Vikan - 20.01.1995, Síða 48
STJÓRNMÁL
FRH. AF
BLS. 38
IS
o
<
IA
... verður mjög
spennandi að sjá
hvort einhver vill
takast á við emb-
ætti forseta Al-
þingis á næsta
kjörtímabili.
slepptu prófkjöri og notuðu
uppstillingaraðferð við að
raða á framboðslista við
næstu alþingiskosningar.
Telurðu að Guðrún hafi
þarna verið að forða sér frá
svipaðri útreið og þú fékkst í
þínum flokki?
„Nú vil ég ekki svara fyrir
Guðrúnu um þetta efni en
hún var ein af þeim sem
hringdu í mig eftir prófkjörið
og hafði sárnað niðurstaða
þess fyrir mína hönd. Það
getur svo sem vel verið að
útkoma mín hafi haft einhver
áhrif og hún hefur örugglega
komið mjög flatt upp á Guð-
rúnu.“
í framhaldi af þessari um-
ræðu kemur upp nafn Jó-
hönnu Sigurðardóttur og sú
ákvörðun hennar að segja
sig úr lögum við Alþýðuflokk-
inn og setja á stofn eigið
stjórnmálaafl. Ég nefni þetta
í tengslum við hugmyndir
um sérframboð Salome
Þorkelsdóttur.
„Vegna þess að það
myndi aldrei hvarfla að mér
að gera slíkt á ég mjög erfitt
með að setja mig í þau spor
Jóhönnu að kljúfa flokkinn
sinn. Ég sé ekki fyrir mér
hver hennar framtíð verður
þótt klofningurinn hafi fallið í
góðan jarðveg á ýmsum
stöðum. Og þá ekki síst utan
Alþýðuflokksins. En ég get
ekki ímyndað mér að Jó-
hanna sé hamingjusöm með
þetta hlut-
skipti sitt því
ég hefði
haldið að
hún væri í
hjarta sínu
hreinræktuð
alþýðu-
flokksmann-
eskja. Það
er einnig skoðun mín að það
sé heilsuspillandi að taka sí-
fellt argur og reiður þátt í
stjórnmálum. Það held ég að
sé mjög erfitt."
Meðal þess, sem nefnt
hefur verið ástæða þess að
Salome gekk ekki sem skyldi
í prófkjörinu, var það að hún
hefði verið mjög upptekin við
amstur tengt hátíðahaldi lýð-
veldisafmælisins á Þingvöll-
um þar sem haldinn var
þingfundur þann 17. júní síð-
astliðinn og frægt varð. Sal-
ome gerir ekki mikið úr því
en það birtir yfir henni, eftir
tal um svartnætti stjórnmál-
anna, þegar afmælið ber á
góma því það segir hún hafa
verið hátíðlegustu stundir
allrar sinnar ævi. „Þetta var
alveg stórkostlegt því þarna
hélt Alþingi fund á Þingvöll-
um og tiginbornir, erlendir
gestir þjóðhátíðarinnar og
þeir íslendingar, sem þang-
að komu, voru einnig gestir
Alþingis.
Og það kom í minn hlut að
stjórna þeim fundi,“ segir
Salome og að hennar mati
jaðraði það við kraftaverk
þegar nokkrir svanir tóku sig
til og flugu tignarlegt odda-
flug yfir Lögberg rétt í þann
mund sem Salome ætlaði að
standa upp til þess að setja
fundinn. „Það var ógleyman-
leg stund þegar svanirnir
flugu yfir með tilheyrandi
vængjaþyt. Meira að segja
spurði einn erlendu gest-
anna starfsmann hátíðarinn-
ar hvort þetta hefði verið
hluti af dagskránni og svan-
irnir úr plasti og fjarstýrðir!"
En um leið og þjóðhátíðin
á Þingvöllum varð hátíðleg-
ust upplifun í lífi Salome
Þorkelsdóttur þá varð hún,
eftir á að hyggja, einnig
mesta áfallið. Og þar eru
niðurstöður prófkjörsins
meðtaldar. Fjöldi fólks, sem
hóf daginn í hátíðarskapi,
sat hátíðarhaldið af sér í um-
ferðarrembihnút. „Ég vissi
ekki hvað hafði gerst fyrr en
fyrrum alþingismaður, sem
lagði leið sína alla leið aust-
an af landi, hringdi í mig eld-
snemma um morguninn.
Hann sagðist hafa ætlað á
hátíðina en setið fastur ( um-
ferðinni allan daginn og var
skiljanlega verulega sár yfir
því. Þetta var það fyrsta sem
ég frétti af vandamálum í
umferðinni við hátíðina og
því er ekki að neita að ég
varð fyrir töluverðu áfalli við
tíðindin. Hinu má síðan ekki
gleyma, þegar rætt er um al-
þingishátíðina, að við settum
einnig upp sýningu hér (
þinghúsinu af sama tilefni og
hingað komu u.þ.b. 12000
manns á átta vikum sem
fæstir höfðu komið áður í Al-
þingishúsið.
