Vikan - 15.10.1992, Qupperneq 41
SVARTILJÓNS
MILU TVÍTUGS
OG ÞRÍTUGS
aðrir hafi álíka kvaðir eða skyldur heima á
sama tíma. Það er ágætt að allir heimilisfastir
hafi ákveðnar skyldur heima en fráleitt ef ein-
um aðila er uppálagt að leysa bæði það að
vera meiri háttar fyrirvinna og svo fullkomin
heimilisþjónusta eftir langan og strangan
vinnudag. Hún hefur augljóslega meiri tíma
aflögu til þess arna en þú og ætti það að vera
henni Ijúft að leysa það sem ekki er endilega
nauðsynlegt að bætist á þig dauðþreyttan, á-
samt því að auki að fótumtroöa allt sem heitir
þín sjónarmið og hugmyndir um hvað betur
mætti fara og hver á að gera hvaö hverju
sinni.
KEPPINAUTAFERLI
ÓHEPPILEGT í HJÓNABANDI
Einhvem veginn sýnist mér að hún eigi erfitt
með að sættast á að árangur þinn starfslega
sé tilkominn vegna mikillar vinnu þinnar og
væntanlega einhverra þeirra eðlisþátta þinna
sem eru áhugaveröir og eftirtektarverðir þrátt
fyrir að það henti henni ekki að sjá slíkt. Þú
ert ef til vill í einhverri þeirri aðstöðu utan
heimilis sem hana dauðlangar f. Þetta er
nokkuð sem aðeins hvarflar að manni og af
þeim ástæðum - sem oftast eru ómeðvitaðar
- er kannski ekkert skrýtið, ef rétt er, þó hún í
vanþroska sínum haldi þér niðri á ósmekkleg-
an máta heima. Þetta er eins og verið sé að
undirstrika við þig að það sem gerist annars
staðar sé eins og hver annar misskilningur og
ekki mark á því takandi. Þetta gæti ekki gerst
nema einungis í samhengi hugsanaskekkju
sem annaðhvort á sér rætur í ómeðvitaðri af-
brýðisemi eða einfaldlega einhvers konar
geðvillu sem hefur í för með sér brenglaða
siðferðiskennd. Þess háttar hefur svo fárán-
legustu afleiðingar eins og komið hefur ber-
lega í Ijós í ykkar samskiptum á liðnum árum.
DAUÐIR HLUTIR EKKI LAUSN
Þegar kemur að úttekt okkar á dauðum hlut-
um og tilgangi þeirra í samskiptum okkar er
þetta að segja: Vissulega er ágætt að eiga
gott húsaskjól og einhvern möguleika á lúxus
og öðrum augljósum þægindum ef út í það er
farið. Dauðir hlutir koma samt ekki í stað
notalegra samskipta þó sum okkar virðumst
halda það.
Það er nú einhvern veginn þannig að við
getum ekki bætt samskipti okkar og ást með
því sem er einungis tengt atburðarás sem
fellur undir ytri hluti og aðstæður. Betra er
sennilega, að minnsta kosti í sumum tilvikum,
aö við leggjum til jafns við umbúðirnar eins
mikla og elskulega vinnu í þær tilfinningar og
þrár sem gera okkur mögulegt að elska hvert
annað og virða. Þegar veraldlegar kröfur okk-
ar eru á mörkum þess að vera siðlausar -
með tilliti til þeirra sem skortir allt en myndu
gjarnan kjósa eitthvað en eiga enga mögu-
leika á slíku vegna kringumstæðna sem eru
örðugar - er ágætt að minna sjálfan sig á að
allt er ágætt í sæmilega góðu hófi.
Best er kannski í samskiptum ef jafnvægis
gætir í öllum þeim þáttum sem teljast falla
undir sammannlega reynsluþætti sem þarf að
kljást við og eðlilegt er að við leysum saman í
sambúðarforminu en ekki sundruð eins og því
miður virðist viðgangast í hjónabandi þínu
núna. Augljóslega þarf ekki í þínu tiiviki að
auka veg þeirra veraldlegu sjónarmiða sem
áður virðast hafa ríkt í heimilismynstri þínu.
Slíkt hefur ekki gert ykkur hjónin nokkuð ham-
ingjusamari en þó þið bara hefðuð haft ögn
minna umleikis en meira af andlegu, tilfinn-
ingalegu og sálrænu jafnvægi til að moða úr.
