Vikan


Vikan - 13.07.1939, Blaðsíða 5

Vikan - 13.07.1939, Blaðsíða 5
Nr. 28, 1939 VIKAN 5 að var bjartur og hreinn júlímorgunn. Einn af hinum fögru, seiðþrungnu sumarmorgnum, þegar allt umhverfis mann kastar tötrum hversdagsleikans og klæðist guðvefum hinnar signandi sólar. Það er líka ys og þys á götum bæjar- ins, þótt klukkan sé enn ekki 6. Það er sem hin árrisula morgungyðja hafi seitt menn fram úr sængum sínum — eða lík- legast var það þó öllu fremur ferðaþráin. Laxfoss bíður albúinn að leggja frá landi, þegar maður kemur niður á upp- fyllingu. Menn skiptast á kveðjum: Vertu bless! Skemmtu þér vel! — gengur eins og bylgja yfir mannhafið. Maður heyrir líka aðvarandi móðurrödd hvísla: Farðu varlega, góða mín, — í fjöllunum. Guð fylgi þér! Landfestar eru leystar og Laxfoss mjak- ar sér hægt og þunglamalega frá landi. I gegnum vélarskröltið heyrir maður enn hin algengu kveðjuorð: Bless, mamma! Vertu bless! Og í gegnum sólvafið sumarið sitrar rödd móðurinnar: Guð fylgi þér! Guð fylgi ykkur öllum! — Að hugsa sér, að vera komin út á sjó! heyrist fagnandi konurödd segja. Hún horfir inn til strandarinnar, í áttina til Reykjavíkur. — Já, Reykjavík, þarna er hún greyið. En hvað húsin eru lítil! — Landakotskirkjan gnæfir ein, eins og klettur úr hafinu, máttug og sterk, til að hefja hug okkar til hins háleita og fagra, — til guðs. Hún kveður auga manns síð- ast af hinni íslenzku höfuðborg. Brátt er Borgarnes í augsýn, ákvörð- unarstaður Laxfoss. Á bryggjunni bíða bíl- arnir albúnir að taka farþegana, um leið og þeir stíga af skipsfjöl. Hér má fá far- kost vestur og norður, og eftir dálitla stund hafa bílarnir líka fengið sitt og bruna af stað. Við, sem ætlum vestur í Dali, höfum hinn velþekkta Brand að bifreiðarstjóra. Hann skilar okkur líka bráðlega inn í Dalasýslu. Okkur, sem förum þessa leið í fyrsta sinni, finnst heiti héraðsins sann- nefni. Hér tekur hver dalurinn við af öðr- um. Við athugum kortið og staðaheitin blasa við. Við lítum út og sjáum eitt býlið af öðru koma og hverfa eins og skugga- myndir á tjaldi. Bæjarnöfnin eru mörg og margvísleg, flest eru þau ný og framandi, skilja varla spor eftir í meðvitund okkar, — og við höfum það fyllilega á vitund- inni, að þau séu okkur óviðkomandi, enda má okkur einu gilda, hvort bærinn heitir heldur Hlíð eða Brekka. En hér eru líka staðarheiti, sem orka á hugina eins og töfrandi tónar lengst utan úr geimnum. — Órnefni, sem gefa hug- anum vængi til að fljúga með lengst aftur í gráa forneskju — Sauðafell, Hjarðarholt, Höskuldsstaðir, Laugar — eru nöfn, sem koma hjartanu til að slá örara. Sagan um örlög fólksins, sem gerði þessa staði fræga, rís sem bylgja úr djúpi hugans, — og það er dimmt og dapurt yfir þeim minning- um, — þrátt fyrir seiðandi sólskinið, sem þær eru framkallaðar í. — En hugurinn fær ekki lengi að reika um rökkurborgir horfinná alda. Veruleikinn — um nálægð sumars og sólar, og það, að á ákvörðunar- stað sé komið, — hrífur hugann aftur til hins bjarta dags. Ég er brátt umvafinn gestrisni Dala- fólksins íslenzka, afkomenda drottningar- innar, Auðar djúpúðgu. — Viðmót þess er falslaust og hlýtt, laust við tilgerð og stolt. Og þegar júlínóttin, höfug og hlý, breiðir sig yfir byggðina, líður fagnaðar- kennd um hug mér eins og barns, sem finnur gullið sitt eftir langa leit. — Hvað? Hefir hin sunnlenzka rigning virkilega leynst í ferðamal mínum ? er fyrsta hugsun mín, er ég opna augun dag- inn eftir. — En það er ímyndun ein, því bak við dimm og drungaleg ský sjást heið- ríkjublettir, sem spá góðu. Það er líka mikilsvert fyrir mig, sem ætla að njóta fegurðar og unaðar hinna íslenzku dala í dag.