Vikan


Vikan - 08.02.1990, Síða 11

Vikan - 08.02.1990, Síða 11
UF5REYM5LA rslur daglegt brauð konum. Þetta fólk sat inni ýmist íyrir stjórnmála- eða trúarskoðanir sínar eða fyrir venjulega glæpi, svo sem þjófhað, rán og morð. „Að vera skyndilega sett í fang- elsi er auðvitað hræðileg lífsreynsla," sagði Rudi. „Öllum í fangelsinu var stjórnað með harðri hendi en við vorum saman nokkrir bahá’íar og við reyndum að stappa stálinu hvert í annað.“ í fangelsinu átti Rudi þátt í að skipuleggja lærdóms- og bænastundir bæði kvölds og morgna þar sem einhver fanganna, sem meiri mennt- un hafði en hinir, miðlaði af þekkingu sinni. „Við vissum aldrei hvenær við yrðum send í yflrheyrslu en á hverjum degi var þó eitthvert okkar tekið til yfirheyrslu eða pyntinga." Pyntingarnar voru fyrst og fremst barsmíðar með grönnum prikum eða svipum. „Þeir bundu okkur niður og börðu um allan líkamann en sérstaklega á bakið og neðan í iljarnar og stundum neyddu þeir okkur til að ganga um gólf á alblóðugum fótunum." í fangelsinu var enga læknishjálp að fá en Rudi sagði að fangarnir hefðu sjálfir haft vasilín-smyrsl sem blandað var í volgt vatn og það hefði verið notað sem sárasmyrsl. Og ástæðan fyrir öllum þessum hörmungum var þessi: „Þeir voru bara að reyna að fá okkur til að afheita trú okkar og ekkert annað.“ Svívirtu okkur á alla lund Þegar talið berst að aðbúnaðinum í fangelsinu segir Rudi að hann hafi auðvit- að ekki verið góður en að fangarnir hafi í það minnsta alltaf fengið nóg að borða. „Hins vegar móðguðu verðirnir okkpr og svívirtu á alla lund. Flest okkar bahá’íanna voru betur menntuð en þeir og það fór Hér á landi var á dögunum stödd 27 ára gömul írönsk kona, Ruhiyyih Jo- hanpour að nafni, I boði bahaá’í. Hún er ein þeirra fjölmörgu írana, sem neyðst hafa til að flýja land til þess að bjarga lífi sínu. Hér segir hún sögu sína. mikið í taugarnar á þeim.“ Ekki voru fang- arnir í algerri einangrun í fangelsinu og heimsóknir náskyldra ættingja voru leyfð- ar en aðeins aðra hverja viku og þá í tíu mínútur í senn. Þegar Rudi er spurð hvort ekki hafi verið hættulegt fyrir ættingjana að koma í heimsókn og hvort ekki hefði komið fyrir að þeir hefðu þá verið hand- teknir svarar hún að bragði: „Auðvitað lagði þetta fólk sig í mikla hættu við að heimsækja okkur en hvort það var hand- tekið þá eða einhvern tíma seinna skipti ekki máli. Það var hvort sem var hægt að grípa það hvenær sem var.“ Tíu konur teknar af lífi á einum degi Báðir foreldrar Rudiar voru handteknir um leið og hún þegar henni var varpað í fangelsi í seinna skiptið. Þeim var hins veg- ar sleppt fljótlega aftur en Rudi sat eftir ásamt nokkrum hópi kvenna. Sú yngsta var aðeins sextán ára gömul en sú elsta hátt á sextugsaldri. Allar þessar konur voru ba- há’ítrúar og allar áttu þær það sameigin- legt að vilja ekki afneita trúnni. Af þeim sökum áttu ellefu þeirra eftir að enda líf sitt í gálganum, þar af tíu þann 18. júní 1983. Þegar þessi lífsreynsla berst í tal þagnar Rudi, grípur fyrir andlitið á sér og á greinilega í erfiðleikum með að segja ffá. „Mér hafði verið sleppt úr fangelsi þegar þetta gerðist og ég var vitni að aftökunum. Yngsta fórnarlambið var Mona sem var aðeins sextán ára gömul. Auk kvennanna tíu voru tveir karlmenn teknir af lífi þenn- an sama dag. Allt þetta fólk var bahá’ítrú- ar.“ Rudi leggur mikla áherslu á að það fólk sem þannig láti lífið fyrir trúna sé bara venjulegt fólk. „Þetta er ekki neitt ofsa- trúarfólk sem gefur líf sitt fyrir ekkert en þegar það þarf að velja milli trúarinnar og lífcins velur það trúna. Það er ósköp eðli- legt, því hvers virði er lífið ef búið er að af- neita því sem hjartað segir að sé rétt?“ 3. TBL. 1990 VIKAN 11

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.