Vikan


Vikan - 15.12.1949, Blaðsíða 19

Vikan - 15.12.1949, Blaðsíða 19
Jólablað Vikunnar 1949 19 BRÉFASAI\IBÖI\ID Sjá bis. 6. Hildigunnur Þorsteinsdóttir, Fanney Egilsdóttir (við pilta eða Þórunn Steindórsdóttir1, Elísabet Kristjánsdóttir, Margrét Haraldsdóttir (við pilta eða stúlkur 18—22 ára, mynd fylgi), allar Húsamæðraskólanum, Blönduósi, A.-Hún. Anna Ólafsdóttir (við pilt 18—20 ára, skolhærðan eða ljóshærðan) Kleppjárnsreylcjum, Borgarfirði. <Juðbjörg Sigfúsdóttir (við pilta eða stúlkur 18—22 ára), Þorbjörn Sigfússon (við pilta eða stúlkur 15—17 ára), bæði Stóru- Hvalsá, Hrútarfirði, Strandasýslu. Gísli Guðbrandsson og Þórður Einarsson (við stúlkur 16— 20 ára), báðir á Héraðsskólanum Reykholti, Borgarfirði. Hjálmar Friðriksson (við stúlkur allt frá tvítugu, mjög æskilegt að mynd fýlgi), ■Ólafur Jóhannsson (við stúlkur þri- tugar og eldri, mynd fylgi), báðir að Miðkoti, Þykkvabæ, Rangár- vallasýslu. Ársæll Markússon (við stúlkur 25 ára og eldriýnauðsynlegt að mynd fylgi), til heimilis að Dísukoti í Þykkvabæ, Rangárvallasýslu. Úr ýmsum áttum — Þegar Japanir voru að búa sig und- ir striðið, þótti það hin mesta dyggð að vera illa til fara og gengu ráð- herrarnir á undan rpeð góðu for- dæmi. , , , Yngsti sundmaðufi heimsins er átta mánaða drengur í Ástralíu. Faðir hans er vitavörður og fór móðir hans í fyrsta skipti með hann í sjóinn með sér þegar hann var þriggja mánaða. ! ! ! Þegar Benjamín Franklin fann upp •eldingavarann árið 1750, ásökuðu klerkar hann um að hann væri að reyna að koma í veg fyrir refsingar guðs. ! ! ! Það er skaðlegt fyrir manninn að ganga uppréttur! Við erum þannig sköpuð að við eigum að ganga á f jór- um fótum! Mannfræðingar og lækn- ar eru sammála um þetta. Þeir segja að innýflum okkar sé þannig háttað, að þau eigi að vera í láréttri en ekki lóðréttri stöðu. Og þeir spá því, að ef við höldum áfram að ganga á flðt- um fætinum, eins og við gerum, þá hverfi litla táin með tímanum. ; ; i Á heitum sumardögum gufar upp 25 m’ á sek. úr sænska vatninu Siljan. ! ! ! Snillingurinn Jascha Heifetz hefur síðan hann var sjö ára, leikið í 90,000 klukkustundir á fiðlu (en það eru tveir fimmtu hlutar þess tíma, sem hann hefur verið vakandi). Er hann ákafur tennisleikari eins og Menuhin, Milstein og Kreisler. ! ! ! Rússar hafa ákveðið að hefja framleiðslu á húsgögnum úr pappír. stúlkur 20—25 ára), Skarði, Þykkvabæ, Rangárvallasýslu. Kristrún Sigurðardóttir (við pilta eða stúlkur 20—25 ára), Börgartúni, Þykkvabæ, Rangárvallasýslu. Stefán Jóhannesson (við stúlkur 15— 17 ára, mynd fylgi), Bjarni Sigurðsson (við stúlkur 14— 17 ára, mynd fylgi), báðir á I- þróttaskólanum í Haukadal, Bisk- upstungum, Árnessýslu. Eftirtaldir menn óska eftir bréfa- samböndum við stúlkur 16—18 ára: Einar Eybert, Gylfi Jónsson, Sigmundur Magnússon, Jóhann Guðmundsson, Haukur Sveinbjörnsson, allir á bændaskólanum á Hvann- eyri í Borgarfirði. María Gísladóttir (við pilt 13—14 ára, æskilegt að mynd fylgi), Hamraendum, Hraunhreppi, Mýra- sýslu. Jónína Árnadóttir (við pilt 30—40 ára), Hamraendum, Hraunhreppi, Mýrasýslu. Guðmundur Bjarnason (við stúikur 14—16 ára, æskilegt að mynd fylgi), Hamraendum, Hraunhreppi, Mýrasýslu. Skolppípur, úr, föt, vagnhjól, teppi og herskip hafa menn búið til úr pappír. ; ; i 1 Chicago átti að byggja hús með 159 íbúðum. 