Vikan - 15.12.1949, Side 38
38
FELUMYND
Finnið þið karlmann á myndinni?
\
starði brúnaþungur fram fyrir sig. Undarlegt, að
honum skyldi nú fyrst verða Ijóst, að hann hataði
Garth. Hann hafði vitað, að hann var hræðilega
afbrýðisamur út í Garth, reiður honum, leiður
á honum — en hann hafði aldrei fyrr grunað, að
hann hataði þann mann, sem — eins og hann
alltaf hélt fram — hafði tekið Nödu frá honum
með svona óstjórnlegu hatri.
Að lokum heppnaðist honum með erfiðleikum
að svara:
,,Já, þetta gæti allt verið ágætt, en það er
nú ekki eins auðvelt og það lítur út fyrir. Segj-
um nú, að ég færi og segði þessa sögu, — ert
þú þá alveg viss um, að fólk mundi trúa henni?“
„Hvað áttu við?" Garth hafði staðið upp, og
þegar Tony sneri sér við, stóðu þeir augliti til
auglitis hvor við annan.
„Jæja, — þú ert í mjög slæmri aðstöðu, og
mér er ljóst, að þú ert látinn þola vegna þess,
sem þú hefur ekki gert. Ég viðurkenni, að ábyrgð-
in á Lissu sé mín, og að þú, þegar þú vissir það,
tókst að þér að sjá um hana. Þetta fólk er ef-
laust mjög auðtrúa, en é g mundi aldrei trúa
slíkri sögu, og — þú hefur alls engar sannanir
fyrir því, að hún sé sönn.“
„Þetta er hlægilegt," sagði Garth. „Fólk, sem
þekkir mig mun vita, að ég tilheyri ekki þeim,
sem fela sig bak við aðra — eða fengi þig til að
taka söknia á þig til að verja mig sjálfan. Ef
það er það, sem þú heldur, að það muni halda.“
Eitthvað við þessi rólegu orð hafði mikil áhrif
á Tony, enda þótt Garth, hvorki beint eða óbeint
hefði komið með neina ásökun á hendur honum.
Hann eldroðnaði.
„Jæja, ég hugsa, að þú munir það, sem ég
sagði þér um Bulverton ?“
„Hef ég ekki gert þér ljóst, að Bulverton hefur
mikið að segja í þessu máli?“ spurði Garth
óþolinmóður.
„Og heldur þú, að minnstu líkur væru fyrir
því, að hann styrkti flug mitt, ef ég kæmi fram
og segði, að ég væri hinn seki ? Fái hann að
vita það, hættir hann við allt."
„Jæja, þá geturðu fengið einhvern annan til
að styðja þig fjárhagslega," sagði Garth.
„Það get ég ekki. Ég er búinn að vera, ef
hann bregzt."
„Mér þykir það leitt, Tony,“ sagði Garth ró-
lega, ,,en ég er hræddur um, að engin önnur
leið sé fyrir höndum. Ég get ekki haldið loforð
mitt.“
Tony beit á vörina.
„Heyrðu, Garth. Innan tíu daga fer ég, og
þegar ég er kominn af stað, getur Bulverton
ekki hætt við það. Þú mátt þá segja það, sem
þú vilt.“
„Mér þykir það leitt, en það verður of seint
Þetta mál á að útkljá í þessari viku.“
„Heyrðu nú, Garth," — Tony lét skyndilega
grímuna falla — „þú skalt ekki halda, að ég hafi
í huga að eyðileggja alla mína framtíð, aðeins
vegna þess að þú vilt eyða því, sem eftir er ævi
þinnar í að gera þig að fífli vegna hálfvita á
sjúkrahúsi, þegar þú ,— eins og ég þegar h e f
sagt þér — gætir unnið helmingi meiri peninga,
ef þú starfaðir alveg sjálfstætt. Þó að þeii* reki
þig, ert þú ekki búinn að vera. Þegar allt kem-
ur til alls, hefur þú sjálfur komið þér í þetta
mál, af því að þú gazt ekki annað en skipt þér
af mínum einkamálum, og svo heimtar þú, að
ég — núna, á óþægilegasta augnabliki — taki á
mig ábyrgðina?"
„Þú neyðist til þess," sagði Garth ákveðinn.
„Hamingjan góða, Tony, þú talar um, að ég yfir-
gefi sjúkrahúsið. Það er engin leið til að útskýra
fyrir þér, hvað það myndi þýða fyrir mig. En
jafnvel þótt ég væri fús til að sjá allt lífsstarf
mitt bókstaflega hrifsað frá mér — hvað þá
um Nödu? Heldur þú, að ég geti rólegur horft
á, að það nafn, sem hún hefur gert mér þann
heiður að bera, verði atað í hneyklisfor? Bíddu
augnablik! Þegar ég lofaði þér, að koma þér út
úr þessu, grunaði mig ekki, hvað þetta Ioforð
mundi kosta mig. En þar eð þetta er komíð fyrir,
álít ég mig lausan við loforðið, hversu óþægilegt
sem það kann að vera fyrir þig. Svo að ef þú
segir ekki sjálfur sannleikann, er ég hræddur
um, að ég verði neyddur til þess."
