Vikan - 20.01.1995, Qupperneq 18
Heimillslífið - hvernig
gengur að samræma það
við svo tímafrekt og kostn-
aðarsamt áhugamál? Kristín
Birna verður fyrir svörum:
„Við segjum nú stundum í
gríni að við bara klípum af
mjólkurpeningnum! Nei, nei
það er margt sem spilar inn í
og þá aðallega auglýsing-
araðilarnir."
Guðbergur: „Við erum svo
heppin að hafa bæði þessa
bakteríu svo að það er í
sjálfu sér ekki vandamál."
„Við erum bæði þannig gerð
að ef við förum út í eitthvað
þá leggjum við okkur öll fram
Spáð í til að ná sem bestum ár-
brekkur. angri, öðruvísi þýðir ekki að
standa að málum. Við rífum
bílinn í spað fyrir hverja
keppni, það er svo margt
sem getur bilað. Við verðum
að vera örugg um að þetta
sé í lagi, til dæmis fór einu
sinni gírkassí í miðri keþpni
og ég skipti um hann á tutt-
ugu mínutum milli riðla. í
Mæöginin
Viktor og
Kristín
Birna ræö-
ast viö fyrir
keppni.
Hvaöa ráö
skyldi hann
hafa gefiö
móöur
sinni?
keppni förum við með því
hugarfari að sigra, við látum
okkur ekki nægja annað eða
þriðja sætið," segja þau
bæði.
„Við höfum mjög góða
stuðningsmenn. Án þeirra
væri allt þetta ekki mögulegt.
Þetta verður til þess að við
þurfum ekki að leggja eins
míkinn pening í þetta sjálf,
við fáum stuðning í formi
vöruúttekta og peninga auk
allskonar þjónustu. Við höf-
um haft sömu „sponsorana11
síðan 1980 til dæmis Nóa
Siríus Bræðurna Ormson og
Shell."
Áhættuakstur í Löggulífi en Guöbergur hefur tekiö aö sér
áhættuleik í mörgum íslenskum kvikmyndum.
Guðbergur og Kristín
Birna skiptast á að keppa.
Annað árið keppir Guðberg-
ur í rallýi og hitt árið Kristín
Birna t.d. í torfæru o.s.frv.
Varðandi börnin segjast þau
mæta skilningi hjá foreldrum
og systkinum Guðbergs
þegar mikið liggur við. „Börn-
in fylgjast vel með og það
fyrsta sem þau spyrja þegar
við komum heim úr keppni
er: Vannstu ekki pabbi eða
vannstu ekki mamma? Þau
hafa delluna líka og það er
gaman að því.“
Nú hlýtur áhættan að vera
mikil. Eru þið aldrei hrædd
hvort um annað?
Guðbergur: „Nei, ég vil
meina að akstursíþróttir séu
ekki hættulegri en daglegur
akstur úti í umferðinni. Ég er
búinn að velta bíl fjórtán
sinnum og þar af tvisvar á
178 kílómetra hraða. Það
var í rallýkeppni. Annað
skiptið fór ég 110 metra yfir
stórgrýtt fjörugrjót og við
sluppum út úr þessu nær
ómarðir. Bíllinn var gerónýt-
ur en öryggisbúrið hélt.“
En þú hefur slasast er það
ekki?
Guðbergur: „Jú en það er
aðallega á æfingum fyrir
áhættuatriði sem ég hef lent
í slysum. Maður hefur verið
að stökkva á mótorhjólum
og velta bílum en það hefur
aldrei gerst á sjálfri sýning-
unni eða í tökum. Maður
gerði ýmis mistök þegar
maður var að byrja, til dæm-
is braut ég einu sinni á mér
öxlina þrisvar sinnum við æf-
ingar á veltu. Hún brotnaði
fyrst og síðan, þegar ég hélt
að ég væri orðinn góður, þá
brotnaði ég aftur vegna þess
að öryggisþeltin þrýstu alltaf
á. Þeir voru farnir að þekkja
mig niðri á slysavarðstofu.
