Vikan


Vikan - 20.01.1995, Síða 41

Vikan - 20.01.1995, Síða 41
um frjálsan vilja og verðum þar af leiðandi annars vegar að taka afleiðingum gjörða okkar og hins vegar að átta okkur á því að það breytist ekkert í hugsun okkar ef við viljum það ekki sjálf, alveg sama hvort við erum hérna megin grafar eða hinum megin. Það segir sig því sjálft að dóttir Sillu á margt ólært og óuppgert og verður náttúrlega sjálf að taka af- leiðingum gjörða sinna þótt vissulega eigi hún kost á hjálp og kærleikslíkn í ríki Drottins, ef hún vill. SJÁLFSSVIPTINGIN ER ÁKVÖRÐUN GERANDANS Auðvitað getur Silla ekki sætt sig við hverníg fór. Það er vissulega mannlegt. Það er mjög skiljanlegt að hún sé reið og sár þessum manni sem hún álítur að hafi haft gæfu dóttur sinnar í hendi sér. Málið er bara það að við getum ekki gert aðra ábyrga fyrir því ef einhver okkur kær velur sjálfssviptingu sem jarðvistarlok. Hún er ákvörð- un gerandans og þá er alveg sama hvort aðrir hafa komið illa fram við viðkomandi eða ekki. Við höfum frjálsan vilja og við hljótum að ákveða það sjálf, ef við sjáum til- gang með lífi okkar og tilveru og veljum því í einhvers kon- ar bráðræði sjálfssviptingu sem lausn. SEKUR UM SVIK OG TILFINNINGALEGA FATLAÐUR Vissulega má segja sem svo að þessi maður hefði ekki átt að gylla neitt fyrir dóttur Sillu og alls ekki að telja henni trú um að hann elskaði hana úr því að hann gerði það ekki. Hann er vissulega sekur um að hafa svikið hana og dregið hana á tálar en hann getur ekki talist ábyrgur fyrir framkvæmd hennar samt. Hún átti val og hún valdi ( örvæntingu sinni og skammsýni sjálfssvipt- ingu sem lausn sinna mála. Hann hvatti hana ekki til þess eða óskaði henni dauða. Hann sveik hana og fyrir það framferði verður hann að svara fyrr eða síðar. FRH. Á BLS. 44 SALRÆN SJONARMIÐ

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.