Vikan


Vikan - 13.07.1939, Page 17

Vikan - 13.07.1939, Page 17
Nr. 28, 1939 VIKAN 17 Hvít, titrandi snæbreiða allt í kring, svo langt, sem augað eygir. Og mitt í þessari miklu auðn er mað- ur á ferð, — einn maður, á gömlum, slitn- um skíðum með úreltu lagi, með langan broddstaf, sem hann tvíhendir að gömlum sið. Álútur heldur hann áfram jafnt og við- stöðulaust eins og hann hafi engan tíma til að nema staðar, ekki svo mikið sem til þess að kasta mæðinni fáein andartök. Ef til vill er einhver veikur heima og hann er að sækja lækni eða yfirsetukonu, ef til vill er það eitthvað annað, sem rekur á eftir honum. Kann- ske er hann ekkert að flýta sér, hjá sum- um mönnum er það bara vani að flýta sér alltaf eins og lífið liggi við. Það er snemma morguns og tæplega fullbjart enn þá þó að komið sé fram í mið-góu. Gráhvítur himinninn rennur sam- an við snæþakta jörðina. í hálfbirtu morg- unsins er það mannlegu auga ofvaxið að greina takmörk himins og jarðar. Allt rennur saman í eitt, sem hvort tveggja í senn virðist endalaust og þó umlykja ferðamanninn, — ásækja hann, svo að hann hraðar ósjálfrátt ferð sinni undan einhverju, sem hann veit ekki hvað er. En hver er hann þessi maður, sem held- ur svona viðstöðulaust áfram ferð sinni yfir fannbreiðurnar ? Hvert skyldi hann ætla og hverra erinda svona snemma dags ? Maðurinn heitir Jónas Þorsteinsson bóndi á Bergsstöðum og hann er á leið í kaupstaðinn. Leiðin er löng og hann ætlar sér að ná heim um kvöldið. Hann má þess vegna ekki gefa sér tíma til þess að nema staðar í öðru hverju spori. Því aðeins getur það tekist, að hann haldi viðstöðulaust áfram og skíðafærið og góða veðrið haldist óbreytt. Undanfarnar vikur hefir tíðarfar- ið verið meinlega ótryggt, snjónum kyngt látlaust niður svo að nú sést ekki steinn upp úr hvað þá meira. En í nokkra daga hefir veðrið verið sæmi- lega bjart og stillt. Vonandi vissi það á breytingu til batnaðar. Bændurnir voru farnir að mæla heybirgðirnar hugsandi. Þær endast ekki lengi ef harðindin hald- ast. — Þrátt fyrir heyleysi og horfelli ár eftir ár öldum saman, kunna íslenzkir bændur ekki enn þá að mæta reglulegum fimbulvetri og sennilega verður þess langt að bíða að þeim lærist það að fullu. Þegar hríðargangurinn fer hamförum yfir landið, viku eftir viku og jafnvel mán- uð eftir mánuð, og allar skepnur standa inni á gjöf, verður mörgum bóndanum þungt í huga. En strax og rofar til, og sól- in skín, birtir í sál hans og hann eygir ótal leiðir og möguleika þar, sem öll sund virt- ust lokuð. Þá brjótast menn með hesta og sleða yfir snæbreiðurnar til þess að sækja björg handa mönnum og skepnum. I skemmum og kjöllurum sveitabæjanna rísa upp hlaðar af fóðurbæti, svo að hægt sé að spara heyin, en öll þessi feikn af fóður- bæti kosta ógrynni fjár, miðað við kaup- getu bóndans. En samt er þetta eina leiðin þegar fóðurskortur vofir yfir. Skepnunum verður að bjarga. Verði fellir er úti um allt. En þegar batinn kemur er öllu and- streymi lokið — í bráð, og sveitabóndinn fyllist fögnuði og bjartsýni. Það er hvort- tveggja í senn blessun hans og bölvun hvort hann er fljótur að gleyma þvi illa, því að strax næsta haust teflir hann á VIXIIIIII Smásaga eftir Sigurð Róbertsson. tæpasta vaðið með ásetninginn eins og hann hefir gert á hverju hausti allan sinn búskap, og eins og forfeður hans hafa gert um fleiri aldir. — Þessar og þvílíkar hugsanir brjótast um í höfði Jónasar. Hann hrukkar ennið og svipur hans er þungbúinn, þó þarf hann ekki að kvíða heyleysi. Hann er einn af þeim sárfáu, sem eiga nóg fyrir sig, því að, sem betur fer, eru ekki allir undir sömu sökina seldir. En útlitið í heild er ljótt og það er erfitt að neita þeim um hjálp, sem þegar eru komnir á vonarvöl. Nei, það er ekki fóðurskortur, sem ligg- ur