Vikan - 18.04.1991, Page 48
Hlýja umhyggjan fyrir henni, sem verið hafði í
augnaráðinu, þurrkaðist út. Augun virtust
dökkna aftur, verða kuldaleg og rannsakandi.
Hann horfir á þetta hjól eins og litill drengur
myndi horfa á sitt eigið maurabú, hugsaði
Sara.
„Andartak," sagði hann.
„Allt í lagi,“ svaraði Sara. En hana var farið
að svima, auk þess aö vera illt í maganum. Og
það voru skruðningar neðst í maganum sem
henni leist ekki á. Ekki niðurgang, drottinn.
Gerðu það.
Hún hugsaði: Hann verður ekki í rónni fyrr
en hann er búinn að tapa öllu aftur.
Og svo, af furðanlegri fullvissu: En hann
mun ekki tapa.
„Hvað segirðu, lagsi?" spurði umsjónar-
maðurinn. „Af eða á, inni eða úti.“
„Skíttu eða farðu,“ sagði annar verkamað-
urinn og það heyrðist taugaveiklunarhlátur.
Söru svimaði.
Johnny ýtti allt í einu seðlum og smápening-
um upp í horn borðsins.
„Hvað ertu aö gera?“ spurði umsjónarmað-
urinn, illa brugðið.
„Alla fúlguna á 19,“ sagði Johnny.
Söru langaði að stynja en kæfði það niður.
Það fór kliöur um hópinn.
„Ekki ofgera þessu,“ sagði Steve Bernhardt
í eyra Johnnys. Johnny svaraði ekki. Hann
starði á hjólið, allt að þvi tómlega. Augun virt-
ust næstum fjólublá.
Skyndilega heyrðist klingjandi hljóð sem
Sara áleit í fyrstu að hlyti að vera í eyrum
hennar sjálfrar. Svo sá hún að hinir sem lagt
höfðu peninga i borð voru að sópa þeim af
borðinu aftur og eftirlétu Johnny að spila ein-
um.
Nei! Hún fann að hana langaði að æpa. Ekki
svona, ekki einan, það er ekki sanngjarnt...
Hún beit á vörina. Hún óttaðist að hún myndi
kasta upp ef hún opnaði munninn. Henni var
orðið afar illt í maganum. Vinningsstafli
Johnnys sat einn undir nöktum Ijósunum.
Fimmtiu og fjórir dollarar og það var greitt tiu á
móti einum ef um oddatölur var að ræða.
Umsjónarmaðurinn vætti varirnar. „Fylkið
bannar mér aö taka við meira en tveimur doll-
urum á oddatölur."
„Svona nú,“ urraði Bernhardt. „Þú átt ekki
heldur að taka við meira en tíu dollurum á reit
og þú varst að láta hann leggja átján undir.
Hvað er að, ertu farinn að svitna á pungnum?"
„Nei, það er bara ..."
„Snöggur," sagði Johnny stuttaralega.
„Annaöhvort eða. Stúlkan mín er veik.“
Umsjónarmaðurinn vó og mat hópinn. Hóp-
urinn horfði á móti og augnaráðin voru óvin-
veitt. Þetta var slæmt. Þau skildu ekki að
náunginn var að fleygja peningunum sínum og
hann var að reyna að halda aftur af honum.
Fari það fjandans til. Hópnum myndi líka þetta
illa hvernig sem það færi. Látum náungann
standa á haus og tapa peningunum sínum svo
hann gæti lokað fyrir nóttina.
„Jæja,“ sagði hann, „ef enginn ykkar er eftir-
litsmaður frá fylkinu ... “ Hann sneri sér að
hjólinu sínu. „Það fer hring eftir hring og eng-
inn veit hvar það stansar."
Hann sneri svo tölurnar runnu undir eins
saman í eitt. Um stund, sem virtist miklu lengri
en hún gæti hafa verið, heyrðist ekkert annað
en þyturinn í lukkuhjólinu, næturvindurinn að
toga í segldúk einhvers staðar og sjúkleg
höggin í höfði Söru sjálfrar. í huganum grátbað
hún Johnny að taka utan um sig en hann stóð
orðfár með hendurnar á spilaborðinu og augun
á hjólinu sem virtist ákveðið í að snúast að ei-
lífu.
