Vikan - 24.01.1991, Qupperneq 34
S)tjörnuspá
Hrúturínn
21. mars - 19. apríl
Einbeittu þér að starfs-
skyldunum. Samskipti sem byggj-
ast á gagnkvæmu trausti gætu
komið miklu til leiðar. Óvænt atvik
gæti þó sett tímabundiö strik í
reikninginn.
Nautið
20. apríl - 20. maí
Reyndu að forðast óþarfa
eyðslu fram að mánaðamótum.
Þú færð tækifæri til að afla þér
svolítilla aukatekna eftir mánaða-
mót en þú þarft á þessum pening-
um að halda seinna.
Tvíburarnir
21. maí - 21. júnf
Þú ert að fyllast nýjum
krafti og getur þvf farið að ein-
beita þér að hugðarefnum þínum.
Samskipti við yfirmenn eða langt
að komna eru árangursrík. Fram
undan eru breyttir tfmar.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Einbeittu þér að smáatr-
iðum og gakktu frá lausum
éndum. Þú hefur orðið fyrir nokkr-
um áföllum en nú er sá tími liðinn,
að minnsta kosti í bili.
Ljónið
23. júlí - 23. ágúst
Rómantíkin blómstrar í
lok mánaðarins. I febrúarbyrjun
fer Satúrnus inn í Vatnsbera-
merkið og gefur möguleika á
sterkari vináttutengslum en áður.
Láttu þó ekki misnota góðvild
þína.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Byrgðu ekki áhyggjur þfn-
ar inni. Þér gengur vel f starfinu
en fólk krefst mikils af tíma
þínum. Reyndu að hvíla þig þeg-
ar tfmi vinnst til.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Þú þarft að sýna lipurð í
samskiptum við fólk og tekst það
ef þú vilt. Ferðalag eða samskipti
við fjarlæga manneskju eru á döf-
inni. Einhver bíður eftir bréfi frá
þér.
Sporðdrekinn
24. okt. - 21. nóv.
Spurningin er: Hefurðu
vanrækt þína nánustu undanfar-
ið? Dulin spenna kraumar undir
yfirborðinu og þú fréttir af gömlum
kunningja sem hefur áhuga á að
hitta þig.
Bogmaðurinn
22. nóv. - 21. des.
Fjármálin eru ofarlega á
baugi um þessar mundir. Nú get-
urðu framkvæmt ákveðið verk
sem þú hefur lengi haft löngun til
en sýndu Ijúfmennsku og nær-
gætni.
Stelngeitln
22. des. -19. janúar
Nú er tími til að styrkja
framtíðarhorfurnar. Sumir reyna
að hafa áhrif á einkafjármál þín
en nú er tækifæri til að breyta um
stefnu.
Vatnsberinn
20. janúar - 18. febrúar
Skemmtilegur fagnaður
erframundan;mikiðlíf ogfjör. Nú
er tími til að taka upp gamalt mál
og koma því út úr heiminum en
Satúrnus kemur inn í sólarmerki
þitt í febrúarbyrjun og gæti gert
þig tvístígandi.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Aflaðu nýjum hugmynd-
um stuðnings og þér tekst vel
upp. Taktu svo lífinu með ró því
það verður mikið um að vera hjá
þér í byrjun febrúar.
KORTIRÁ DAG GíWR BJARGAÐ
BARNINU. . . Frh. af bls. 13
Gott dæmi um ábyrgð sem börnin eiga að
bera en margir foreldrar eigna sér er heima-
námið. Þar má oft sjá að allt of margir foreldrar
fara í „leynilögregluleik" við börnin. Þá er
spurt: „Ertu búinn að læra?“ - Nei, það var
ekkert sett fyrir.
„Leyföu mér að sjá töskuna." - Ég gleymdi
henni í skólanum. Þarna eru börnin að reyna
að koma sér hjá sinni ábyrgð og foreldrarnir að
reyna að afhjúpa sökina. Þetta verður mynstur
hjá mörgum og foreldrarnir fara að taka á sig
þá ábyrgð að sjá um þessa hluti. ( svona tilvik-
um þurfum við að hjálpa börnunum á alla
mögulega enda og kanta svo þau geti staðið
undir sinni námsábyrgð. En um leið og við för-
um að sjá um þetta, bera ábyrgð á þessu og
elta þau uppi þá er þetta orðið okkar mál. Ef
þau kunna ekki að bera ábyrgð þá er að kenna
þeim það. Mikill meirihluti foreldra tekur ábyrgð
á hlutum sem börnin eiga að bera ábyrgð á; á
mætingum, heimanámi og með sífelldum
lausnum eða uppástungum í stað þess að láta
þau finna sínar lausnir sjálf. Þau þurfa ekki að
vera há í loftinu þegar þau geta lært félagslega
ábyrgö; að vaða ekki yfir fólk og taka tillit til
annarra.