Málið er að hafa vald á að-
stæðum. Ég hef það alltaf
þannig núna að það séu
svona 90% líkur á því að
sleppa óskaddaður út úr
þessu. Annars sþáir maður
alltaf í hvað maður er að
gera, hefur allar stefnur á
hreinu og veit svona nokk-
urn veginn hvar maður lendir
t.d. þegar maður er að
stökkva.11
Kristín Birna: „Ef ég væri
að velta mér upp úr því
endalaust og botnlaust að
hann myndi nú geta slasast
þá myndi ég ekki halda lífi af
áhyggjum. Ég hef fullkomna
trú á því sem hann er að
gera. Hann passar að hafa
öll öryggisatriði í lagi bæði
þegar ég er að keyra og líka
hann og ég hugsa bara; það
skeður ekkert - og ef það
skeður eitthvað þá tekur
maður á því þegar þar að
kemur. Það þýðir ekkert ann-
að en að hafa bara fulla trú á
þessu.11
Blm: Ég heyrði að þú og
félagi þinn hefðu gengið
fram af sýningarhópnum
Hell Drivers?
Guðbergur: „Það var
þannig að við vorum fengnir
til að aðstoða þá og vorum
sjálfir búnir að gera ýmsar
kúnstir á mótorhjólum,
stökkva og slíkt, og fannst
þetta ekkert vera sem þeir
voru að gera. Þannig að við
buðum þeim í lokin í keppni
að stökkva á mótorhjólum. í
sýningunni hjá þeim var at-
riði þar sem stokkið var yfir
sex bíla, eitthvað um tólf
metra. Stökkpallurinn var
settur upp og í fyrstu lotu
stukkum við yfir þrjátíu
metra. Þeir hristu höfuðin og
sögðu: „Crazy lcelanders11
og fóru.11
Blaðamaður Vikunnar
spurði hvert þeirra keyrði
fjölskyldubílinn þegar þau
væru saman. Þau sögðu að
oftast væri það Guðbergur
en einu sinni hefði Kristín
Birna alltaf skutlað honum í
vinnuna á morgnana af því
að hún þurfti að fara lengra
og þá hefði ekki liðið á löngu
þangað til að sú saga gekk
fjöllunum hærra að Guð-
bergur hefði misst ökuskír-
teinið! Aðspurð sögðu þau
að lífið á toþþnum væri ekki
tóm sæla og vissulega yrðu
þau vör við öfund og baktal.
Kristín Birna: „Það sem er
sárast er hvað fólk getur ver-
ið ósanngjarnt. Vinur okkar
spurði okkur hvernig við
gætum sofið á nóttunni fyrir
öllum kjaftasögunum en við
heyrum auðvitað allt síðast
og við látum þær eins og
vind um eyru þjóta.11 Þau
sögðu bæði að þau vildu
njóta lífsins, ferðast og leika
sér á bílunum og þótt að
húsið væri bara hálfklárað
og margt væri eftir „þá lifum
við bara einu sinni og arinn-
inn getur beðið því það er
svo margt annað sem við
viljum gera fyrst.11 Þess má
geta að Rallýcrossbíll þeirra
hjóna er til sölu á kr 800,000
kr. sem þykir ekki mikið fyrir
jafn vel útbúinn bíl. Hann er
af gerðinni Porche 911 og
fyrir þá áhugasömu er Guð-
bergur í símaskránni. Það
stendur nefnilega til að taka
smá frí næsta sumar og jafn-
vel ferðast erlendis. Þau
hafa kynnt sér aðstæður er-
lendis til keppni og fóru m.a.
til Frakklands í þeim tilgangi
og vilja ekki útiloka að ein-
hvern tímann verði keppt á
erlendri grundu. Blaðamaður
fékk að líta inn í sjálfan
helgidóminn, tvöfalda bíl-
skúrinn þar sem kraftaverk
eru unnin. Guðbergur steypir
sjálfur bretti, skottlok og þ.h.
á keppnisbílana úr trefja-
þlasti. Þarna var t.d. bretti
með Shellmerki nýsprautað
og tilbúið á bílinn. Að sögn
Guðbergs leggja þau mikla
áherslu á að bíllinn líti alltaf
vel út og auglýsingarnar sjá-
ist vel. Ef eitthvað skemmist
er einfaldlega skipt um á
staðnum. Einnig voru þarna
vélar, gírkassar og fjöl-
skyldubíllinn en hann var
verið að sþrauta. En bílskúr-
inn gegnir margþættu hlut-
verki, því auk þess að vera
smiðja keppnisökutækja,
hafa margir Porche eigendur
leitað til Guðbergs ef eitt-
hvað hefur bilað því hann er
manna fróðastur um þessa
eðalvagna og getur gert við
eða leyst úr raunum þeirra á
annan hátt. Það er skoðun
blaðamanns eftir þetta viðtal
að sjaldan hafi hann hitt jafn
lífsglatt og hamingjusamt
fólk og þau Guðberg Guð-
bergsson og Kristínu Birnu
Garðarsdóttur. □
18 VIKAN l.TBL. 1995