------ Unga stúlkan, sem ætlar að vera leið- sögumaður minn í dag, horfir sínum björtu, bláu augum til hins hækkandi dags. Hestarnir frýsa úti fyrir, svona til að minna á, að þeir séu til hvenær sem er. Við kveðjum fólkið og leggjum af stað. — Leiðin liggur út með Hvammsfirði — firðinum, sem liggur undir þeim þungu álögum, að þar skuli enginn fiskur hald- ast við, eða veiðast, fyrr en tuttugu skips- hafnir hafa farist í honum. Þetta eru álög konunnar, sem missti manninn sinn í sjóinn, fyrir mörgum öld- um síðan. — Þau eru stundum máttug orð konunnar.-------Nú er fjörðurinn sléttur svo það örlar varla á steini. Hvammur, bær Auðar! Hér er þá bær- inn hennar í skjóh hárra fjalla —- fyrir mynni Hvammsfjarðar, eða því sem næst. Hér nam hún staðar, konan, sem næstum því er einstæð í sögu þjóðar okkar, fyrir þrek og djörfung. Um landnám hennar leikur litlu minni æfintýraljómi, en um landnám Ingólfs Arnarsonar. — Mér finnst ég skilja Auði, þegar hún velur einmitt þennan stað fyrir bústað sinn. Það er eins og helgar vættir hafi leitt hana í hvamminn milli hárra og hrikalegra f jalla. — Þetta var hvammurinn hennar, lítið sjálfgert musteri, mótað af guði sjálfum í hið hrjúfa landslag, — veslings óhamingjusömu kon- unnar — sem látið hafði ástvini og fé fyrir bitrum skapanornum — en konunnar, sem átti sinn göfuga guð til að treysta á. Hvammur, hin guði vígða jörð, á sér langa sögu. Sú saga er samanofin flestum þeim skapeinkennum, sem kynslóðirnar hafa yfir að ráða. Yfir hinn fagra fjalla- hvamm hafa svifið veðrabrigði hinna góðu og vondu hvata mannssálarinnar — en „Unnarsteinninn“ í flæðarmáli Hvamms- fjarðar, þar sem Auður hvílir, mun um allar ókomnar aldir, vitna um dýrsta þátt mannssálarinnar — guðstrúna. En áfram er haldið. — Leið okkar ligg- ur út með Hvammsfirði norðanverðum, svo nefnda Fellsströnd. Við förum fast með sjónum. Það er svo gaman að sjá litlu bár- urnar leika sér í fjöruborðinu — sjá þær teygja sig upp til blómanna, sem hafa hætt sér fram á yztu nafir, til þess að njóta sem bezt þunglyndislegra söngva hafmeyjanna. — Hestarnir eru viljugir, enda er vegur- inn greiðfær. Það veitir heldur ekki af að spretta úr spori, því út á Ytra-Fell er ferð- inni heitið. Landslagið, sem leið okkar liggur um, er hrikalegt og fagurt í senn. Há og hrika- leg f jöll, víða skógivaxin að efstu brúnum, fléttuð silfurtærum strengjum hlaupandi lækja. Eða fagrir og gróðursælir hvamm- ar í algrónu hrauni. Örnefnin koma eitt af öðru eins og óvé- fengjanlegt vitni um óskráða sögu. Flest hljóma þau eins og létt og liðlegt fótatak fram í göngum horfinna alda, þó eru önn- ur þung og dapurleg eins og haustnóttin. — Hér er Staðarfell. Eitt' af okkar nú- tíma nunnuklaustrum, með meistaralega umgjörð: skógi vaxnar hlíðar og hið bláa haf. — En skógurinn sem umvefur Stað- arfell, er leiðinleg sönnun um hirðuleysi Islendinga. Staðarfellsskógurinn mun vera einn með fegurri skógum hér á landi; en algjört hirðuleysi verður sennilega ekki lengi að breyta honum í lélegt kjarr — gróðurlítil moldarbörð — uppblásið land — örfoka Framh. á bls. 20.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.