BARSMÍÐAR VIÐURSTYGGÐ
Þú upplýsir mig um að konan þín gangi í
skrokk á þér hvenær sem henni sýnist svo og
þú hafir boriö þess merki svo ekki verður um
villst. Ef það hefur verið meining hennar að
beygja þig undir vilja sinn með slíkri vald-
níðslu og drottnunarþörf virðist það ekki á all-
an hátt hafa tekist því þá hefðir þú til dæmis
aldrei skrifað mér og reynt meðal annars með
því að íhuga þinn rétt í þeim ömurleika sem
yfirgangur maka alltaf er. Það er af og frá fyrir
mannfólkið aö berja hvað annað með hnefum
og dauðum hlutum hvenær sem viljinn fær
öðruvísi líf en löngun stóð til.
Hvers kyns líkamlegt sem andlegt ofbeldi
er viðurstyggð sem við í þessu ágæta samfé-
lagi okkar allra ættum að taka saman höndum
um aö uppræta hiö snarasta og velja okkur
fremur það hlutskipti gagnvart hvert öðru sem
er ögn siðfágaðra, meira spennandi og upp-
lífgandi en sá ruddaháttur sem alltaf fylgir
hvers kyns valdníöslu. Það getur varla verið
ráð til að leysa þig úr þessari áþján að svara í
sömu mynt, þótt það hafi óneitanlega, eins og
þú segir sjálfur, hvarflað að þér. Hætt er
nefnilega við, elskulegur, með tilliti til þess
hve þú ert rosalega reiður og búinn að vera
það lengi, aö þér gengi illa að temja atgang-
inn. Hann gæti þess vegna - með þessar
særðu tilfinningar stolts í farteski sálar þinnar
- orðið heldur óþyrmilegur, þó ekki væri þaö
upphaflega ætlunin.
FREKJUKÖST OG
FÁGAÐAR FLENGINGAR
Betra væri - þar sem mjög sennilegt er að
hún átti sig ekki á líkamlegum styrk þínum -
að taka þéttingsfast um hendur hennar ein-
hverju sinni þegar hún gerir sig líklega til að
berja þig, leggja hana rólega á hné þér og
niðurlægja hana eins og hún hefur unnið til
með því hreinlega að nota gamalkunna að-
ferð foreldra við sérlega yfirgangssöm börn,
það er að klappa þéttingsfast á þjóhnappa
hennar þannig að hún finni og skilji að þú ósk-
ar ekki eftir því að vera barinn meir. Þannig
afgreiðsla í ósæmilegum frekjuköstum hennar
á hennar eigin persónu myndi sennilega
verða henni nokkurt umhugsunarefni.
Líklega myndi þessi elska ekki óska eftir
frekari flengingum og í framhaldi af því bakka
með sínar grófu barsmíðar sem virðast til-
komnar einungis af því að hún hefur ekki séð
ástæöu til að kynna sér þann sannleik að til-
finningasambönd styrkjum við ekki með vald-
níðslu barsmíða og andlegrar kúgunar heldur
fyrst og fremst með skilningi á að við gerum
ekki aðra að því fólki sem við óskum heldur
verðum við að laga okkur með fyrirhöfn hvert
að öðru á jafnréttisgrundvelli. Þá erum við líka
að auka líkur á gæfusömu sambandi tveggja
einstaklinga sem byggja hvor annan upp en
brjóta ekki niður. Þrátt fyrir að ég gef þér þetta
gamalkunna ráð „þjóhnappasöngsins“ er ég
enn þeirrar skoðunar að líkamlegt ofbeldi eigi
enginn að ástunda.
OFSAFENGIN REIÐI
OG MÖGULEG MEÐFERÐ
Vegna þess að þú hefur ekki fengið færi á að
láta langvinna, samansafnaða reiði í hennar
garð brjótast fram, sennilega af ótta við hvers
kyns afleiðingar - er nokkuö Ijóst að þú finnur
fyrir síþreytu þess sem orðinn er þunglyndur.
Þú verður að átta þig á því að það er mjög
slæmt fyrir sálarheillina að takast ekki á við til-
finningar sem eru augljóslega sársaukafullar
og neikvæðar heldur bíta á jaxlinn og láta
liggja milli hluta hvert stefnir. Þetta er afleiðing
vonbrigðasúpu með makann og hefur áhrif á
innra líf. Frh. á bls. 44
JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL SVARAR BRÉPIFRÁ LESANDA