Vikan


Vikan - 08.02.1990, Blaðsíða 19

Vikan - 08.02.1990, Blaðsíða 19
TEXTI: ÞORGEIR ÁSTVALDSSON LJÓSM.: CHRISTER SIDELÖV Þeir eru ekki margir sem gengið hafa til fundar við Rambó með ís- lensku lopapeysuna eina að vopni og lítið upptökutæki. Það gerði Jón Ársæll Þórðar- son, núverandi þáttagerðar- maður á Rás 2 og fyrrum fréttamaður á útvarpsstöðinni Stjörnunni. Fréttirnar á út- varpsstöðinni voru öðruvísi en áður hafði þekkst hér á landi. Þær voru á köflum bráð- skemmtilegar, stundum mein- fyndnar og háðskar, stundum persónulegar, léttvægar og skreyttar með alls kyns hljóð- effektum. Þessi fréttastíll féll í góðan jarðveg þótt mörgum þætti oft skotið yfir markið og fréttirnar ekki nægilega alvar- legar. En Stjörnufféttir eru lið- in tíð, þær voru og hétu, hvemig sem þær þóttu. Einn góðan veðurdag kom sú hugmynd upp á fréttastof- unni að gera eitthvað óvenju- legt svo um munaði og frétta- menn höfðu fyrir tilviljun ffétt af fúndi leikarans Sylvesters Stallone í Stokkhólmi sem fyrirhugaður var vegna sýning- ar á Rambó. Jón Ársæll var val- inn til fararinnar og hélt í út- veg til fundar við hetjuna. „Tilefnið var ffumsýning á Rambó nr. 3 í Stokkhólmi og ég var viðstaddur forsýningu ásamt öðmm blaðamönnum þar í borg. Ég var eini íslend- ingurinn þarna og skemmti mér bara vel. Árni Samúelsson var í Stokkhólmi um þetta leyti vegna samninga sem hann gerði við framleiðendur myndarinnar og það var hann sem greiddi götu mína og kom því í kring að ég fékk viðtal við Rambó sjálfan, eða leikarann Stallone. Leikarinn bjó á besta hóteli eins og lög gera ráð fyrir og mikil öryggisgæsla í kring- um hann. Ég fékk ekki jákvætt svar fyrr en effir drjúga stund og ég var færður milli hæða á hótelinu sem var að hluta tómt vegna vem Sylvesters í einni eða fleiri svítum þess. Hann reyndist jafnvel betur varinn en ég gerði mér í hugarlund og var bróðir hans í öryggislið- inu. Það er náungi sem ég vildi ekki lenda í slagsmálum við. Sylvester Stallone tók vin- samlega á móti mér og reynd- ist alúðlegur í viðmóti, vel vaxinn tappi með upphand- Sylvester Stallone hampar hér íslensku lopapeysunni sem Jón Ársæll Þórðarson fréttamaður færði honum að gjöf áður en sest var niður og málin rædd í viðtali í Stokkhólmi fýrir einu og hálfu ári. „Stallone minnti mig á austfirska bílatöffara" - segir Jón Ársœll Þórðarson útvarpsmaður hetjusögur og ýkjur þar sem ofúrmennið vinnur, í nafni réttlætis, ótrúleg og í senn brosleg afrek. Kraffur, þor og áræði er það sem þarf. í viðtal- inu gerði Sylvester sér far um að verja þessa ímynd og færði mörg haldgóð rök fýrir henni. Barátta hins illa og góða er alltaf til staðar og hann sagðist vinna á vegum hins góða sem sigrar að Iokum. Ekki slæm heimspeki það. Við Frh. á bls. 20 leggi eins og væn kvenmanns- læri. Hann var með sænskri vinkonu sinni sem ég veit eng- in deili á og tók sér góðar pás- ur í viðtalinu til að ræða við hana. Hann reykti vindla, sennilegast af Havanagerð, og drakk vatn. Ég færði honum að gjöf íslenska lopapeysu sem hann var mjög hrifinn af og reyndar sú sænska líka. Hann smeygði sér í peysuna og hún smellpassaði. Það kom mér á óvart hvað hann var vel heima í íslenskum aðstæðum eða þekkti vel til. Hann hafði til dæmis heyrt af íslenskum sjómönnum og þeim veðrum og skilyrðum sem þeir vinna við — harð- neskjulegri náttúrunni. Hann líkti þeim aðstæðum við þá erfiðleika og þolraunir sem Rambó lendir í í baráttunni við sovéska herinn í hálendi Afganistan. f hugum okkar eru Rambó- myndirnar yfirgengilegar MEÐ FRÆQU FÓLKI 3.TBL.1990 VIKAN 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.