hvað
varðar ástamálin og starfið. En
seint í vor hefurðu komið þér í
þannig aðstöðu að þú verður
að byrja aftur alveg ffá byrjun
til að þú náir að tileinka þér
eitthvað ákveðið sem þú hélst
að þú hefðir náð föstum tök-
um á. Takist þér að tileinka
þér þá auðmýkt sem þarf er
góð von til að þú náir aftur á
toppinn. Sért þú í hamingju-
sömu sambandi — sem þú vilt
að haldist — mundu þá eftir að
deila tilfinningum þínum með
maka þínum, líka þegar á móti
blæs. Ríkjandi pláneta er sólin
og höfúðskepnan er eldurinn.
Besti tímiþinn á árinu: Febrú-
ar, mars, ágúst og stærstur
hluti september.
Meyjan
23-8. - 23-9.
Þú kemst varla hjá því að
vorið valdi þér vonbrigðum —
sérstaklega hvað varðar ásta-
málin — og vegna þessa finnst
þér þú lokast inni í blindgötu.
En ekki er allt vont því stjörn-
urnar benda til að þú verðir
ástfangin(n) upp fyrir haus — á
ekta gamaldags máta. Þú
stendur með báða fæturna á
jörðinni og ert ekkert að troð-
ast ffam í sviðsljósið og stjórna
öllu. Þú vilt heldur vinna á bak
við tjöldin þar sem þú hefur
töglin og hagldirnar og getur
gagnrýnt og séð um að hlutirn-
ir séu rétt unnir. Þú ert í raun
óskadraumur hvers atvinnu-
rekanda því þú vinnur og vinn-
ur þangað til fúllkomnun er
náð. Einnig ertu mjög um-
hyggjusöm(samur), hugsar
rökrétt og á praktísku nótun-
um og ert þess vegna góð(ur)
til að hjálpa öðrum með
vandamál. Þú ert lítið fyrir að
þurfa að vera upp á aðra
komin(n) og virkar því oft dá-
lítið innhverf(ur) og
hlédræg(ur). Ekki er ólíklegt
að tilfinningar milli þín og
maka þíns blómstri á ný en
það gæti líka verið að þú fynd-
ir þér nýjan maka. Ríkjandi
pláneta er Merkúr og höfúð-
skepnan er jörðin. Besti tírni
þinn á árinu: Maí, byrjun júní,
ágúst og september.
Vogin
24.9. -23.10.
Bros er bros, burtséð ffá því
hvort það kemur frá þér. Þegar
það gerir það er það bros sem
lýsir upp umhverfið eins og
jólatré, þar sem hlýleikinn
geislar í allar áttir. Það er ör-
20 VIKAN 26. TBL1989