Að lokum hægði það nægilega mikið á sér til
að hún gat lesið tölurnar og hún sá 19, 1 og 9
málað með skærrauðu á svartan bakgrunn.
Upp og niður, upp og niður. Mjúkt suð hjólsins
varð að stöðugu tikka-tikka-tikka sem hljómaði
afar hátt í kyrrðinni.
Nú marséruðu tölurnar framhjá bendlinum
og hægðu ákveðið á sér.
Annar verkamannanna kallaði forviða:
„Hjálpi mér, þetta verður tvísýnt!"
Johnny stóð rólegur, horföi á hjólið og nú
sýndist henni (þó það gætu hafa verið veikind-
in sem ultu nú gegnum maga hennar í reglu-
bundnum samdráttaröldum) að augu hans
væru næstum svört. Jekyll og Hyde, hugsaði
hún og var allt í einu og fáránlega hrædd við
hann.
Tikk-tikk-tikk.
Hjóliö fór yfir á annan reit, fór framhjá 15 og
16, smellti sér yfir 17 og eftir augnablikshik 18
líka. Meö endanlegu tikkil datt bendillinn yfir í
rauf 19. Hópurinn hélt niðri f sér andanum.
Hjólið snerist hægt svo bendillinn fór upp að
litla prjóninum á milli 19 og 20. f einn fjórða úr
sekúndu virtist sem prjónninn gæti ekki haldið
bendlinum f nítjándu raufinni; að dvínandi
hraði hjólsins færi með hann yfir á 20. Svo
kastaðist hjólið frá aftur, kraftur þess uppurinn
og það lagðist til hvíldar.
Andartak heyrðist ekkert hljóð frá hópnum.
Ekki eitt einasta hljóð.
Svo heyrðist í öðrum unglinganna, lágt og
lotningarfullt: „Vá, maður, þú varst að vinna
fimm hundruð og fjörutíu dollara."
Steve Bernhardt: „Ég hef aldrei séð svona
heppni. Aldrei."
Og svo fagnaði hópurinn. Johnny var klapp-
að á bakið, meö hnúum og hnefum. Fólktróðst
framhjá Söru til að komast að honum, snerta
hann og andartakið, sem þau voru aðskilin,
fann hún til ömurlegrar, hrárrar skelfingar.
Styrkvana var henni ýtt fram og til baka, mag-
inn rúllaði sem óður væri. Tólf eftirmyndir
hjólsins snerust í sorta fyrir augum hennar.
Andartaki síðar var Johnny við hlið hennar
og hún sá sértil veikrar gleði að þetta varraun-
verulega Johnny og ekki hin rólega, gínulíka
vera sem horft hafði á hjólið snúast síðasta
hringinn. Hann virtist ringlaðurog áhyggjufullur
hennar vegna.
„Mér þykir fyrir þessu, elskan," sagði hann
og það þótti henni vænt um.
„Það er allt í lagi með mig,“ svaraði hún án
þess að vita hvort svo var eða ekki.
Umsjónarmaðurinn ræskti sig. „Það er búið
að loka hjólinu," sagði hann. „Það er búið að
loka hjólinu."
Samþykktar- og skapvonskumuldur frá
hópnum.
Umsjónarmaðurinn leit á Johnny. „Ég verð
að láta þig fá ávísun, ungi herra. Ég er ekki
með svona mikið reiðufé f básnum."
„Allt í lagi, hvað sem er,“ sagði Johnny.
„Vertu bara fljótur. Daman er orðin verulega
veik.“
„Ávísun, já,“ sagði Steve Bernhardt með
óendanlegri fyrirlitningu. „Þú færö ávísun sem
engin innistæða er fyrir og hann verður suöur á
Flórída í vetur."
