Vikan


Vikan - 15.12.1949, Blaðsíða 37

Vikan - 15.12.1949, Blaðsíða 37
Jólablað Vikunnar 1949 37 :.... Framhaldssaga: ......................................... LEIKUR ÖRLAGAIMNA | 20 Eftir HERMÍNU BLACK ........■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■...■■■■■■...■■■■■■■■■■■■•.......■■■•■.......■>■■.•■>■■■■■■■■■••■•■ „Getið þér ekki séð, hvað þér eigið að gera? Þér eruð ekki brjálaður, Rosslyn ?“ „Nei, það vona ég ekki.“ „Jæja, — lítið þá skynsamlega á málið." Sir Hugh hafði staðið upp og stóð við arininn. „Þér eigið aðeins um eitt að velja. Lissa Grey getur ekki hjálpáð yður, en mig grunar, að til sé ann- ar, sem getur það.“ „Hvað eigið þér við?“ spurði Garth. „Þegar ég las frásögnina af réttarhöldunum, gat ég mér til, að sá, sem sökina ætti, væri ekki dáinn. Er það rétt?“ Garth hikaði. „Já, en — —“ „Vitið þér, hver hann er?“ „Og ef ég veit það -— ?“ ,,Þá verðið þér að fá hann til að gefa sig fram og taka sjálfan afleiðingunum af gerðum sín- um.“ • Þögn varð í stofunni. Garth stóð upp og gekk út að glugganum og horfði út. Nú að lokum sá hann þetta allt greinilega fyrir sér, og hann böly- aði heimsku sinni, sem hafði fengið hann til að vernda Tony. Hér var ekki einungis um að ræða gott nafn hans sjálfs, heiður hans, heldur allt lífsstarf hans og — mikilvægara en allt annað ■— Hamingju Nödu! Sir Hugh hafði rétt fyrir sér. Hinn seki varð sjálfur að taka afleiðingun- um. „Ég er sammála yður, Sir Hugh,“ sagði hann og gekk til hans, en því miður eru ■— vissar á- stæður, sem gera þetta mjög erfitt. Ég hef gefið loforð mitt —“ „Þá verðið þér að brjóta það,“ sagði Sir Hugh ákveðinn. „Og, Rosslyn — hversu erfitt, sem þetta verður fyrir yður, þá skuluð þér vita, að ég stend bak við yður, og að þér getið treyst hjálp minni. En því miður held ég, að Bulverton hafi aldrei getað þolað yður.“ „Ég held það lika,“ sagði Garth. „Nú er það starf yðar sem um er að ræða, vin- ur minn — móti loforði, sem aldrei hefði átt að gefa, og sem ég er viss um, að unga. stúlkan m'undi leysa yður frá, ef hún gæti.“ Garth stóð grafkyrr. Ef aðeins væri um að ræða loforð, sem hann gaf látinni manneskju! En hann hafði gefið lifandi manni loforð sitt, og ekki var liklegt, að þessi maður myndi lita á málið frá hans sjónarmiði. Hann og Tony — og Bulverton lávarður, sem endilega vildi eyðileggja annan þeirra. Það var andstyggileg hugsun, að það væri starfferill hans á móti starfsferli frænda hans. En nú var einnig um Nödu að ræða! Smán hans mundi kremja hjarta hennar. Ó, hamingjan góða, hvað lifið var hræðileg flókið. „Stjórnin heldur fund aftur eftir viku,“ ^agði Sir Hugh. ,,Ég veit ekki, hvað komið getur fyr- ' ir á þessari viku, og hvernig sem ffer, vil ég ráð- leggja þér að nota tímann vel.“ „Það ætla ég að gera, ef ég get,“ sagði Garth. „Og þúsund þakkir, Sir Hugh. Þér hafið reynzt mér sannur vinur.“ » 18. KAPLI. Þegar Garth eftir samtal sitt við Sir Hugh fór heim í Harley Street, hugsaði hann um að- stöðu sína. Hann vissi, að fyrr eða síðar mundi hann þurfa að sæta dómi sjúkrahússstjórnarinn- ar og —- augum heimsins mundi hann, Rosslyn, vera glæpamaður. Ef Tony ekki viðurkennir, þá verður að neyða hann til að sjá þetta í réttu ljósi! Sir Hugh gat verið mjög strangur. Jafnvel Bulverton lávarður mundi hugsa sig um tvisvar áður en hann ákvæði að berjast á móti þessum fræga sérfræðingi. En Gatth vissi alveg eins vel og Sir Hugh, að ekkert gat hjálpað honum. Þegar hann gaf Tony loforð sitt, hafði honum aldrei til hugar komið, að dauði Lissu hefði annað í för með sér en nokkurra daga umtal í héraðinu, þar sem þetta kom fyrir og ef til vill grein í blaðinu þar á staðnum. En nú vissi hann, að vonlaust mundi fyrir hann að reyna að halda loforð sitt, og þessi hugs- un var honum mjög erfið, þar eð hann hafði aldrei á ævi sinni brotið loforð sitt. Hann hafði engan tima til að fara til Tony nú, en á leið- inni upp gekk hann inn í lækningastofu sína og hringdi í Tony. „Það er Garth,“ sagði hann, þegar Tony svar- aði. „Það gleður mig að þú varst heima. Held- urðu, að þú gætir komið og talað við mig um klukkan hálfníu ?“ „Ég fer til Brighton í kvöld,“ var svarið. „En — já, ég held ég geti komið. Hv'að er nú að?“ „Það get ég ekki sagt í símann,“ sagði Garth. „Það mun taka alltof langan tíma að útskýra það.