Vikan - 20.01.1995, Side 17
Guöbergur á útopnu í keppni.
Hann og kona hans hafa keppt i
flestum akstursgreinum sem
haldnar hafa verió.
Af gefnu tilefni skal tekiö fram aö
Guðbergur hefur flugmannspróf!
og hvetja mig, konur sem
jafnvel hafa farið að fylgjast
með sjónvarpsþáttunum mó-
torsport eingöngu vegna
þess að fulltrúi þeirra er
með.“
„Mér finnst að kvenfólk
eigi að koma mikið meira inn
í þetta." skýtur Guðbergur
inn í; „Það er staðreynd að
konur eru nettari ökumenn,
en það er alltaf þessi minni-
máttarkennd að karlmenn
séu sterkari og þar af leið-
andi séu þeir betri ökumenn.
En ( akstursíþróttum gildir,
og það hefur sýnt sig, að
konur eru nettari og þar af
leiðandi betri þegar til langs
tíma er litið en þær
hafa kannski ekki fjár-
magnið né geta gert viö
bílana sjálfar."
„Það eru margar kon-
ur sem hafa mikinn
áhuga, það vantar ekki;
En málið er það að Með-
al-Gunna hefur ,ekki að-
stöðuna; hvernigí á hún þá
að gera við og hvernig á hún
að bera sig að? Það eru ekki
allar konur sem eiga menn
sem vita allt um viðgerðir
eöa eiga vin sem getur eytt
öllum helgum og öllum
kvöldum í þetta. Ég er mjög
vel sett að eiga mann sem
er á kafi í þessu og veit út á
/, J hvað
þetta
/ gengur.“
Þau eru
J M líka svo
heppin að
eiga vini sem
eru tilbúnir að
leggja á sig
mikla vinnu til að allt
gangi upp. „Við erum að
jafnaði þrjú kvöld í viku og
einn helgidag að vinna í bíl-
unum og vinir okkar koma
alltaf og hjálpa til og án
þeirra gengi þetta ekki upp.
Sem dæmi fóru 1500 vinnu-
stundir í þaö einn veturinn
aö smíöa keppnisjeppann.
Það var jeppi sem var notað-
ur í keppni árið áður og við
þurftum að endursmíða."
Bakvið þau hjón stendur
harðsvíraður hópur aðstoð-
armanna sem hefur staðiö
með þeim í gegnum súrt og
sætt og lagt á sig ómælda
vinnu og fórnað frístundum
og jafnvel sumarfríum til að
allt gangi sem best. Það eru
þeir Guðni Guðnason, Hall-
dór Jóhannsson, Sigurður
Ingi Gunnarsson og Hjalti
Bjarnfreðsson, sem mynda
„gengið“ sem hafa reynst
svo vel og kunna Guðbergur
og Kristín Birna þeim bestu
þakkir fyrir!“
1. TBL. 1995 VIKAN 17
AKSTURSIÞROTTIR