Vikan


Vikan - 28.12.1989, Síða 22

Vikan - 28.12.1989, Síða 22
STJORHUMERKin Nautið 20.4. - 20.5. Þú ert jarðbundin(n), róleg(ur), staðfastur(föst) og praktísk(ur) en um leið ertu mjög upptekin(n) af pening- um og veraldlegum hlutum. Að sjálfsögðu hefurðu skap en það þarf mikið til að þú æsir þig. Aðallega ert þú þannig að þú vinnur rólega og hljóðlega að því sem þú ert að gera, truflanir gera það aðeins að verkum að þú vinnur bara af meira kappi. Þá peninga sem þú aflar notar þú einna helst til að dekra við sjálfa(n) þig og þína nánustu því innst inni ertu mikil lífsnautnamanneskja en um leið rómantísk. Stjörn- urnar segja að þér muni ganga vel í ársbyrjun en í vor og sumar er hætta á að þú fyllist ofmetnaði vegna þess að þú telur þig alltaf hafa á réttu að standa. Það er ekki nema þú takir þér tak þegar þú ert að hegða þér eins og ofdekrað barn að þú getur komið í veg fyrir að missa vini — jafhvel ást- vinur þinn gæti flúið. Þegar líður á haustið ferðu að líta raunsætt á málin og sjálfa(n) þig og þá er von til að þú finnir nýja ást eða getir aukið þá sem fyrir er, áður en árið er úti. Ráðandi pláneta er Venus og höfúðskepnan fýrir nautið er jörðin. Besti tímiþinn á árinu-. Janúar, mars, september og byrjun október. Tvíburarnir 21.5. - 21.6. k fyrstu mánuðum ársins getur tilhneiging þín til svart- sýni orðið til þess að draga úr þér allan mátt. Þegar vorið nálgast mun hver dagur verða þér innblástur og þú munt sjá tækifæri alls staðar, sérstaklega tækifæri til hamingju. Þú hefúr til að bera gáfur sem gera það að verkum að þú átt gott með að koma skoðunum þínum og hugmyndum á framfæri, jafiit í töluðu sem rituðu máli. Vegna þess að þú vilt fá svarið við sem flestu áttu þér mörg áhugamál. I sumar muntu hafa mikið að gera og stjörnurnar segja að það verði ekki fýrr en líður á haustið að þú getur vænst þess að eiga rólega tíð. Eigir þú maka má segja með næstum fullri vissu að á árinu muni henni/honum finnast hann/hún verða útundan vegna þess að öll þessi vinna þín hlýtur að ræna þig einkalíf- inu. Ráðandi pláneta fyrir þig er Merkúr og höfuðskepnan er loft. Besti tími þinn á árinu-. Apríl, ágúst og nóvember. Krabbinn 22.6. -22.7. Skap þitt verður nokkuð sveiflukennt á fyrstu mánuð- um ársins; fara ffá hlátri yfir í grát - og án nokkurrar sér- stakrar ástæðu, að því er virðist — og þó ... tilfinningar þínar stjórnast af ríkjandi plánetu sem er tunglið. Gerðu þitt besta til að koma í veg fyrir að þetta bitni á þínum nánustu og í sumar mun komast á jafn- vægi. Þrátt fyrir þetta ertu þannig gerð(ur) að þú finnur vel hvað öðrum líður og fólki finnst gott að trúa þér fyrir áhyggjum sínum enda áttu gott með að hjálpa öðrum að sjá leið úr vanda. Heimilið og fjölskyldan skipta þig mestu og þér finnst gott að fá vini þína í heimsókn. Stjörnurnar segja að þú munir fara í ffí sem á einhvern hátt tengist gömlum félögum eða einhverju af áhugamálum þínum. Auk þess að vera mjög uppbyggjandi fyrir þig mun slíkt ffí hafa góð áhrif á ástamálin. Þú munt hafa mikið að starfa köldustu mán- uði ársins en einnig hafa það mjög notalegt. Höfuðskepnan fyrir krabbann er vatn. Besti tími ársins: Apríl, september, fyrri hluti október og des- ember. Ljónið 23-7. -22.8. Hvort sem þú ert ljónið sem öskrar svo að allt nötrar í ffumskóginum eða þú tilheyrir rólegri og yfirvegaðri hópnum ertu alltaf dramatísk(ur), stolt(ur) og virðuleg(ur). Það ert þú sem stjórnar kóngsrík- inu og þér gengur nokkuð vel svo lengi sem þér finnst þú fá verðskuldaða athygli og að þegnarnir dekri við þig. Allt bendir til að árið muni byrja mjög vel fýrir þig, bæði hvað varðar ástamálin og starfið. En seint í vor hefurðu komið þér í þannig aðstöðu að þú verður að byrja aftur alveg ffá byrjun til að þú náir að tileinka þér eitthvað ákveðið sem þú hélst að þú hefðir náð föstum tök- um á. Takist þér að tileinka þér þá auðmýkt sem þarf er góð von til að þú náir aftur á toppinn. Sért þú í hamingju- sömu sambandi — sem þú vilt að haldist — mundu þá eftir að deila tilfinningum þínum með maka þínum, líka þegar á móti blæs. Ríkjandi pláneta er sólin og höfúðskepnan er eldurinn. Besti tímiþinn á árinu: Febrú- ar, mars, ágúst og stærstur hluti september. Meyjan 23-8. - 23-9. Þú kemst varla hjá því að vorið valdi þér vonbrigðum — sérstaklega hvað varðar ásta- málin — og vegna þessa finnst þér þú lokast inni í blindgötu. En ekki er allt vont því stjörn- urnar benda til að þú verðir ástfangin(n) upp fyrir haus — á ekta gamaldags máta. Þú stendur með báða fæturna á jörðinni og ert ekkert að troð- ast ffam í sviðsljósið og stjórna öllu. Þú vilt heldur vinna á bak við tjöldin þar sem þú hefur töglin og hagldirnar og getur gagnrýnt og séð um að hlutirn- ir séu rétt unnir. Þú ert í raun óskadraumur hvers atvinnu- rekanda því þú vinnur og vinn- ur þangað til fúllkomnun er náð. Einnig ertu mjög um- hyggjusöm(samur), hugsar rökrétt og á praktísku nótun- um og ert þess vegna góð(ur) til að hjálpa öðrum með vandamál. Þú ert lítið fyrir að þurfa að vera upp á aðra komin(n) og virkar því oft dá- lítið innhverf(ur) og hlédræg(ur). Ekki er ólíklegt að tilfinningar milli þín og maka þíns blómstri á ný en það gæti líka verið að þú fynd- ir þér nýjan maka. Ríkjandi pláneta er Merkúr og höfúð- skepnan er jörðin. Besti tírni þinn á árinu: Maí, byrjun júní, ágúst og september. Vogin 24.9. -23.10. Bros er bros, burtséð ffá því hvort það kemur frá þér. Þegar það gerir það er það bros sem lýsir upp umhverfið eins og jólatré, þar sem hlýleikinn geislar í allar áttir. Það er ör- 20 VIKAN 26. TBL1989

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.