Vikan


Vikan - 08.02.1990, Blaðsíða 8

Vikan - 08.02.1990, Blaðsíða 8
LOTTO Það er fulltrúi dómsmálaráðuneytisins sem ákveður hvort kúlusettið skuli notað og rífur inn- sigli viðkomandi tösku nokkrum minútu fyrir útdrátt. Þórður Þorkelsson varaformaður ís- lenskrar getspár og Úlfúr Ragnarsson taeknifúlltrúi fylgjast grant með. Að loknum útdrætti er lottóvélin innsigluð í kassa og ekki kom- ið nálægt henni fyrr en við næsta útdrátt að viku liðinni. ræður hvort settið er notað og rýfúr innsiglið þegar kúlunum er komið fyrir í stokknum á vélinni. Mannshöndin ber snertir aldrei kúlurnar, þeim er raðað upp með hönskum og í viðurvist allra viðstaddra í nákvæmri tölusettri röð. Með hringli detta kúlurnar ofan í kassann og blandast í blæstri vélarinnar. Það verður að líða ákveðinn tími í blöndun og er það fulltrúi lottósins sem gefúr merki um hvenær má byrja og hvað langt líður á milli þess að kúla skjótist upp. Ólafur Walt- er fylgist grannt með og skráir í mikinn doðrant hverjir eru til staðar, hvernig útdráttur fer fram og staðfestir tölurnar sem upp koma. Þetta er undirritað af við- stöddum og þar með staðfest. Kúlurnar eru settar aftur í tösku, hún innsigluð og færð í geymslu í eldtraustan peninga- skáp. Lottóvélinni er ekið inn í sérsmíðaðan vagn, honum harðlæst og ekið í örugga geymslu. Ótrúlegt umstang Þrjár mínútur eru fljótar að líða og allt gekk þetta nákvæm- lega eins og það átti að gera. Það er ótrúlegt umstang kring- um einfalda og sakleysislega athöfh eins og útdrátt í lottó- inu. - En hvað ef vélin bilar eða rafmagnið fer á meðan á útdrætti stendur? Þá gilda þær tölur sem þegar hafa komið upp, hinar eru dregnar með hanskaklæddum höndum og bundið fyrir aug- un á þeim sem það gerir. Þess vegna er alltaf hafður klútur til taks. Það er séð fyrir öllu og reglur til um það sem úrskeið- is kann að fara. — Geta kúlurnar verið misþungar? Það er kirfllega gengið frá því með reglubundnum hætti að kúlurnar séu nákvæmlega jafnþungar — upp á millí- gramm. Keypt eru ný sett kúlna að utan með reglulegu millibili og þær vigtaðar af löggiltum aðila hér á landi. - Sjá stjómendur lottós- ins kúlurnar um leið og dregið er? Guðrún Þórðardóttir svara því hlæjandi: „Nei, það er ekki nokkur vegur að sjá hvaða kúl- ur skjótast upp. Maður er líka með hugann við það eitt að þetta gangi snurðulaust fyrir sig. Smámistök geta verið af- drifarík." Að meðtöldum starfsmönn- um sjónvarpsins, sem taka þátt í þessari stuttu og einföldu út- sendingu, eru það alls tíu manns sem sjá um útdráttinn í hvert sinn. „Auðvitað á að vera létt og líflegt yfir þessu en þetta er nú einu sinni peninga- spil með háum upphæðum sem fjölmargir taka þátt í, þannig að leikreglur verða að vera nákvæmar," segir Þórður Þorkelsson, varaformaður ís- lenskrar getspár. Meðan lottóliðið skeggræðir tölur kvöldsins og gengur úr salnum malar móðurtölvan í Laugardalnum og leitar ákaft að vinningshöfúm kvöldsins. Það tekur hana um það bil klukkustund að finna hve margir duttu í lottópottinn að þessu sinni og hvar á landinu miðarnir voru seldir. Um eig- endur hefur hún enga hugmynd. Hverjir hinir heppnu eru kemur ekki í ljós fýrr en eftir helgi þegar eig- endur vinningsmiða vitja vinn- inganna. Aðeins örfáir starfs- menn íslenskrar getspár vita hverjir þeir eru og eru bundn- ir ströngu