Vikan


Vikan - 24.01.1991, Side 44

Vikan - 24.01.1991, Side 44
JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL SVARAR BRÉFI FRÁ VIKULESANDA HUGSANLEGT GILDI ANDLEGRA VERÐMÆIA Komdu sœl, Jóna Rúna! Ég veit ekki hvað langt er síðan ég fór að velta fyrir mér eilífðarmálunum en einhvern veginn hef ég alltaf haft tilfinningu þess að þetta iíf sé bara partur afmeira lífi. Ég er húsmóðir og ein af fimm systkinum, er reyndar á milli þrítugs og fertugs. Fram að tvítugu þótti mér nokkuð eðliiegt, þó að takmörkuðu leyti vœri, að nota hugarorku til að fá til dœmis fólk til að hringja til mín. Eftir þann tíma fór þetta dvínandi en vissan um framhaldslíf og forveru sálarinnar var enn til staðar. Ég held að það hafi verið árið 1986 að ég fór á námskeið hjá þandarískum miðli sem fjallaði um engla. Flvers vegna ég fór er mér ekki fyllilega Ijóst en uþþgötvaði þó hvað margir velta þessu fyrir sér. Uþþ úr þessu námskeiði, sem var reyndar alltof fjölmennt að mínu mati, sat ég í sjö manna hóp sem reyndi saman að upplifa og finna svokallað orkuflæði frá umhverfinu og eins hver frá öðrum. Við bárum saman bœkur okkar eftir á og rœddum hvað við upplifðum. í þessum hóþi leið mér mjög vel og við hittumst regluiega. í millitíðinni missti ég kæran ástvin og ég reyndi á þessum hóþfundum að biðja fyrir honum, foreldrum okkar, börnum hans og eftirlifandi konu. Síðan þetta var hefég eignast fjórða barnið mitt. Fiópurinn hefur minnkað og upp úr honum verið stofnaðir nýir hópar. Á endanum fann ég ekkert á fundum nema pirring, sjálfsagt yfir því að finna ekkert sérstakt. Þegar svo var komið að mér leið verr og verr á þessum fundum hætti ég. Reynt hefur verið að fá mig í nýjan hóp en ég er treg. Ég lít svo á að eitt af hlutverkum mínum ilífinu sé að vera sjálfstæð og þora að taka ákvarðanir á eigin ábyrgð en ekki í gegnum aðra. Þetta hef ég reynt og er þegar að vinna á þó mér mistakist þessi ásetningur stundum Ég er sem afleiðing afþessari vissu ákveðin í að prófa og sjá hverju fram vindur. Miðað við hina er ég mjög jarðþundin en mér hefur verið sagt afandlegu fólki að ég hafi góða orku. Að öllu þessu upptöldu er ég samt ákveðin að prófa og hætta síðan efég get ekki fellt mig við fundina. Allir í hópnum nema ég virðast nokkuð vissir um mögulega hœfileika sína. Sumir telja sig miðla, aðrir huglœkna og svo eru enn aðrir sem hafa einhverja aðra sálræna hœfileika. Eitthvað segir mér að í ekki stœrri hóp sé mjög einkennilegt að allir séu meiri háttar sérstakir andlega þó ekki sé meira sagt. Varla er mér œtlað að vera einhvers konar akkeri fyrir hina því innra með mér finnst mér að mitt hlutverk kunni að vera annað og öðruvísi. Alla vega er ágœtt að velta í þessum efnum sem flestu fyrir sér en ekki bara því sem í fljótu bragði virðist sniðugt. Mér er Ijóst að á síðustu árum hefur einhvers konar holskefla andlegs áhuga skollið yfir og maður hittir ekki svo gömlu félagana að þeir séu ekki flestir á kafi í einhverjum andlegum framkvœmdum eða upplifunum. Eins finnst mér hafa aukist framboð alls kyns varnings, námskeiða og fólks sem selur sitthvað sem mjög má deila um hvort talist getur innihalda mögulegt andlegt gildi. Þetta virðist vera söluvara sem fremur er tengd peningum en ekki endilega andlegum verðmœtum og það er sorglegt. Mér er Ijóst að lífið er til að lœra afþví og minn vilji verður á einhvern hátt að lúta fjölskyldu minni. Ég er ekki ein í heiminum og heima hjá mér erum við sex. Ég tel mig vera að gera það sem mig langar til með því til dœmis að hafa kosið að vera heima hjá börnunum mínum. Kannski ert þú til í að fjalla svolítið um þessi mál almennt eftir lestur þessa bréfs og það yrði kannski til þess að ég gœti sjálfkomið frekara skiþulagi á vilja minn og hugmyndir í þessum málum. Með þestu kveðju og þökK Lerki. Kæra Lerka! Þakka þér hjartanlega fyrir ákaf- lega jákvætt og skynsamlegt bréf. Vegna plássins, sem mér er ætlað á síðum Vikunnar og svo aftur á móti vegna ýmissa persónu- legra upplýsinga sem þú gefur, ákvað ég að stytta bréf þitt til muna. Vonandi kemur það ekki að sök. Þú ert kona sem kýst að nota karlmanns- nafn sem dulnefni. Það er galli svo ég tek mér bessaleyfi og kalla þig bara Lerku í stað Lerka og veit að þú fárast ekki yfir því. Við reynum í þessari stuttu hugleiðingu að íhuga af kostgæfni það sem fallið gæti undir það sem þú óskar eftir að fá umfjölun um. Það verður að viðurkennast að mér eru takmörk sett eins og þér andlega og ég reikna ekki með að verða þér neinn vegvísir. Kannski geta þó sjónarmið mín og innsæi auð- veldað þér að skipuleggja þín ef þú notar mín einungis sem viðmiðun við góðan ásetning þinn. Vonandi getum við verið sammála um að það kunni að vera einhvers virði því þú get- ur augljóslega á endanum fundið þína eigin leið. ANDLEGUR ÁHUGI ER MIKILVÆGUR Ef við til að byrja með íhugum þann mikla andlega áhuga sem gripið hefur um sig um víða veröld er eitt og annað sem vert er umhugsunar. Við íslendingar erum engin undantekning frá öðrum þjóð- um í leit okkar að innri verð- mætum og andlegri upprisu. Við erum smá þjóð sem öldum saman hefur verið þvinguð af öðrum og stærri þjóðum. Auk þess höfum við þurft að kljást við ofurefli fátæktar, jarðhrær- inga, sjúkdóma og annarrar vosbúðar af náttúrlegum ástæðum eða mannavöldum. Síðan gerist það fyrir örfáum áratugum að við eignumst sjálfstæöi og erum þá þegar orðin aðþrengd, jafnt andlega 44 VIKAN 2. TBL. 1991

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.