Vikan


Vikan - 08.02.1990, Blaðsíða 30

Vikan - 08.02.1990, Blaðsíða 30
landar mínir, Danir, svo ekki sé nú talað um Svía, Finna og Norðmenn. Það þarf oft að ýta vel við þeim til að fá þá til að hlæja. Ykkar húmor er líka kaldhæðnislegri og af- dráttarlausari. Þið eruð eins og veðrið hér á ykkar landi, stundum logn, stundum hvasst og veðráttan hörð. Húmorinn ykkar er í samræmi við það. Ég reyni á hverjum stað að tileinka mér það andrúmsloft sem ríkjandi er og set mig inn í málefni sem eru á döfinni og felli inn í prógrammið. ís- lenskan er erfitt tungumál að bera fram en ég get þó sagt nöfn eins og Steingrímur Hermannsson, Davíð Oddsson og Ragnar „álskalli" svo allir skilja," segir Skoller og hlær að sjálfúm sér. Þegar hann var hér að skemmta árið 1988 í Óperunni kom fyrir atvik undir lok skemmtunar sem hann hefúr notað til að segja öðrum ffá gálgahúmor íslendinga. í búningsherbergjum Óperunnar er lágt til lofts og Skoller var kominn af sviði. Hann var klappaður kröftuglega upp og á leið- inni rak hann sig harkalega á steinsteyptan þverbita í loftinu svo blæddi úr. Þegar hann kom inn á sviðið aftur þurrkaði hann af sér svitann með vasaklút en klúturinn varð þegar rauðlitaður af blóði og enni grínistans varð blóðrautt og skellótt. Þá hló salurinn dátt... hélt þetta vera bráð- snjalla „brellu“. Það varð hins vegar að færa Skoller undir læknishendur strax að skemmtun lokinni og saumuð voru átta spor í höfúð hans. Einn af okkur Það er Lionsklúbburinn Njörður sem staðið hefúr að komum Eddie Skoller hingað til lands í öll þrjú skiptin og hefur hann gert stormandi lukku á herrakvöld- um klúbbsins á Hótel Sögu. „AHur ágóði af mikilli sjálfboðavinnu kringum þetta allt saman rennur til líknar- mála og höfúm við verið ákaflega heppnir með Skoller," segir Steinar Petersen, lions- maður úr Nirði. „Hann er einstaklega þægilegur í viðmóti, samvinnuþýður með afbrigðum og gjörsamlega laus við allt sem heitir stjörnustælar og stjörnusérþarfir. Segja má að hann sé orðinn „einn af okkur“ og hann metur mikils þær móttök- ur sem hann hefúr fengið hér. Við höfum líka lagt okkur fram um að gera vel við hann. Hann er hrifinn af íslenskum áhorf- endum og finnst mikið til Vigdísar forseta koma, ber mikla virðingu fýrir henni. Hann er harðduglegur og áhugasamur. Við fórum með hann á Þingvelli, sem honum fannst undarlegur þingstaður og í senn stórbrotinn. Vélsleðaferð á Mosfellsheiði er okkur eftirminnileg því tæki af því tag- inu hafði hann aldrei séð, hvað þá ekið og hann gerði grín að sjálfúm sér eftir útreið- artúr á brokkgengum hesti. Gamla bíó eða Óperuna sagði hann hafa hlýja sál og gott að skemmta þar og Borgarleikhúsið nýja spennandi leikhús þar sem gaman væri að koma fram — einhvern tíma í ffamtíðinni. Skoller er þetta þrennt, listamaður, grallari og sannur heiðursmaður. „Vigdís er fallegur forseti," syngur Eddie Skolier í vísunni um okkur Íslendinga. Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, var heiðursgestur á hljómleikum Skoller. Skoller sem hér er í faðmi lionsfjölskyld- Frh. af bls. 28 skemmti fyrir íúllu húsi í þrígang en þetta er í þriðja sinn sem hann kemur hingað til lands til að skemmta. Hann sýndi að hann kann að kitla hlátur- taugamar í landanum og var fljótur að átta sig á spaugilegum hliðum mála sem hátt ber í íslensku þjóðlífi. Skoller er grínisti af guðs náð, örygg- ið uppmálað á sviði og hrífur áhorf- endur með frá fyrstu mínútu rétt eins og ekkert sé eðlilegra í heimi hér. Hann hefúr ferðast til skemmtana- halds víða um lönd og þekkir vel hvað húmor getur verið breytilegur eftir löndum. íslenskir áhorfendur „Að skemmta ykkur er svipað og gerist á meginlandi Evrópu," segir þessi víðförli skemmtikraftur og brosir hlýlega. „Þið eruð opnari og móttækilegri fýrir gríni en „Þetta er stórfjölskyldan mín,“ segir Eddic unnar. Tveir húmoristar, kankvísir og orðhvatir. Það fór vel á með þeim Davíð Oddssyni og Eddie Skoller 5KEMMTAMIR 30 VIKAN 3. TBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.