þagnarheiti. Vel- flestir vilja algjöra nafnleynd og er það skiljanlegt. Sumir eiga þó erfitt með að leyna fögnuði sínum. Sums staðar erlendis eru vinningshafar skyldugir til þess að koma fram. Það er beinlínis kveðið á um það í lögum og reglugerð- um. 8 VIKAN 3. TBL. 1990 LOTTO „Maðurinn með hvítu hansk- ana“ Úlfúr Ragnarsson raðar kúlunum vandlega upp áður en útdráttur hefst. Kúlumar em aldrei snertar með bemm höndum. Vinningsupphæð vandlega skrifúð á limræmu aftaná „Lottu“. m Farið yfir hvert smáatriði einni mínútu fyrir útsendingu. Úlfúr Ragnarsson og Guðrún Þórðar- dóttir bjástra við „Lottu". Þor- geir og fulltrúi dómsmálaráðu- neytisins Ólafúr W. Stefánsson taeða nákvæmnisatriði. Hinn mikli fjöldi lottóvéla um hnd allt er beinlínutengdur við tölvubúnað íslenskrar getspár. Hér sést starfsmaður við hluta tölvusamstæðunnar. Frh. af bls. 7 Klikkun Eftir að hjónakornin Philo- mena og Tom Drake höfðu séð kvikmyndina Rocky sögðu þau hvort við annað: „Ef Rocky getur þetta getum við það.“ Við svo búið héldu þau heim og ákváðu að gefa brauðstritið upp á bátinn, láta sparsemina lönd og leið og eyða aleigunni í lottómiða. Á níutíu dögum keyptu þau tíu þúsund lottó- miða en stóri vinningurinn lét á sér standa. Áfram héldu þau að eyða öllu fé sem gafst, laun- um, andvirði íbúðar og jarðar- skika sem seldur var og svo framvegis. Þau fengu fjölda smávinninga sem þau notuðu til að kaupa fleiri miða. Þegar æðið rann loksins af þeim áttu þau sem samsvarar 42 þúsundum króna, það var allt og sumt. Enginn stórvinn- ingur kom á miðana sem kost- uðu hátt í tvær milljónir króna. Þau seldu tímariti sögu sína og lítið kvikmyndafyrirtæki keypti tökuréttinn. Þau gerðu sig ánægð með það. „Við sjáum ekki eftir neinu, þetta var spennandi tímabil í lífi okkar,“ sögðu hjónakornin en stuttu síðar skildu þau og hvort hélt sína leið á vit nýrra ævintýra. Siðan hefur ekkert til þeirra spurst hjá lottófyrirtækjum. Skammvinn gleði María Kurkowiak, 63 ára gömul frá New Jersey, gat ekki beðið með að njóta vinnings- ins sem henni var sagt að hún hefði unnið í lottóinu. Vinn- ingurinn samsvaraði tæpum flmm milljónum íslenskra króna. María keypti gjaflr handa vinum og ættingjum og eyddi til þess öllu sínu sparifé eða sex þúsund dollurum. Þá kom upp úr kaflnu að vinning- urinn var ekki hennar. Hún hafði fengið tölurnar staðfestar með því að hringja í tvígang til höfuðstöðva lottósins og í bæði skiptin fengið sömu töl- urnar uppgefnar. Þar með var hún sannfærð um eigin heppni og örlætið greip hana. Hins vegar er kveðið á um það í lög- um lottósins að vinninga sé ekki hægt að staðfesta endan- lega gegnum síma. Það verður að gerast á staðnum eða með opinberri birtingu í fjölmiðl- um. Forsvarsmenn lottósins flrruðu sig þar með allri ábyrgð og sögðu ekki hægt að leiðrétta þennan leiða mis- skilning. Frú María var ósátt við niðurstöðuna, hefur nú höfðað mál gegn lottóinu og standa málaferli yflr. Megrun sem borgaði sig Strangur megrunarkúr heima fýrir var að gera Louis Robey vitlausan. Hann vann sem sölumaður í Tennessee- fýlki. Dag einn var hann óvænt beðinn um að fara í söluferð til Missouri-fylkis og gladdist yfir að fá tækifæri til að vera að heiman í nokkra daga. Hann gæti fengið sér ærlega að borða án þess að nokkur skipti sér af. Hann átti í miklu sálar- stríði fyrir