Vikan - 15.12.1949, Page 17
Jólablað Vikunnar 1949
17
Borgin Annecy í Prakklandi gaf
nýlega Jeanne d’ Arc-klukku eina
söfnuði nokkrum í New York. Spell-
man kardínáli veitti gjöfinni viðtöku
ásamt Vincent Impelitteri, borgar-
stjóra.
Islenzk börn eiga sennilega illt með að trúa því, að til séu víða um heim
jafnaldrar þeirra, sem aldrei hafa séð snjó. En þessu er samt svo farið.
.— Þessi börn, sem eiga heima í Wyoming í Bandaríkjunum búa sér til
snjókerlingu úr fyrsta snjónum, sem þau sjá falla þar i landi sínu.
Þessi gömlu hjón hafa lifað í hamingjusömu hjónabandi 70 ár. En það
er raunar ekki það merkilegasta, heldur hitt, að þau eru há-amerísk að
ætt og hafa alið allan aldur sinn í nágrenni Hollywood, sem þótt hefur
lengi ein helzta gróðrarstía hjónaskilnaða og frjálsrá ásta! En gömlu
hjónin giftu sig líka árið 1879!
Náunginn, sem hér sést á myndinni, er þekktur knattspyrnumaður í
Vesturheimi, Dom DiMaggio að nafni, og var myndin tekin, er hann var
að aka úr kirkjunni með brúði sína. Góðir knattspyrnumenn eru mjög
í hávegum hafðir víða erlendis meðal alþýðu manna.
Þegar Pandit Nehru forsætisráð-
herra á Indlandi var á ferð í New
York í haust, hélt indverski sendi-
herrann veizlu honum til heiðurs í
Waldorf-Astoria-hótelinu. Til veizl-
unnar var boðið mörgu stórmenni.
m. a. Visinski utanríkismálaráðherra
Rússa, sem jafnan situr þing Sam-
■einuðu þjóðanna.
Rex Stewart leikur á tröppum
Chailoot-hallarinnar í París.
Rita Hayworth situr þarna á skinnklæddum sleða uppi á regin-
fjöllum í Sviss. Aly Khan, maður hennar, snýr baki að myndavélinni.