Vikan


Vikan - 18.04.1991, Síða 64

Vikan - 18.04.1991, Síða 64
TEXTI: ÓMAR FRIÐLEIFSSON STjA-RNUMOLAR • Julia Roberts er best þekkt sem stórkostteg stúlka í myndinni Pretty Woman sem kom henni á toppinn. Hún var útnefnd til óskarsverðlauna fyrir þá mynd og hefur leikið í tveim myndum síðan. Sú fyrri heitir Sleeping with the Enemy, sem nú er farið að sýna í Bíóhöllinni. Þar leikur hún konu sem er ofsótt af eiginmanni sínum. Hún sviðsetur dauða sinn og er tal- in dáin þar sem hún hefur breytt um útlit, nafn og aðset- ur. En virkar þetta eða finnur maður hennar hana aftur? Myndin er spennandi og hefur rakað saman fólki í kvik- myndahús vestanhafs. Fyrstu vika halaði hún inn 15,8 millj- ónir dollara. Hugsið ykkur! Seinni myndin heitir Flat- landers. Þar leikur Julia á móti Kiefer Sutherland sem hún er trúlofuð og mjög hamingju- söm með að eigin sögn. Myndin var sýnd við góða að- sókn í Stjörnubíói fyrr í vetur. Julia Roberts er tuttugu og þriggja ára. Hún ólst upp í smábænum Smyrna í Georg- íufylki. Næsta mynd hennar mun heita Dying Young. 20th Century Fox, stóri risinn í Hollywood, mun gera þá mynd og áætlað er að rúmlega 16 milljónir dollara kosti að full- gera hana. Kevin Costner hættur i indíána- leik og kominn í gervi Hróa hattar, en tvö kvikmyndafyrir- tæki eru nú að gera kvikmyndir um þá lífseigu hetju. • Fleiri myndir eru vinsælar þar vestra. New Jack City er að gera mikinn usla í kvik- myndahúsum Los Angeles. Þar brutust nýlega út slagsmál milli tveggja klíka sem ætluðu að sjá myndina. Þær voru ekki ánægðar með að húsið var fullt en New Jack City fjallar einmitt um löggur sem taka til á götum Los Angeles. Judd Nelson, lce T og Mario Van Pebbles fara með aðalhlutverkin í þessari hörku- spennandi mynd sem verður sýnd hér fljótlega. Tónlist hennar er þegar orðin mjög vinsæl vestanhafs. • Um þessar mundir er verið að sýna framhaldsmynd um grænu skjaldbökurnar Ninja Turtles. Æðið heldur áfram og núna er það rapparinn og dansarinn Vanilla lce sem leikur á móti brúðum Jims heitins Henson. • í sumar verður frumsýnd í Bandaríkjunum myndin All Shook Up með John Tra- volta. Hún gerist árið 1951 og fjallar um tónlistarkennara (leikinn af Travolta) sem setur allt á annan endann með því að fara með rokk og ról inn í kennslustofuna. Það er sami maðurinn (Jeffry Honaday) sem semur dansana í þessari mynd og samdi dansana í Flash Dance og Chorus Line. • Um þessar mundir er ævin- týraæði í Bandaríkjunum. Tvö fyrirtæki eru að gera myndir um Hróa hött og Steven Spi- elberg er að kvikmynda Pétur Pan. Sú mynd á einfaldlega að heita The Hook. Robin Williams, sem lék í Good Morning Vietnam, leikur Pét- ur en Dustin Hoffman leikur Krók skipstjóra. Teiknimyndahetjur eru ennþá vinsælt kvikmyndaefni. Batman II verður gerð, Bruce Willis leikur Hudson Hawk og Disney gerir mynd um The Rocketeer. 62 VIKAN 8.m • Kathy Bates heitir leikkon- an sem fékk óskarsverðlaunin fyrir aðalkvenhlutverkið í myndinni Misery sem er spennumynd eftir sögu Step- hens King, höfundar fram- haldssögu Vikunnar. James Caan leikur á móti henni í myndinni og leikur bara vel aö sögn gagnrýnenda vestan- hafs. Myndin verður sýnd í Bióhöllinni. • Meira um Bruce Willis. Hann leikur í myndinni Last Boy Scout sem Warner Brot- hers eru að gera núna. Hún fjallar um löggu sem vinnur með fótboltahetju í leit að morðingja. Tony Scott (Top Gun, The Revenge og Beverly Hills Cop II) leikstýrir mynd- inni. A Menn kann að greina á um hvort Julia Roberts hafi einhverja umtalsverða lelkhæfileika, en það er þó óumdeilan- lega eitthvað hrífandi við hana sem laðar menn að kvikmyndunum sem hún leikur í. A Bomban Basinger i stað Madonnu. • Madonna ætlaöi að leika aðalhlutverkið í myndinni Boxing Helena er hætti við af persónulegum ástæðum. Kim Basinger fékk því hlut- verkið en hún lék í 9 1/2 viku og Batman. ◄ Bruce Willis leikur í næstu Batman mynd.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.