158 baðkör var komið með á staðinn. Næsta morgun voru þau öll horfin. Unga friiin hjá geðveikralækninum. „Hann hvorki reykir, drekkur né spilar fjárhættuspil, — en hann vill ekki stoppa í sokka, þvo upp leirinn eða liggja í gólfunum." „Þú varst jólasveinninn á barna ballinu, það er auðséð." Parisarstúlkur hafa mikið dálæti á loðhundum, þvi að þá er hægt að klippa þannig, sem bezt fer við nýj- ustu tízku. Þær láta einnig lita feld hundsins, svo að hann fari vel við Það er stranglega bannað i Kína að rífa sundur áletruð blöð. Kínverj- ar læra frá barnæsku að bera virð- ingu fyrir því, sem skrifað er. 1 hverjum bæ eða þorpi er hof, þar sem brenna má prentuð blöð eða handrit. ! ! ! Kúlusveppurinn, sem er einna ljúf- fengasti sveppurinn, vex niðri í jörð- inni og eiga hundar hægast með að finna hann. 1 Italíu er haldinn vörð- ur um staði, þar sem mikið vex af kúlusveppunum, en samt er mikið um þjófnaði á sveppunum. Þjófarnir senda þá hunda inn á svæðin, sem eru þjálfaðir i að grafa sveppina upp. ! ! ! Meðalhæð veðreiðahesta hefur auk- izt um 22,3 cm á síðustu 200 árum. Flöskuskeyti, er sent var 23. sept. 1826 frá skipi, sem var statt miðja vegu milli Ameríku og Evrópu, fannst við Frakklandsstrendur 15. júní 1842 — eða nær 16 árum síðar. ; ; ; Napoleon var fyrstur til þess að veita frönskum hermönnum heiðurs- merki fyrir hugprýði. Áður hafði verið siður að veita mönnum góð vopn eða verjur. j ; ; Italskur kaupmaður á 16. öld ákvað að fara fótgangandi til lands- ins helga, og til að gera förina sér- lega merkilega gekk hann þrjú skref ' aftur á bak við hver f jögur, sem hann gekk áfram. Og til Jerusalem komst hann heill á húfi. Katrínu af Medici fannst þetta svo athyglisvert uppá- tæki, að hún aðlaði kaupmanninn. ! ! ! Menn, sem eru „vínsmakkarar" að atvinnu drekka ekki vínin til þess að dæma um gæði þeirra, heldur nota þeir ilmanina. „Bölvaður sóði ertu, maður! Þú ert með blöð frá fyrri viku. Skiptirðu aldrei á rúminu?“ Nú geta menn fylgzt með þróun og vexti unganna í eggjunum með berum augum. Tveir lífeðlisfræðingar hafa fundið upp að brjóta smá auga á eggin án þess þó að skaða himn- urnar. ! ! ! „Kokkteil" er engin ,,nýmóðins“ uppfundning. Þegar á 15. öld voru bornar með mat i stórum veizlum drykkjarblöndur, sem þannig voru blandaðar: rauðvtn, koníak, pipar, engifer, nellikur, ambra og moskus. 1 1 1 Það hafa fundizt upp í 180 perlur í einni ostru. 1 október 1929 kafaði pérlukafari í Persaflóa og kom upp með feg- urstu perlu, sem fundizt hafði síðan 1850. Var hún metin á eina miljón króna. ; ; j Charles Darwin óskaði þess í fúl- ustu alvöru, að sett yrðu lög, sem bönnuðu skáldum að láta sögur sin- ar „enda illa“. ; ; ; Mazarin kardlnáli, hinn frægi stjórnmálamaður, hélt því fram, að hann væri túlípani og skipaði þjón- um sínum að vökva sig.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.