“ „Klukkan hálfníu. Þetta er mjög leyndardóms- fullt. Ég vona, að það séu ekki nýir erfiðleik- ar.“ „Ég skal segja þér það, þegar þú kemur. Mér leiðist að þurfa að gera þér þetta ónæði.“ Tony hló. „Minnstu ekki á það, góði frændi minn. Klukk_ an hálfníu." Garth hefði viljað heldur, að Tony kærni ekki þangað heim, en — einkum vegna þess, að hann ætlaði að fara í burtu, var þetta óhjákvæmilegt. Við kvöldverðinn sagði hann vúð Nödu. „Tony kemur í kvöld. Ég þarf að tala við hann. „Tony!“ hrópaði Nada forviða. ,Já, elskan. Hann fer i kvöld í burtu og ég veit ekki hve lengi hann verður burtu — en ég verð nauðsynlega að tala við hann, áður en hann fer af stað, og ég verð að vera heima, af því að ég á von á hringingu." ,,Ég vil ekki hitta hann, Garth," flýtti Nada sér að segja. „Þú þarft þess heldur ekki. Ég hef þegar beð- ið Annie að vísa honum inn á skrifstofu mina -----“ hann þagnaði, þegar Annie kom inn. Nödu þótti mjög fyrir þvi, að Tony skyldi ætla að koma. Hún hafði vorkennt honum — þrátt fyrir reiði sína — áður en Garth hafði kom- ið um kvöldið, í litla sumarhúsið, en henni var ljóst, að hún hafði þá séð Tony betur en hún nokkru sinni mundi sjá hann — ef til vill vegna þess, að hún bar engar tilfinningar í brjósti til hans lengur. Klukkan var næstum átta, er þau höfðu lok- ið við að snæða kvöldverð, og þau ætluðu að fara að drekka kaffið, þegar Annie tilkynnti, að hr. Hammerton væri kominn. Þegar Annie fór út úr skrifstofunni, fór Garth á eftir henni, en áður en hann lokaði dyrunum, sneri diann sér við og tók Nödu í faðm sér. „Elskan mín — ég lofa þér — ég skal ljúka við þetta eins fljótt og ég get,“ sagði hann, kyssti hana og fór síðan. Þegar hann kom inn í vinnustofu sína, stóð Tony við arininn og sneri andUtinu að dyrunum. Garth stóð kyrr, óttasleginn yfir útliti Tonys. „Hvernig hefurðu farið með þig?“ hrópaði hann. „Þú lítur hræðilega út.“ „Mér líður ágætlega," sagði Tony óþolinmóð- ur. „Ég hef hræðilegan höfuðverk, annað er það ekki. Þetta andstyggilega veður er alveg að gera út af við mig.“ „Ég skal láta þig fá eitthvað við þessum höfuð- verk,“ sagði Garth. „Nei, þakka þér fyrir! Mér er að batna, og ég get ekki þolað meðul. Hvað gengur að? Hef- urðu ekki nógu marga til að lækna?" Garth þekkti hann frá fornu fari sem erfiðan sjúkling og yppti því aðeins öxlum. „Eins og þú vilt.“ „Jæja?“ sagði Tony svo. „Þú hefur varla sent boð eftir mér, til að spyrja mig umu heilsu mina, býst ég við.“ „Nei, það hef ég ekki.“ Garth settist v.ið skrif- borðið og Tony settist í hægindastól. „Mér þykir það leitt, en því miður hafa orðið vandræði, sem gerir mér ókleift að halda nafni þínu utan við Lissu Grey.“ Tony rétti úr sér. „Hvað? — Ég hélt, að það mál væri úr sög- unni!“ „Ég verð að segja, að ég hélt það einnig," sagði Garth þurrlega. Og svo sagði hann honum í stuttu máli frá því, sem Sir Hugh hafði sagL Andlit Tonys varð dökkt af bræði, er hann hlustaði. Og að lokum mótmælti hann: „Ég hef aldrei heyrt annað eins þvaður! Hvers konar kjaftakerlingar eru í þessari stjórn? Hlusta á þorpsþvaður og nafnlaus bréf! En staða þín er nógu sterk til að koma þessu i lag,“ „Ég er hræddur um, að ég geti það ekki," sagði Garth. „Auðvitað hafa þeir engar raun- verulegar sannanir gegn mér. Auk þess getur sjúkrahúsið ekki skellt skollaeyrunum við hneyksltnu, sem einn af fremstu læknum þess er flæktur í.“ „En fjandinn sjálfur," hrópaði Tony. „Maður skyldi ætla, að sjúkrahúsið hefði keypt þig og einkalíf þitt. Hvaða rétt hafa þeir til að skipta sér af þínum einkamálum?" „Það hættir að vera einkamál á því augna- bliki, sem óviðkomandi manneskja segir, að ekki sé hægt að trúa lækni fyrir kvensjúklingum, sem séu hjá honum," sagði Garth þolinmóður. „Það neyðir stjórnina til að taka ákvörðun — annaðhvort verður hún að rannsaka málið til hlítar, eða hún verður að segja mér að biðjast lausnar. Svo að þú skilur — ég er hræddur um, að eitthvað áhrifamikið verði að gerast." „Og hvað hefurðu hugsað þér að gera? Selja Illustrated Record sömu söguna?“ Einkennileg- urhljómur var í rödd Tonys. „Nei," svaraði Garth. „Ég hefi i huga að biðja þig að fara til Sir Hugh Carruthers — ef til vill koma fram fyrir stjórnina og segja þeim hrein skilningslega alla söguna." „Jæja!“ Tony stóð upp, gekk að arninum og

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.