Tony beit á jaxlinn.
„Þú getur álitið þig lausan við Ioforðið um
leið og ég er lagður af stað, en ef þú reynir að
láta Búlverton komast að þessu, þá segi ég, að
þú skjótir skuldinni á mig til að forða sjálfum
þér. Og hvernig heldurðu að Nada muni líta
á það?"
Augnablik varð dauðaþögn. Garth var alveg
lamaður. Honum fannst hann ekki hafa getað
heyrt rétt. Svo — þegar honum varð Ijóst, að
Tony ætlaði að endurgreiða allt það, sem hann
hafði gert fyrir hann með svikum, var eins og
hann félli saman. Eins og svo margar manneskj-
ur, sem geta haft stjórn á skapi sínu, gat hann
orðið glóandi af reiði, ef hún var vakin. Órétt-
læti, grimmd, lítilmennska, gat allt vakið þessa
reiði hans. Hann sá bókstaflega stjörnur, og á
næsta augnabliki mundi hann hafa ráðist á Tony,
ef síminn á skrifborði hans hefði ekki hringt í því.
Hann hafði átt von á þessari thringingu. Hann
sneri sér við og tók upp heyrnartólið.
Jólablað Vikunnar 1949
Samtalið var mjög stutt, og þegar hann lagði
heyrnartólið á aftur, leit hann á Tony.
„Við getum ekki rætt þetta mál frekar núna,"
sagði hann. „Ég verð að fara nú þegar. Ég hef
sagt mitt síðasta orð, og þú getur gert hvern
fjandann, sem þú vilt, en ég tilkynni nú þeim
manneskjum, sem hafá áhuga á að vita það,
nafnið á þeim, er tældi Lissu."
„Þá verður það þitt loforð gegn mínu, — og
það mun ekki koma þér að miklu gagni," svar-
aði Tony um leið og hann fór út.
Enda þótt Garth færi fram strax á eftir Tony,
va.r Tony samt þegar kominn út úr húsinu, þeg-
ar Garth tók við hatti sínum og sagði við Annie,
sem kom út úr svefnherberginu:
„Segið frú Rosslyn, að ég neyðist til að fara
niður í Wimpole Street. En ég býst ekki við að
koma seint fieim."
„Já, læknir."
Þegar hann hljóp niður tröppurnar, snerust
hugsanir hans þegar um sjúklinginn, sem hann
var að fara til. Yfirhjúkrunarkonan hafði aðeins
beðið hann að koma, af því að sjúklingurinn var
mjög veikur, og þegar hann flýtti sér út á göt-
una, tók hann ekki einu sinni eftir, að bíll Tonys
var þar ,enn.
Er Garth hljóp hratt niður tröppurnar, hafðí
Tony falið sig í skugganum þar undir. Hann stóð
þar kyrr, þangað til hann heyrði, að Garth var
farinn. Þá gekk hann upp tröppurnar.
Annie opnaði dyrnar, og hann sagði með þessu
sigrandi, kurteisa brosiý sem gerði allar konur
að auðmjúkum þrælum hans.
„Mér þykir mjög leitt, að þurfa að ónáða yð-
ur aftur, en ég gleymdi, að ég hafði fréttir að
færa frú Rosslyn. Get ég farið inn til hennar.
Þarna inni —? Nei, þér þurfið ekki að tilkynna
komu mína."
Hann opnaði dyrnar, gekk inn og lokaði þeim
á eftir sér.
Nada leit upp frá bókinni, sem hún var að
lesa. Svo stóð hún hratt upp.
Tony stóð við dyrnar og horfði á hana, og er
hann sá hana, vaknaði aftur gamla, ástríðufulla
þráin. Það var skyndilega eins og hatrið sem
hann hafði á Garth, hefði margfaldað ást hans
á eiginkonu Garths.
MAGGI
OG
RAGGI
Teikning eftir
Wally Bishop.
1. Raggi: Bíðið þið strákar. Ég ætla heim ti)
þess að fá mér að drekka.
Siggi: Ég kem með!
Toggi: Og ég líka.
2. Siggi: Komið þið, strákar. Við erum að
fara heim til Ragga til þess að fá okkur vatn
að drekka!
3. Raggi: Það er nóg af glösum I bollaskápn-
um!
4. Amma: Þvílík aðkoma!
f