Vikan


Vikan - 24.01.1991, Page 49

Vikan - 24.01.1991, Page 49
Minningabrot um sérkennilega granna Framhald af bls. 41 hvaöa konunglegum kokki sem væri. Lýsing- arnar á matnum bárust alþýðunni til eyrna meö stúlkunum sem unnu við húsverk þar og þeim sem fengnar voru til að ganga um beina í veisl- um. Leiðir ríku konunnar og mínar lágu stundum saman þegar ég tók mér heilsubótargöngu, gekk þá gjarna eftir stígum sem lágu fjarri ak- veginum. Þá geystist hún oft framhjá og hund- arnir tveir á undan. Þeir voru báðir svartir og feikilega stórir og drógu hana á eftir sér. Fyrst í stað lét hún sér nægja að veifa til mín en svo fór hún að staldra við og spjalla smástund. Hún fann upp leið til að stöðva hundana- hún valdi stakt tré í nánd við mig, skáskaut sér svo bak við það og hljóp hringinn í kringum það með böndin, þannig að hundarnir urðu að stansa. Hún minntist lítið á börnin sín sem voru í heimavistarskóla heldur talaði hún oftast um viðskiptavini mannsins síns sem hún matreiddi fyrir, svo og matseðlana. Hún mat vinina gjarna eftir bifreiðum þeirra. Daimlereigendur voru skör hærra settir en eigendur Bentley- bifreiða - eða var það öfugt - en göfugastir voru Rollsarnir, að hennar mati. Jagúar stóð samt alltaf fyrir sínu. Tíminn leið, frúin virtist alltaf vera að flýta sér meir og meir. Fyrirtæki mannsins hennar blómstraði, viðskiptavinirnir, sem komu í mat til þeirra, komu víðar að en áður. Og alltaf var konan að hreinsa húsið og upphugsa nýjar og veglegri kræsingar. Mér virtist þetta vera orðið hálfgert kapphlaup hjá henni. Þannig gekk það um hríð eða þangað til von var á Japönunum. Þá sigldi frúin í strand, gat ekki hugsað um neitt nema fiskrétti en sagðist ekki kunna nægilega mikið fyrir sér á því sviði. Hún rakti raunir sínar fyrir mér einn daginn þarna á stígnum. Hvað átti hún að bera fram? Kvöldverðurinn væri daginn eftir. Lifðu Islend- ingar ekki eingöngu á fiski? Gæti ég hjálpað henni? Daginn eftir fór ég og hjálpaði frúnni. Við eyddum deginum í eldhúsinu. Frúin vann hratt og ákveðið; auðséð var að hún kunni vel til LAUSN SÍÐUSTU GÁTU + + + + + + + + K + + + + + M + + P ♦ + + + + + s T U N D I N + E R + R + + + + + + K A L A R + 0 T R E K A + + + + + + A T A K A N L E G + 0 C + + + + + + L A + T s + L I D U M + + T 0 P A + H + P I L s + T I N I R V I T A R + 0 T U R + M E I N I N U A L L T + F L 0 T + H Æ F + + R + M + V I T A + T R A F A L I N N + H P R 0 T A S T + F R í S K + V ö L V A + N + R A U p + + S K I P + L E A + + A M A + G A U M + A + E N D I U N H N A L L U R + 0 R + B L A U T + Ö + D R E Y R I + L 0 R + I D R A S T 1» I N G S + N ö A T 0 N + R + + K A + + I + T R U N T A N + R A S K A R 0 P N A + A + A T L A C A + K A L 1 F A C N A tí + F A 0 + E G Ó I Ð + U + B + D A I N N ii N E I N S L A G s E B R 0 + N A + s T I G + K + L E + + I + R Ö + 0 Ó L U R + S E T + R s + + E R + D 1 p A R I + L I R F A N F A R A 0 + T A U + R E I K A R + E ö C N + s K U L F U + S T U D A R I + N + S T U R L A s T + F L I S s D + + + + + + + + + + + + + + R I T A Lausnarorö í síðustu krossgátu: VELFERÐARRÍKI verka. Ekki smakkaði hún á neinu sem hún útbjó, fór frekar eftir útliti réttarins, athugaði hvort sósan væri mátulega þykk. Svo skreytti hún hvern rétt fyrir sig með grænmeti eða blómum. Borðið var stórkostlegt. Japanirnir komu og máltíðin var framreidd. Allt gekk vel og allir voru ánægðir. Þegar ég ætlaði að fara að kveðja frúna sá ég að hún hafði tekið fram disk og sett á eld- húsborðið. Á honum voru nokkrar rúsínur og hnetur. Forvitin spurði ég hvað þetta væri. Hún sat þarna lítil og svo grindhoruð að engu var líkara en húðin væri strekkt yfir beinin - hvergi mótaði fyrir vöðva eða kjötflís. Hún kvað þetta kvöldmáltíð sína. Svo bætti hún við: „Ég hef ógeð á mat.