Vikan - 11.01.1990, Page 21
VIKAH I ROM
Þó allt vaði í skit og sorpi innan og utandyra er kjötvinnsla úti undir berum himni
talin sjálfsagt mál.
Kindumar vom steiktar í heilu lagi yfir glóðum. Greinarhöfundi þótti óliklegt að
þær hefðu verið fengnar á lögmætan hátt.
Og ljósmyndadrengurinn fær ekki bara
að taka myndir, hann er þvingaður, neydd-
ur og píndur til að taka hundruð mynda.
Allir vilja fá senda stóra mynd í vönduðum
ramma. og nú sjá lífsreyndar konur hvern-
ig rómantíkin rennur af sveininum og
hann verður djöfullega pirraður á þessum
skítugu krökkum sem hanga utan í honum
og pota í myndavélarnar og hleypa af eitt
þúsund myndum af mjöðminni á honum,
Konumar kunna til verka þegar kemur
að því að flá dýr. En aðstaðan er ekki sem
best.
Jafnvel héma á Rambo sér aðdáendur.
Konumar em uppábúnar fyrir veislu.
sem er út af fyrir sig ekkert til að taka
mynd af.
Eigum við ekki að koma? spyr ég hupp-
lega.
Neeei, segir hann dræmur því hann hef-
ur komið auga á eitthvað frjálst, náttúru-
legt og fagurt handan næsta bings.
Heimaslátrun og veisluhöld
í guðs grárri náttúrunni
Hér og þar í kampinum er tjóðruð kind
á beit. Andartaksmisskilnings gætir, ég
held að flakkararnir séu bændur í hjáverk-
um en þeir eru það ekki. Heldur er hátíð á
morgun og þeir hafa aflað kindanna hjá
bændum í nágrenninu. Svo margir leggja
svo mikla áherslu á að þau hafi keypt þess-
ar kindur að ég hætti að trúa því. Og nú er
verið að slátra kindunum og verka. Síðan
verða þær steiktar í heilum skrokkum, yflr
opnum eldi. Þetta er óneitanlega í áttina.
Þið dansið náttúrlega? spyr ég. Ljós-
myndadrengurinn lifnar, nær hann mynd
af meyju í silkipilsi með bjöllur?
Hvort þau gera. Og hljómsveitin,
mennirnir með rauðu klútana um hálsinn
og angurværu fíðlurnar? Jújú, þeir eru
þarna, inní litlum kassa sem heitir kass-
ettutæki og er knúið af bílabatteríinu.
l.TBL. 1990 VIKAN 21