honum þyngst á huga, heldur er það þessi bölvaður víxill, sem kom yfir hann eins og reiðarslag og kollvarpaði öllum hans framtíðardraumum og vonum í einu vetfangi. Þúsund krónur, þúsund krónur. Hann endurtekur þessi orð með sjálfum sér um leið og hann herðir gönguna enn meir og horfir mót hækkandi degi. Þúsund krón- ur er geysimikil upphæð og þessa upphæð verður hann að greiða, hvort sem honum er ljúft eða leitt, og þó hafði hann ekki haft neinn hagnað af þessum þúsund krón- um, síður en svo. Ekki hafði hann stofnað til þeirrar skuldar. En það, sem honum svíður jafnvel sár- ast, er það, að öll þessi ógæfa á beinlínis rót sína að rekja til þess ósiðar að setja á guð og gaddinn, sem kallað er. Hefði Gunn- ar á Læk gætt þess að setja ekki fleira á, en hann gat tryggt nægilegt fóður, hefði allt getað farið vel. Raunar mátti hann sjálfum sér um kenna, að nokkru leyti, hann hafði verið of auðtrúa þegar hann í fyrstu skrifaði nafn sitt á þennan bölvað- an víxil. Jónas er búinn að búa á Bergsstöðum í fimm ár. Tengdaforeldrar hans höfðu bú- ið þar á undan honum allan sinn búskap. Þegar Jónas giftist Ástu dóttur þeirra hættu þau og seldu jörðina og búið í hend- ur ungu hjónunum. Bergsstaðir var gæðakot, en þar biðu, eins og svo víða annars staðar, mörg óleyst og aðkallandi verkefni. En Jónas var áhugasamur og starfsþrek hans óbilandi, svo að þegar hann nú leit til baka yfir fimm ára búskaparferil varð hann að vísu að kannast við að mikið væri enn þá ógert. En þó gat hann, og það með töluverðu stolti, litið yfir margt, og það jafnvel ótrú- lega margt, sem honum hafði áunnist til þess að bæta jörðina. Jónas var greiðvikinn og hjálpsamur. Þess vegna fékk hann sig ekki til þess að neita Gunnari á Læk um að skrifa á eitt þúsund króna víxil. Ábekingur hans var líka sæmilega stæður og áreiðanlegur mað- ur. Gunnar hafði líka lag á því að haga beiðninni þannig að erfitt var að neita. Peningunum ætlaði hann að verja til þess að auka búskapinn. Hann gat fengið keyptar ær fyrir gjaf- verð, ef hann borgaði þær út í hönd. Það var viss gróði og Jónas lét tilleiðast. Hann vildi ekki verða til þess að Gunnar missti af þessu einstaka tækifæri til þess að bæta afkomu sína. En gróði Gunnar á ærkaupunum varð minni en hann hafði látið í veðri vaka, eða búist við. Kjötið féll í verði. Svo bættust við ýmis ófyrirsjáanleg óhöpp: illar heimt- ur, vanhöld allskonar og margt, margt fleira. Lánið varð því að framlengja, því að það var ekki meira en svo að hann gæti borgað vexti. Svo bættist það við, að hinn ábyrgðarmaðurinn heltist úr lestinni og það án þess að Jónas vissi um fyrr en um seinan. Nú var svo komið að Gunnar var kom- inn í þrot. Heylaus og allslaus, ekkert nema skuldir og allt marg veðsett. Og nú krafði bankinn Jónas um greiðslu á þess- um þúsund krónum, því að hjá Gunnari var ekkert að hafa, og nú var hann á leiðinni í kaupstaðinn til þess að semja um greiðslu á skuldinni ef unnt væri. Hann gat ekki greitt hana alla í einu nema með því móti að skerða bústofninn svo tilfinnanlega að það tæki hann mörg ár að rétta við aftur, og auðvitað ekki að tala um neinar fram- kvæmdir. Jónas kreppti hnefana utan um skíða- stafinn. Það er hart að verða að gjalda þess hvað aðrir eru kærulausir með að tryggja búfé sínu nægilegt fóður, eins og t. d. Gunnar á Læk, og stofna bæði því og sjálfum sér í bersýnilegan voða, og þó er búféð einasta bjargræði bóndans og á því verður hann að byggja framtíð sína og sinna. — Laust fyrir hádegi kom Jónas í kaup- staðinn. Fyrst lauk hann af ýmsum smá- erindum, því að bankinn var ekki opnaður fyrr en klukkan eitt. Þegar þangað kom varð hann að bíða góða stund, því að nokkrir voru komnir á undan honum, en loksins kom röðin að

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.