„Góði maður,“ byrjaði umsjónarmaðurinn,
„ég fullvissa þig ... “
„Farðu og fullvissaðu mömmu þína, kannski
trúir hún þér,“ sagði Bernhardt. Hann teygöi
sig allt í einu yfir borðið og fálmaði undir því.
„Heyrðu!" Umsjónarmaðurinn ýlfraði. „Þetta
er rán!“
Hópnum virtist lítið til fullyrðingar hans
koma.
„Gerðu það,“ muldraði Sara. Hana sundlaði.
„Mér er sama um peningana," sagði Johnny
skyndilega. „Hleypið okkur framhjá. Konan er
veik.“
„Vá, maður,“ sagði unglingurinn með Jimi
Hendrix-næluna en hann og félagi hans fóru
ófúsir frá.
„Nei, Johnny," sagöi Sara þó hún héldi aftur
af uppköstunum af vilja fremur en mætti.
„Fáðu peningana þína.“ Fimm hundruð dalir
voru laun Johnnys í þrjár vikur.
„Borgaðu, ómerkilegi loddarinn þinn!“ öskr-
aði Bernhardt. Hann kom með Roi-Tan vindla-
kassann undan borðinu, ýtti honum burt án
þess svo mikið sem að líta í hann, þreifaði aft-
ur og kom í þetta sinn upp með læstan, græn-
málaðan stálkassa. Hann skellti honum niðurá
spilaborðið. „Ef ekki eru fimm hundruð og
fjörutíu dollarar þarna skal ég eta mína eigin
skyrtu fyrir framan allt þetta fólk.“ Hann skellti
hrjúfri, þungri hönd á öxl Johnnys. „Bíddu bara
hægur, sonur sæll. Þú færð þinn útborgunar-
dag meðan ég heiti Steve Bernhardt."
„í alvöru talað þá er ég ekki með svo
mikið ... “
„Þú borgar," sagði Steve Bernhardt og hall-
aði sér yfir hann, „eða ég læt loka hjá þér. Ég
meina það. Ég er að tala í alvöru.“
Umsjónarmaðurinn andvarpaði og fálmaði
inn undir skyrtuna sína. Hann dró upp lykil á
fínhlekkjaðri keðju. Hópurinn gaf frá sér stunu.
Sara þoldi ekki við lengur. Maginn var þaninn
og allt í einu grafkyrr. Allt var að koma upp úr
henni, allt og þaö á eldingarhraða. Hún reikaði
burtu frá Johnny og ruddi sér braut gegnum
hópinn.
Frh. á bls 50
LAUSN SÍÐUSTU GATU
+ + + + + + + + + F + + + H + + G +
+ + + + + + + Þ A' .u + F A R A + ö S
+ + + + + + + A F S T A Ð A + i M A
+ + + + + + + N A 3 A R E T + + U M
+ G A S S I + Þ R A M M I + A F L A
+ ó Ð I N N + 0 G + T A N G U R + R
+ Ð + V t N Y L + S A N S + G t S L
D A S A Ð + Ð + ó K U N N + L I N A
+ + T + A K U R E Y R I + V I Ð A R
ó F A A + U R + F R + + V I T + K F
F E L L S M 0 L A + Þ V 0 L + Þ I G
+ R + V £ L R A Ð + V Æ L + F A L A
I Ð R A R + K R + S 0 G Æ Ð + U L L
+ + E N + G U L L Æ Ð I Ð + M + + V
M 1 N U S + L ó A L U R I + 0 F S A
+ S 0 R T N A + G A + + + K R A N S
+ u + + A N + V 0 N A R + A + R A K
S M E K K + L E S + H E S T B A K U
+ A M A K V 0 S + K A K A L I + K R
H R I P + E F T 1 R + + M A F i U +
+ F R E M S T U R + V t S + A + R 0
+ R + L E K U R + S E R K I + F + T
P 1 S L + I N + S E X + ó Ð A R A K
+ I N A + + G R ó F T + L A R 1 S A
JL Ð 0 N 1 T A R I + y Ð T N N I L
Ll A L D R A K E R L I N + A Ð A L
48 VIKAN 8. TBL.1991