utan glugga sælgæt- is- og ísverslunar í upphafi ferðar. Girnilegur rjómaís með þykkum sætsósum ffeistaði hans óstjórnlega — en hann hætti við og keypti lottómiða fýrir aurana, svona í einhverju hugsunarleysi. Miðunum stakk hann í vasann, lauk erindum sínum í söluferðinni og hélt til síns heima. Það var ekki fyrr en viku eft- ir að Robey kom heim að hann mundi eftir miðunum í vasan- um. Hann fann hvergi buxurn- ar sínar með lottómiðunum í vasanum enda hafði eiginkon- an stungið þeim í þvottavélina. Robey stöðvaði vélina og dró miðaræflana upp úr vasanum. Á þeim mátti greina daufar tölurnar. Þær komu heim og saman við útdregnar lottótöl- ur í lottói Missouri-fylkis. Eftir að hafa aftur farið í ferð til næsta fylkis til að fá tölurnar á þvegnum miðanum staðfestar hjá forsvarsmönnum lottó- fyrirtækisins hélt hann glaður og sæll heim með þann stóra - ávísun upp á milljón dollara eða sem samsvarar 61 milljón íslenskra króna. Ferðalögin og megrunarkúrinn höfðu svo sannarlega borgað sig. Fylgir ekki sögunni hvað Robey létt- ist mikið í. kúrnum eða hvort hann er enn að slást við auka- kílóin. Sárabætur innflytjanda Verkamaður í San Diego, Jose Caballero, vann tvær milljónir dollara í lottói Kali- forníuríkis. Það sem hann gerði sér ekki grein fyrir voru reglur um að hver sá sem hreppir umtalsverðan vinning er athugaður sérstaklega í manntali og hjá skattyfirvöld- um. Jose hélt að hann væri kominn á beinu brautina í líf- inu, ameríski draumurinn hefði ræst fýrir tilstilli guðs og það með ótrúlegum hætti. Annað kom á daginn. Nafn hans var hvergi að finna á skrám yflr bandaríska ríkis- borgara. Hann var ólöglegur innflytjandi frá Mexíkó og var því sendur suður fyrir landa- mærin í einum grænum. Allir mega spila í lottói og því fékk hann að taka með sér bróður- partinn af vinningnum. Sagan segir að Jose hafi verið fúll- komlega sáttur við það. Líkt og silfur Egils Þegar lottó Colorado-fýlkis var sett á laggimar var mikið um dýrðir. Á opnunarhátíð var þúsund miðum hent af svölum ráðhúss nokkurs. Hófst þá mik- ill darraðardans og stimpingar meðal fjöldans sem endaði með því að flytja varð nokkra á sjúkrahús og fjöldi gesta þurfti aðhlynningar við eftir hama- ganginn. Athöfn sem þessi hef- ur ekki verið endurtekin. Hábölvaður vinningur „Ég vildi að ég hefði aldrei unnið þennan bölvaða vinn- ing,“ segir ónefhdur fjöl- skyldufaðir í New York sem þurfti að gjörbreyta lífsháttum sínum vegna milljónavinnings í lottóinu. Ásælni stórfjölskyld- unnar var með ólíkindum. Frænkur og ffændur spmttu upp hér og þar, heimilis- friðurinn var rofinn allan sólar- hringinn af sölumönnum trygg- ingarfélaga, bílasalar lágu á bjöllunni og fasteignasalar vora stöðugt að koma, hringja eða senda bréf. Söfnuðir og góðgerðarstofnanir vom sí- sníkjandi og honum var ekki einu sinni vært í vinnunni fyrir stöðugu ónæði. Fjölskyldan, sem hafði lifað rólegu lífi og unað glöð við sitt, varð að þremur mánuðum liðnum að flytja til annars fylk- is þar sem enginn nema for- eldrar og tengdaforeldrar vita hvar hún býr. Lottófyrirtækið sendir reglulega ávísun til lög- fræðings fjölskyldunnar sem kemur henni fýrir í ákveðnu pósthólfi. Þangað sækir fjöl- skyldan peningana. Hamingja og auður fara ekki alltaf saman. 3.TBL. 1990 VIKAN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.