“ Ég lokaði hljóðlega á eftir mér og gekk þungt hugsi heim á leið. KRISTNA KONAN „Hverju ætlar þú að fórna?" spurði kristna kon- an mig þar sem við biðum í biðröðinni í kaup- félaginu á föstudegi síðsumars. „Fórna?" hváði ég. „Ég skil ekki.“ Hvað gat konan átt við, fórna? Var hún komin í slagtog með galdranornum? hugsaði ég. Ætlar hún að drepa köttinn sinn? Kristna konan leit hissa á mig. „Veistu ekki að þaö er þakkarhátíð í kirkjunni á sunnudag- inn? Færið þið ekki fórnir á íslandi?" spurði hún. Ég neitaði, sagði lítið um þakkarhátíðir þar nema ef telja mætti töðugjöld til slíkra há- tíða. Þá væru borðaðar pönnukökur með kaffi- sopanum. En það voru ekki slíkar hátíðir sem konan átti við. Þetta var indælasta kona, kunni mikið af Biblíunni utanbókar. Hún var alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd þar sem með þurfti. Einu sinni lagðist ég í kvefpest og þá kom hún með blóm úr garðinum til að gleðja mig. Hún trúði því að djöfullinn réði heiminum: þess vegna voru verk hennar enn mikilvægari en annars. Hún trúði að galdranornir væru til - ekki bara í sögum og bíómyndum - og að þær væru út- sendarar hins ofannefnda. Hún trúði einnig að hægt væri að reka illa anda og sendingar galdranorna úr fólki með því að leggja hendur yfir fórnarlömbin. Hún trúði ekki á hjónaskilnaði. í hennar vit- und þýddi hjónaskilnaður aðeins að hjón bjuggu ekki saman lengur - hvorugu var samt heimilt að stofna til nýrra sambanda. Mér varð hálfórótt við orð hennar. Fórn í kirkjunni? Mér fannst hún guðlasta miðaö við mína íslensku trú en kunni samt ekki við að segja það við hana. Tortryggnar litum við hvor á aðra, báðar efuðumst við um trú hinnar. Hún bauð mér að koma í kirkjuna á sunnudaginn svo að hún gæti frætt mig betur um fórnir og þakkarhátíðir. Sunnudagurinn rann upp. Ég fór til að svala forvitninni. Ég mætti snemma. Kristna konan tók á móti mér og leiddi mig upp að altarinu. Mér fannst þetta helst líkjast sýningarbási á útimarkaði. Þarna var hrúgaö saman öllum hugsanlegum tegundum grænmetis, skraut- blómum í vösum og hvers kyns brauðum og pæjum. Konan útskýrði fyrir mér hver hefði „fórnað" hverju og að hún hefði verið að taka á móti fórnum og raða þeim allan morguninn. Hún fræddi mig um gamla siði í sambandi við uppskeruna: þeir byrja á maíhátíðinni með maístönginni og Morrisdönsunum. Þá er jörðin undirbúin fyrir sáningu. Síðasti siðurinn er svo þakkarhátíðin: aö færa allt það besta sem vax- „Hverju ætlar þú aÖ fórna?" spurði kristna konan mig þar sem við biðum í biðröðinni í kaupfélaginu á föstudegi síðsumars. „Fórna?" hváði ég. „Ég skil ekki." Hvað gat konan átt við, fórna? Var hún komin í slagtog með galdranorn- um? hugsaði ég. Ætlar hún að drepa köttinn sinn? ið hefur yfir sumarið inn í kirkju í þakklætis- skyni. Eftir messu og blessun prestsins sagði hún að allt yrði selt á uppboði og rynni ágóðinn til kirkjunnar. Ég hlustaði á messuna en var hálfómótt. Mér fannst athöfnin framandi - heiðin. Hér var eitthvað ævafornt á ferðinni sem tilheyrði þjóð- arsálinni, eitthvað sem ég mundi aldrei skilja. Mér fannst ég vara komin aftur i fornkristni - fannst eins og hér væri blótað á laun. Var þessi þakkarhátíð ekki keimlíkfórnarathöfnum norna - hér var bara fórnað ávöxtum jarðar? Á meðan ég hlustaði á messuna fannst mér kál- höfuðin breytast í afhöggvin mannshöfuð. Ég beið ekki eftir uppboðinu heldur flýtti mér aftur út í sólina. □ 2. TBL1991 VIKAN 49

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.