Vikan


Vikan - 08.02.1990, Page 23

Vikan - 08.02.1990, Page 23
5KILNAÐIR öve Söe segir að nú sé kominn tími til að rísa upp og gera sér grein fyrir afleiðingunum. Hverjar eru afleiðingarnar? Blómafólkið lagði áherslu á „frjálst" uppeldi. Engar reglur, engar viðmiðanir. Þetta skap- aði angist og óöryggi hjá börn- unum og til þess má rekja mik- ið af unglingavanda nútímans, eiturlyfjaneyslu og ofbeldi. Æ fleiri skilja Hjónaskilnuðum fjölgar. Um leið fjölgar þeim börnum sem búa með tveimur fjölskyldum. Hvernig börnin upplifa þessar aðstæður er alfarið undir hin- um fullorðnu komið. Þegar vel tekst til geta tvær fjölskyldur haft auðgandi og þroskandi áhrif á barn. Þegar miður tekst til hafa tvær fjöl- skyldur truflandi áhrif á þroska þess. Það tekst illa til ef for- eldrar eru ómeðvitaðir um hætturnar, hvað það er sem ber að varast, á hvað beri að leggja áherslu og svo framveg- is. Öllum er Ijóst að börn þjást í hjónaböndum þar sem for- eldrarnir rífast stöðugt. Börnin verða óörugg og eiga bágt með að einbeita sér. Morten Nissen er í hópi fremstu barnasálfræðinga í Danmörku og hann bendir á leið út úr vandanum. Aðalat- riði er að afdramatísera ástand- ið, draga úr spennunni. Staðan getur verið erfið en hún er aldrei vonlaus. Stöðugur styr á heimilinu, óleyst vandamál, gera barnið vanmáttugt. Barn- inu líður illa og fær sektar- kennd sem kunnugt er. En börn eru raunsærri en full- orðnir halda. Það er unnt að draga úr sorginni vegna brott- flutnings annars foreldranna af heimilinu. Að undirbúa Það er hér sem undirbún- ingurinn kemur inn. Það þarf að tala við barnið málefnalega um það sem í vændum er og hvað það muni hafa í för með sér í raun. Fullorðnir verða að vera heiðarlegir við börnin, tala um tilfinningar sínar og áætlanir og vanmeta ekki hæfni barnsins til að skilja og aðlaga sig nýjum aðstæðum. Aldrei má láta börnin lenda í þeirri aðstöðu að þurfa að velja á milli föður og móður. Þannig verður versta tegund sektartilfinningar til, segir Nissen. Börnin eiga ekki að þurfa að hlusta á mömmu tala illa um pabba eða öfugt. Ekki bera í mömmu það sem pabbi hefur sagt um nýja kærastann hennar mömmu. Sorg er ekki neitt sem þarf að fela fyrir börnum. Börn skilja tilfinning- ar, segir Nissen. Þegar nýir aðilar koma til sögunnar, ný sambýliskona föður eða nýr félagi móður, er mikilvægt að barnið finni til öryggis um að báðir foreldrar elski það jafnmikið og áður. Börn hafa ríka réttlætiskennd og meta góðan vilja og ein- lægni. Mikilvægt er að skilja þau ekki ein eftir með allar spurningarnar og vangavelt- urnar. Morten Nissen er á önd- verðri skoðun við marga aðra sálffæðinga þegar hann segir að aldur barna við hjónaskiln- að skipti engu máli. Frá sjónar- miði barnsins er ekkert til sem heitir „réttur tírni" þegar um hjónaskilnað er að ræða. Börn skilja miklar tilfinningar að ákveðnu marki. Tilfinninga- kulda eiga þau hins vegar mjög erfitt með að þola. Hann er niðurdrepandi fyrir börn. Það er hartnær ógerningur að lag- fera síðar á lífsleiðinni tiffinn- ingu barns að vera „yfirgefið". Talaði við börnin Morten Nissen bendir á að flestar skýrslur byggist á við- tölum við foreldra, uppeldis- lfæðinga, sálfræðinga og fé- lagsráðgjafa. Nissen sneri dæminu við og ræddi við börnin. Hann kannaði hvernig þau upplifðu sínar aðstæður tveim mánuðum eftir hjóna- skilnaðinn og átján mánuðum eftir skilnaðinn og þremur árum síðar. Börnin voru á aldr- inum 6—12 ára og hann mun væntanlega fylgjast með þeim þar til þau verða fullorðin. Nú þegar er Morten Nissen alveg ljóst að börn búa yfir miklum hæfileikum til að kom- ast í gegnum erfiðar