Vikan


Vikan - 15.10.1992, Blaðsíða 15

Vikan - 15.10.1992, Blaðsíða 15
uppfylla inntökuskilyrði? Una Sigurðardóttir er yfirflugfreyja Atlantsflugs en Una hefur starfað við flestar greinar innan ferðaþjónustu. Hún nefnir fyrst góða tungumálakunnáttu, auk ensku og dönsku þarf stúlkan helst að kunna bæði frönsku og þýsku og nú sé svo komið, vegna aukins flugs innan Evrópu, að þær sem kunni ítölsku og spænsku að auki eigi greiðari aðgang inn í starfið. „Svo þurfa þær að vera heilsugóðar, þolinmóðar og sterkar fyrir. Þetta starf hentar ekki veimiltítum og við reynum gjarna að grafast fyrir um það ( viðtölum við stúlkurnar hvernig þær bregðast við óvæntum uppákomum. Mér hefur líka þótt mikils virði að fá hjúkrunarfræðinga og læknanema í starfið og hlutfall þeirra starfsstétta er hátt meðal sumarstúlknanna rninna," segir Una. Auk þeirrar tungumálakunnáttu og grunn- menntunar sem sett er sem inntökuskilyrði flugfreyja um allan heim telur Kristín nauðsyn- legt að þykja gaman að umgangast fólk og hafa þjónustulund til að bera. „Það er gefandi þegar fólk fer ánægt frá borði og ferðin hefur gengið vel,“ segir hún. Berist kvörtun frá far- þegum telur Kristín nauðsynlegt að flugfreyja geti sett sig í spor viðkomandi; farþegar komi oft þreyttir um borð og sjálfsagt sé að taka tillit til þess. Einnig segir hún hafa reynst vel að leyfa þeim farþegum sem þjást af flughræðslu að fara fram í flugstjórnarklefa eftir flugtak. „Fólki líður oft betur að sjá með eigin augum að þar sitja tveir menn við stjórnvölinn með allt á hreinu," segir Kristín. SEX VIKNA SKÓLI Eftir að stúlkurnar komast í gegnum nálar- auga ráðningarstjóra tekur við sex vikna skóli þar sem tekinn er fyrir öryggisútbúnaður um borð og stúlkunum kennt hvernig bregðast skuli við aðsteðjandi vá. Síðan tekur við ítar- leg kennsla í skyndihjálp, farið er í saumana á þjónustu um borð, almenn framkoma er kennd, svo og framsögn. Flugfreyjuefnin fara síðan í flughermi og eiga þar að kljást við sviðsett slys; á við eld um borð eða neyðar- brottför úr vél. Þessi svokölluðu „drill" eru síð- an haldin einu sinni á ári. Þá eru björgunar- bátar settir út, farþegum ýtt út í rennu og stúlkurnar æfa sig í því að setja á sig reyk- grímu, sækja slökkvitæki, finna eld og slökkva hann. Einnig sækja þær eldvarnarnámskeið hjá slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli. Próf eru tekin eftir hvern þátt og til að standast prófin nægir að fá lágmarkseinkunnina níu! Upprifjunarnámskeið eru svo haldin árlega, auk þess sem flugfreyjur læra á hverja vélar- gerð fyrir sig ef um fleiri en eina er að ræða. Á námskeiðinu er einnig farið út í viðbrögð við því ef flugræningi kemur um borð og flugfreyj- ur Atlantsflugs nefna að þær hafi fengið góða upprifjun í öryggismálum þegar þær flugu fyrir El Al í ísrael en þar er öryggis svo stranglega gætt að vopnaður öryggisvörður fylgir eftir hverjum einasta hreinsunarmanni í vélunum. Þá er komið að skemmtilega hlutanum á námskeiðinu, því stúlkurnar fá leiðbeiningar um förðun og hárgreiðslu, auk þess sem Heiðar Jónsson ráðlagði flugfreyjum Atlants- flugs með göngulag, förðun og litaval á bún- ingi. CHANEL-ÁHÖFNIN Búningurinn er ávallt kapítuli út af fyrir sig og í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.