Foreldrar festast mikið í því að fara að leysa
vanda barnanna í stóru og smáu í þeirri trú að
þeir séu að gera gott. Þetta kalla ég „ofurfor-
eldra“ sem gera sér ekki grein fyrir því að
besta hjálpin er stuðningur en ekki að taka
málin að sér. Ekki eitt einasta barn sem ég hef
hitt í gegnum þetta starf í tæp tólf ár hefur ver-
ið ánægt með að skr^a, læra ekki heima og
taka ekki til eftir sig. Þau vita hvað er rétt og
langar gjarnan til að gera það en það er eitt-
hvað sem þau ekki kunna. Stór þáttur í já-
kvæðri sjálfsmynd er að finnast maður ein-
hvers verður, geta verið stoltur af verkum sín-
um og tekið ábyrgð á þeim. Á ákveðninám-
skeiðunum reynum við að kenna fólki að
greina þarfir sínar og að þora að bera ábyrgð
á þeim. Láti maður aðra bera ábyrgð á sér er
hætta á að á manni verði troðið í leiðinni. Við
reynum að kenna fólki að segja: Hér er ég og
þetta er mikilvægt fyrir mig, án þess að óttast
að stuða aðra. Það er mikilvægt að kunna að
setja sitt fram en að taka jafnframt tillit til ann-
arra.
Ég hef stundum velt því fyrir mér hvort við
kunnum ekki að búa í því samfélagi sem við
höfum búið til hérna. Nándin í bændasam-
félaginu var miklu meiri og í því voru miklu
meiri innbyggð félagsleg samskipti og öryggi
varðandi framtíðarsýn. Nú vita krakkar ekkert
hvað þeir verða, þeir eru í skóla en eiga sér
engar fyrirmyndir svo allt er miklu óljósara.
Gömlu aðferðirnar sem gátu gengið í gamla
samfélaginu ganga ekki lengur.
- Hvaða aðferðir henta þá í þessu vinnu-
þrælaþjóðfélagi?
Við þurfum að koma mjög sterklega til móts
við öryggisþarfir barnanna. Það er ekki sjálf-
gefið að barn sem fæðist upplifi öryggi, jafnvel
þó það búi heima. Það þarf að hlúa að því. Svo
þarf að kenna þeim að gefa og þiggja félags-
lega og tilfinningalega. Ég sé alltof marga ein-
staklinga sem kunna bara að þiggja eða
heimta en kunna ekki að gefa á móti. Aðrir
gera sífellda greiða en kunna ekki að taka við.
Þar er þá ójafnvægi en ég tel að það sé fólki
mjög mikilvægt að jafnvægi ríki í þessum
þáttum. Sem dæmi þá er sú vinátta dýpst þar
sem við getum treyst og vitum að okkur er
treyst. Þar sem við getum gefið og við fáum.
Þá ríkir jafnvægi þegar upp er staðið; við vitum
að við bæði gáfum og þáðum. Þetta finnst mér
vera þau grundvallaratriði sem foreldrar verða
að hlúa að því þau koma ekki af sjálfu sér.
Ég tala stundum um „töfrakorériö" sem
lausn. Það er sagt að korér á dag geti bjargað
börnum frá vændi, eiturlyfjaneyslu, afbrotum
og öðrum stórborgarvandamálum. Svo spyr
maður foreldra hvort þeir eigi korér á dag með
barninu sínu sem fari í annað en að segja
því að borða almennilega eða bursta f sér
tennurnar, heldur verulega góð samskipti þar
sem verið er að gefa og þiggja. Meira en helm-
ingur fólks svarar þessu heiðarlega og segist
efast um að það eigi korér á dag með börnun-
um. Fólk segist stundum eiga korért og sund-
um eiga hálftíma en ekki kortér á dag að stað-
aldri. Það er rexað og pexað um að Ijúka
heimanáminu og drífa sig nú í rúmið en um
önnur samskipti er lítið. Börnin fá dýra og fína
muni en það sem þau sakna þegar ég tala við
þau er það að pabbi og mamma eru aldrei
heima og það er ekkert hægt að tala við þau.
Ef ég spyr þau hvað þau myndu velja; færri
hluti eöa betri samskipti, þá kemst aldrei neinn
efi að hjá þeim um að þau kysu heldur betri
samskipti við foreldra sína, þegar þau upp-
götva að þau geta ekki haft hvort tveggja.
Þegar eitt gildismat er sett upp á móti öðru; til
dæmis lífsgæöakapphlaupið á móti einhverju
ekta, á borð við heiðarleika, vináttu eða traust,
þá velja þau það.
34 VIKAN 2. TBL. 1991