Vikan - 28.12.1989, Side 43
MARTROÐIN
Smásaga eftir William Newman
Fyrsta gruninn um að ekki væri allt
með felldu fékk John Willoughby
þegar hann sá stóra sporið í rósa-
beðinu undir stofuglugganum. Hann
horfði á þetta djúpa spor og hrukkaði
ennið. Sjálfur notaði hann skó númer 42
og honum fannst hálfbroslegt þegar hann
steig ofan í sporið. Þetta var spor eftir
miklu stærri skó.
Maðurinn, sem hafði gægst inn um
gluggann — líklega fyrir skömmu — var
greinlega stærri en hann.
Klukkan var hálfátta og kvöldið var
mjög kyrrt.
Það voru engin önnur spor, aðeins þetta
eina í rósabeðinu. Sá sem hafði staðið
þarna hafði staðið með hinn fótinn í gras-
inu.
Einhver óljós ótti greip John Wil-
loughby.
Þegar hann kom heim af lögfræðiskrif-
stofii sinni í bænum lá miði á borðinu við
símann um það að Marva, konan hans, og
litla dóttir þeirra hefðu farið að heimsækja
systur Mörvu.
Jill var níu ára og eina barn þeirra hjóna.
Það var svo ólíkt Mörvu að fara svona í
burtu án þess að hringja til hans og segja
honum ífá því.
„Elsku John,“ stóð á miðanum. „Ég þarf
að skreppa til Millie. Ég hringi seinna.
Vertu óhræddur."
Hún hafði svo skrifað undir bréfið en
eins og af einhverju óskiljanlegu glensi
hafði hún skrifað eftirskrift:
„Gleymdu ekki að gefa Tammy ef hún
kemur heim.“
Þetta hlaut að vera einhver misskilning-
ur, þau voru neydd til að láta taka köttinn
Tammy af lífi fyrir meira en tveim vikum.
John var hugsi þegar hann las skilaboðin
firá Mörvu aftur og aftur. Var Marva að
reyna að segja honum eitthvað? Hver hafði
staðið fyrir utan stofugluggann? Hvers
vegna þurfti hún að fara svona skyndilega?
John stóð í eldhúsinu og hlustaði. Svo
gekk hann úr einu herberginu í annað.
Hann fór jafnvel upp á háaloftið, sem ekki
var fullgert ennþá, en húsið var alveg
mannlaust.
Svo datt honum í hug að hringja til
Millie.
Síminn hringdi en enginn svaraði. Hann
lagði á, gekk svo út aftur og settist á hring-
bekkinn sem þau höfðu látið smíða utan
um stóru eikina í garðinum. Hann hafði
smíðað svolítinn kofa handa Jill uppi í
trénu í fyrrasumar.
John Willoughby reykti sígarettuna
upp. Svo stóð hann á fætur og gekk yfir til
nábúans sem hét Joe Brighton.
Frh. á næstu opnu
Konan hans og
litla dóttir
þeirra voru
horfnar og hann
var ekki viss
um hvort þær
höfðu yfirgefið
heimilið af
frjálsum vilja.
Hvað átti hann
að gera?