Og ég hef sjálf tekið á
móti fjölmörgum sem hafa
komið til skoða húsið. Þá hef
ég flutt stutt erindi fyrir gest-
ina, enda þykir mér dapur-
legt hve lítið fólk virðist vita
um starf þingsins og þing-
manna. Sú mynd, sem dreg-
in er upp af okkur í fjölmiðl-
um, er oft einsleit og ekki
raunsönn."
í samræmi við vilja sinn til
þess að fólk þekki til starfa
Alþingis er Salome ánægð
með þá þróun að sjónvarpað
sé beint frá þingfundum.
Hún segir þó að í ræðustóli
þingsins fari fram minnstur
hluti af starfi þingmannsins
þótt sá þáttur sé mest áber-
andi.
„Hér áður fyrr voru þing-
menn mjög meðvitaðir um
það þegar fjölmiðlamenn
voru á staðnum eða áheyr-
endur á pöllunum. Þeir
beindu þá orðum sínum
Það er aldrei að
vita nema ég, sem
fráfarandi þing-
maður, fái gott
embætti einhvers
staðar. Annað eins
hefur nú gerst.
Einhver varð
meira að segja
seðlabankastjóri,
og annar sendi-
herra, það er eins
og mig minni það.
gjaman til þeirra og settu dá-
litla leikþætti á svið fyrir við-
stadda. Þetta hefur breyst
eftir að sjónvarpsútsending-
arnar hófust frá Alþingi og
nú vill meira að segja stund-
um brenna við að menn
gleymi því að þeir séu í
beinni útsendingu. Engu að
síður verðum við vör við
mjög mikinn áhuga á þess-
um útsendingum. Sjálf hef
ég rætt við fólk sem ég þekki
ekkert og hefur jafnvel kom-
ið að máli við mig, til dæmis
á biðstofum, og lýst skoðun-
um sínum á störfum þings-
ins.
Við megum heldur ekki
gleyma því að sumir þing-
menn koma ekki oft í ræðu-
stól þótt þeir slái ekki slöku
við í starfi sínu. Sumir eru
oftar í stólnum en aðrir og
eru þar af leiðandi meira
áberandi. Það fer yfirleitt eft-
ir því hverjir eru talsmenn
sinna þingflokka í ákveðnum
málefnum. Þeir láta mest að
sér kveða þegar þeirra mál
eru tekin til umræðu á þing-
fundum. Síðan eru auðvitað
til menn sem vilja minna á
sig og að þeir séu til, koma
höggi á andstæðinga sína.“
SÁTTASEMJARI
ALÞINGIS
Forseti Alþingis heldur ut-
an um störf þingsins og Sal-
ome notar samlíkingu á þá
leið að hún starfi sem nokk-
urs konar „framkvæmdastjóri
fyrirtækisins". „Ég held fundi
með formönnum þingflokk-
anna þegar ástæða er til og
stundum nokkra á dag, eink-
um þegar umræður eru
langar og strangar. Þá erum
við að reyna að ná sam-
komulagi í tilteknum málum
og því má segja að forseti sé
oft og tíðum sáttasemjari
milli stjórnarflokka og stjórn-
arandstöðu.
Það hefur raunar verið
sagt um mig að ég geti verið
of höll undir ríkisstjórnina og
að forsætisráðherra stjórni
þinginu gegnum mig en það
er mikill misskilningur. Ég
þarf auðvitað að eiga gott
samstarf við hann og yfirleitt
alla ráðherra í ríkisstjórn.
Sama gildir um samstarf við
stjórnarandstöðu.
Þetta eru ástæðurnar fyrir
því að ég tók ákvörðun um
það við upphaf þessa kjör-
tfmabils að meðan ég
gegndi þessu embætti
myndi ég ekki taka þátt í um-
ræðum um mál á þingfund-
um.
Mér þykir hins vegar frá-
leitt að það, að gegna þessu
virðingarmesta embætti
þingsins, skuli þurfa að
kosta viðkomandi þingmann
þingsæti sitt vegna þess að
hann sé ekki talinn sinna
þingmennsku sinni á meðan.
Því miður virðist þó fyrsta
reynsla okkar af þessu fyrir-
komulagi sýna að svo sé.
Þvert á móti ættu flokkarnir
að sjá sér sóma sýndan í því
að þingmaður úr þeirra röð-
um sé kjörinn forseti Alþingis
sem er einnig einn þriggja
handhafa forsetavalds.
Þessum störfum fylgja ýms-
ar opinberar skyldur.
Að fenginni þessari
reynslu verður mjög spenn-
andi að sjá hvort einhver vill
takast á við embætti forseta
Alþingis á næsta kjörtímabili
og síðan hvernig viðkomandi
muni reiða af í næstu kosn-
ingum á eftir. Sjálf sé óg alls
ekki eftir að hafa gegnt
þessu embætti. Mér þótti
það á sínum tíma mun eftir-
sóknarverðara og mikilvæg-
ara en til dæmis ráðherra-
embætti."
Ef þú hefðir sóst eftir ráðu-
neyti, hvert þeirra hefði orðið
fyrir valinu? „Ýmis. Ég hefði
t.d. alveg getað hugsað mér
48 VIKAN l. TBL. 1995