Vikan - 20.01.1995, Qupperneq 60
MATUR
ur í salati meö gulrótum og
skalotlauk.
Þótt rannsóknir á þara séu
skammt á veg komnar er
hann þekktur fyrir aö vinna
vel gegn veiru- og bakter-
íusýkingum. Einnig er taliö
að þari vinni gegn magasár-
um og í Japan er neysla
brúns þara talin koma í veg
fyrir of háan blóðþrýsting.
Sumar rannsóknir gefa til
kynna að spírúlína lækki kól-
esterólmagn í blóði og aðar
rannsóknir benda til að lág
tíðni brjóstakrabbameins í
Japan sé að þakka mikilli
þaraneyslu japanskra kvenna.
Þær þarategundir sem fást
hér heita Wakame, Nori og
Kombu eða kelp. Wakame
er afar trefjaríkur, auk þess
sem hann inniheldur mikið
kalíum, magníum og járn. í
Nori, sem er notað utan um
sushi, er auk þess mikið
magn af C-vítamíni. Kombu
eða kelp, er enn ein þaraaf-
urðin á boðstólum en kelp er
sömuleiðis hlaðið hinum lífs-
nauðsynlegu steinefnum,
sem íslendingar fá almennt
allt of lítið af, meðal annars
vegna mýktar drykkjarvatns-
ins. Auðvitað er engin skylda
að kaupa þarann sinn úti í
búð. Það er ekkert sem mæl-
ir gegn því að ganga fjörur
og tína sinn eigin þara úr
hreinasta hafi veraldar
eða þar um bil og fá
þannig holla
hreyfingu og
súrefni í
kaup-
bæti.D
HOLLUSTA
UR HAFINU
GETUR ÞARI UNNIÐ GEGN BRJÓSTAKRABBA,
OF HAUM BLOÐÞRÝSTINGI OG MAGASÁRUM?
TEXTI:
ÞÓRDÍS
BACH-
MANN
UÓSM.:
M.H.
Sushibakki
frá Hótel
Borg,
fram-
reiddur af
Tsuneo
sushi-
meistara
frá Japan.
Matur fer misjafn-
lega vel í fólk og
sest misskemmti-
lega utan á það. Þeir, sem
kynnst hafa japönsku sushi,
kunna ekki síður að meta
vellíðanina og léttleikann að
máltíð lokinni en bragðið af
hráa fiskinum, hrísgrjónun-
um og þaranum utan um. Nú
er þari kominn á hvers
manns borð og þarf engan
að undra. Innrás þarans er
þó ekki vegna neinna vís-
indalegra uppgötv-
ana.
Mestar líkur eru á því að
stöðug leit að fæðu, sem
getur varið fólk fyrir sjúk-
dómum, hafi gert að verkum
að farið var að skoöa þara
nánar. Ástæður fyrir vin-
sældum þarans eru að hluta
þau rakagefandi og þar með
yngjandi áhrif sem hann hef-
ur á húðina og í annan stað
má nefna hið eilífa aðdrátt-
arafl hafsins.
Framtíðarspár hafa lengi
vel spáð þeim degi að stór
hluti fæöu
muni koma úr sjávargróðri.
Þetta er ekki svo langsótt
vegna þess að þang og þari
eru löðrandi af mikilvægum
næringarefnum. Flestir
hugsa líklega fyrst og fremst
um þara sem vafning utan
um sushi en fegrunariðnað-
urinn er líka farinn að nota
þara í alls kyns yngingar-
vöru, frá sápum til raka-
krema. Heilsan er eitt, en
hvernig bragðast þarinn ein-
tómur, án hrísgrjóna og fisk-
fyllingar? Bragðið hefur
hnetukeim og þarinn er svo-
lítið saltur. Hann bragð-
ast þó vel
snögg-
steikt-