Vikan - 20.01.1995, Page 42
NIGDH
LðluNÁRFEÉlÐ
TEXTI: SVAVA JÓNSDÓTTIR / UÓSM.: BRAGI ÞÓR JÓSEFSSON
AHA-sýrur, Alpha
Hydroxid Acids, eru
ávaxtasýrur sem á
undanförnum ellefu árum
hafa verið notaðar í húð-
krem í Bandaríkjunum. Hér
á landi er hins vegar um að
ræða nýjung og segja má að
bylting hafi orðið þegar krem
sem innihéldu AHA-sýrur
komu á markaðinn á síðasta
ári.
Glycolicsýra er sú AHA-
sýra sem hefur minnsta
sameindabyggingu. Hún
finnst í sykureyr og er mest
notuð í hinum nýju AHA-
sýrukremum. Vegna hinnar
litlu sameindarbyggingar
gengur hún betur inn í húð-
ina en aðrar sýrur og sam-
lagast henni þar af leiðandi
betur. Linda Sigurðardóttir,
snyrtifræðingur á Snyrtistofu
Lindu í Keflavík, segir að
þær sýrur sem efnafræðing-
ar þróa, skili hvað bestum
árangri.
I BARÁTTUNNI VID
ELLI KERLINGU
Þær konur sem aðallega
nota húðkrem, sem inni-
halda AHA-sýrur, eru komn-
ar á þann aldur að fínar
hrukkur eru farnar að mynd-
ast á ysta lagi húðarinnar.
„Sýrurnar grynnka þó nokk-
uð á djúpum
hrukkum ef
kremin eru
notuð rétt í
um það bil
hálft ár,“
segir Linda.
„Mér finnst
það þó
hæpið að
nokkuð
djúpar
hrukkur
hverfi alveg.
Fíngerðar
hrukkur
minnka
verulega og
það er búið
Linda segir samvinnu á , .
milli snyrtifræöinga og ' ,,
húösjúkdómalækna nauö- "3m a að Öll
synlega í þessum efnum. frumuupp-
röðun ( húðinni verður miklu
skipulegri auk þess sem sýr-
urnar örva kollagenfram-
leiðslu hennar. Flestar konur
finna fyrir töluverðri stinn-
ingu eftir nokkrar vikur og
það er mjög góð tilfinning.
Húðin er orðin líkari því sem
hún var kannski fyrir fimm
árum. Og slappleikinn, sem
kemur með árunum, hverfur.
Hvað sem veldur því þá
finnst sumum konum þær
sjá mun á fínum hrukkum
eftir að hafa notað AHA-
sýrukrem í þrjár vikur."
AHA-sýrur eru einnig not-
aðar á þykka og grófa húð
og húð sem þjáist af ein-
hvers konar hornlagskvillum
þar sem sýrurnar þynna
hornlagið. Kremin hafa verið
notuð á vissa tegund af
unglingabólum en nauðsyn-
legt er að gæta þess að ekki
sé mikið um sár á húðinni.
Einnig þarf að gæta þess að
ekki sé um einhvern húð-
sjúkdóm að ræða.
GÓDURÁRANGUR
AHA-sýrurnar gera það að
verkum að blóðrás í of þykkri
húð lagast. Þær hreinsa
dauðar húðfrumur af yfir-
borði húðarinnar auk þess
sem sýran fer inn í húðina
og hreinsar fitukirtlana.
„Stundum stíflast þeir vegna
þess að dauðar húðfrumur
safnast fyrir ofan í þeim.
Þegar þessi fyrirstaða er far-
in fara fitukirtlarnir að starfa
eðlilega. I rauninni þykknar
húðin af sýrunum. Það er
einungis yfirborðið, dauða
hornlagiö, sem slípast og
þynnist en undirlagið þykkn-
ar þannig að húðin er í raun-
inni sterkari á eftir og það
ber minna á háræðasliti.
Þegar við eldumst þynnist
undirlagið en yfirlagið þykkn-
ar þannig að þetta snýr öldr-
unarferlinu við. Ef konur
hætta hins vegar að nota
AHA-sýrur hefst öldrunarferli
húðarinnar á ný.“
MEDFERÐIN
Konur geta ekki komið í
sýrumeðferð á snyrtistofum
án þess að hafa vanið húð-
ina við kremin í tvær til þrjár
vikur. Snyrtifræðingar, sem
nota sömu tegund og Linda,
M D Formulation, mega nota
krem með 40% sýru. Þeir
bera það á húðina, konan
hefur það á í nokkrar mínút-
ur og síðan er það hreinsað
af. Eftir það er rakakrem bor-
ið á. Þau krem, sem seld eru
í snyrtivöruverslunum, inni-
halda í mesta lagi 14% sýru.
„Þegar konan er búin að
„snúa“ húðinni svolítið við,
þynna yfirlagið og þykkja
undirlagið, held ég, persónu-
lega, að við hljótum að þurfa
að draga svolítið úr notkun-
inni,“ segir Linda. „í staðinn
fyrir að nota kremin daglega
þá væri betra að nota þau á
tveggja eða þriggja daga
fresti. Allt, sem veldur ein-
hverri svona breytingu, notar
maður að einhverju vissu
marki. Síðan dregur maður
úr notkuninni. En auðvitað er
það persónubundið hvað
það tekur langan tíma að ná
settu marki."
í SAMVINNU VIÐ
LÆKNA
„Þar sem fólk á greiðari
aðgang að snyrtifræðingum
en læknum sækja margir
fyrst til okkar,“ segir Linda.
„Það er okkar að velja úr þá
sem við sjáum að eru komnir
á sjúkdómsstig og þá er
nauðsynlegt að þeir fari til
læknis og fái rétta meðferð.
Mér finnst ábyrgðin vera
svolitið hjá okkur, snyrtifræð-
ingum, vegna þess að þegar
við fáum fólk sem er með
mjög slæmar bólur verðum
við að benda því á að fara til
húðsjúkdómalæknis. Við
42 VIKAN 1. TBL. 1995