aðstæður. Þau eru raunsæ og bjartsýnis- fólk. Ættingjarnir mega ekki hverfa Nissen leggur mikla áherslu á hlutverk ættingjanna. Til að börn geti upplifað hjónaskiln- að sem rökrétta afleiðingu á slæmu ástandi verður að varð- veita tengslin við móður- og föðurforeldra og aðra nána ættingja. Hjón, sem skilja, upplifa oft í því sambandi þá tilfinningu að hafa mistekist, biturleika og reiði í furðulegu samblandi við létti. Síðar víkja hefndartilfinn- ingarnar til hliðar og í staðinn kemur sú tilfinning að hafa tekið rétta ákvörðun. Þetta á einnig við um börnin, sam- kvæmt könnun Nissens. í upphafi eiga börnin erfitt með að skilja hvers vegna for- eldrarnir skildu og urðu fýrir mikilli sorg, þrátt fýrir allar út- skýringarnar. Hjá því verður aldrei komist. Ef börnin gátu treyst því að eiga aðgang að hinu foreldranna eftir sem áður og að breytingin á daglegum högum barnsins varð ekki umtalsverð dró verulega úr spennunni og að- stæður afdramatíseruðust á þrem árum. Að þeim tíma liðn- 10 góð róð Á grundvelli þeirra kann- ana sem Morten Nissen sálfræðingur hefur gert á undanförnum árum hefur hann útbúið lista yfir þær kröfur sem börn eiga rétt á að setja fram við hjóna- skilnað. Það ber ekki að líta yfir þennan lista til að fá slæma samvisku heldur eru hér á ferðinni tíu góð- ar ráðleggingar. Mæðra- hjálpin í Danmörku og Bjargið börnunum í Sví- þjóð hafa nú viðurkennt þennan lista sem eðlilega viðmiðun. Kröfurnar eru þessar: 1 Öll börn eiga rétt á góðum undirbúningi fýrir hjónaskilnað varðandi af- leiðingar hans og foreldrar eiga að vera opinskáir gagn- vart börnum sínum. 2 Það ber að sannfæra börnin um að hjónaskilnaður- inn sé ekki þeim að kenna. 3 Lögð skal áhersla á að gera barninu skiljanlegt að hjónaskilnaðurinn er til kom- inn og nauðsynlegur til að leysa vandamál milli foreldr- anna. um fannst flestum þessara barna það svolítið „óþægilegt" að hitt foreldranna bjó annars staðar. Það er ljóst samkvæmt könnunum Mortens Nissen að hæfileikar barna til að aðlagast nýjum aðstæðum eru miklir og mun meiri en foreldranna. Ekki sunnu- dagspabba Það er mikilvægt að láta börn heimsækja hitt foreldr- anna til skiptis í miðri viku og um helgar. Það er ekkert snið- ugt að börn upplifi tíma sinn með til dæmis pabba sem „bíl- túr og ís“. Barnið á að fá að heimsækja föður sinn á vinnu- stað og fara með honum heim að loknum vinnudegi eða fara með í búðarferðina í föstudagsösinni. Annars er það bara mamma sem er á þönum, þreytt og stressuð í miðri viku. Börn vilja ekki láta koma ffam við sig eins og sjaldséða gesti. 4 Að barnið verði ekki látið velja hjá hvoru foreldr- anna það vill vera. 5 Að barnið verði fýrir eins lítilli röskun og unnt er varðandi búsetu, dagheimili, skóla, félagslega umgengni o.s.frv. 6 Að barnið hafi aðgang að báðum foreldrum eftir þörf- um (og öfúgt) og að barnið á- kveði smám saman í auknum mæli sjálft hjá hvorum aðilan- um það vill dvelja langdvölum. 7 Að barnið varðveiti áfram góð tengsl við fjölskyld- ur beggja foreldra, sérstaklega ömmur og afa. 8 Að foreldrarnir haldi börnunum utan við eigin deil- ur, tali ekki illa hvort um ann- að í þeirra eyru og noti þau ekki sem sendla eða njósnara. 9 Að ekki sé komið fram við barnið eins og fullorðinn einstakling eða því afhent fúll- orðinshlutverk, t.d. gagnvart yngri systkinum. 10 Að foreldrarnir stofhi ekki til nýrrar sambúðar án þess að undirbúa börnin fyrir hana. „Pegar fullorðnir rífast segjast þeir vera að rœða málin. Þeg- ar böm rceða málin segja full- orðnir að þau séu að rífast. “ Malene, 10 ára. 3.TBL 1990 VIKAN 23

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.