Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 36
FLOTTUR
STUTTERMA
JAKKI
Upplýsingar um hvar
Tinnugarnið fæst í síma: 565-4610
'P'iýáttað ÓCl
mandarin .
100% bómull
I STÆRÐIR: S M L XL
Yfirvídd á jakka: 98 106 114 122 sm
|: Sídd: 50 52 54 56 sm
i! Ermalengd: 14 15 15 16 sm
f MANDARIN PETIT
Blátt nr. 358 5 6 6 7 d.
I Einnig er hægt að nota SISU
.
ADDI PRJONAR FRA TINNU:
; 60 sm hringprjónn nr. 2.5
Mælum með BAMBUSPRJÓNUM
60 sm hringprjónar nr. 3
Tölur: 9 stk.
Axlapúðar
Góðir fylgihlutir:
Merkihringir, prjónanælur,
þvottamerki fyrir garnið.
; PRJÓNFESTA:
27 lykkjur í sléttu prjóni á prjóna nr. 3
! = 10 sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.
BAKSTYKKI:
Fitjið upp á hringprjón nr. 2.5, 133-144-
155-166 lykkjur. Prjónið 5 prjóna
garðaprjón fram og til baka. Skiptið yfir á
hringprjón nr. 3 og prjónið munstur, byrj-
ið og endið hvern prjón á 1 sléttri lykkju.
Þegar stykkið mælist 28-29-31-32 sm er
\ komið að handveginum. Fellið af 17
lykkjur í báðum hliðum = 99-110-121-132
lykkjur. Prjónið beint áfram þar til hand-
vegurinn mælist 22-23-23-24 sm. Fellið af
fyrstu og síðustu 27-31-35-39 lykkjurnar á
öxlum, en setjið lykkjurnar í hálsmálinu á
nælu.
VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp á hringprjón nr. 2.5, 65-70-75-
80 lykkjur. Prjónið 5 prjóna garðaprjón
fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón
nr. 3 og prjónið munstur. Byrjið á rétt-
unni með 1 sléttri kantlykkju í hliðinni,
prjónið munstur 5-6-6-7 sinnum + síðustu
9- 3-8-2 lykkjurnar við frambrúnina sléttar.
Þessar síðustu lykkjur eru alltaf prjónaðar
með sléttu prjóni. Þegar stykkið mælist
28-29-31-32 sm er komið að handveginum.
Fellið af 17 lykkjur í hliðinni og prjónið
beint áfram þar til handvegurinn mælist 9-
10- 10-11 sm. Fellið af fyrir hálsmáli 11-12-
13-14 lykkjur 1 sinni, 5 lykkjur 1 sinni, 2
lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 3 sinnum = 27-
31-35-39 lykkjur á öxl. Prjónið áfram þar
til handvegurinn mælist 22-23-23-24 sm.
Fellið af.
HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og það vinstra, en gagnstætt.
ERMAR:
Fitjið upp 89 lykkjur á hringprjón nr. 2.5
fyrir allar stærðirnar og prjónið 5 prjóna
garða-prjón fram og til baka. Skiptið yfir
á hringprjón nr. 3. Byrjið á 1 sléttri kant-
lykkju og endurtakið síðan munstrið 8
sinnum. Ekkert er aukið í á minnstu
stærðinni, en á hinum er aukið í 1 lykkju í
byrjun og enda prjóns með 2-2-1.5 sm mil-
libili 3-3-6 sinnurn = 95-95-101 lykkja.
ATHUGIÐ: 2 fyrstu útauknu lykkjurnar
í báðum hliðum eru prjónaðar brugðnar
eins og munstrið sýnir og hinar lykkjurnar
eru prjónaðar sléttar án gatamunsturs.
Þegar ermin mælist 14-15-15-16 sm er fellt
hæfilega laust af.
HÁLSLÍNING:
Saumið axlir saman. Prjónið upp í
hálsmálinu á hringprjón nr. 2.5, 5 lykkjur
á hverja 2 sm (í hálsmálinu að aftan eru
teknar úr 10 lykkjur með jöfnu millibili.
Prjónið 5 prjóna garðaprjón. Fellið af.
VINSTRI LISTI:
Byrjið efst í hálsmálinu og prjónið upp
meðfram frambrúninni á hringprjón nr.
2.5, 5 lykkjur á hverja 2 sm. Prjónið 5
prjóna garðaprjón fram og til baka. Fellið
af. Merkið fyrir 9 tölum á miðjum listan-
um, þeirri efstu og neðstu 1 sm frá brún og
hinum með jöfnu millibili.
I
nrcnu mm "" — mnn» ra □3 0
liKrapi a 7i ó 'Z
■npaa ■nna n X. L
■nnc 1 ■rjna n O
arna mrm* i£ M
mmnu a 2 unnm v: 'L 5 3 Y V
mnnw fl mnnm V
■nnMBr■ ■ ■nniDnÞiri ■ mnn
1 munstur =11 lykkjur
endurtekið
Endurtakið
n = Slétt á réttu, brugðið á röngu.
E1 = Brugðið á réttu, slétt á röngu.
[ö] = Sláið bandi upp á prjóninn.
3 = Prjónið 2 sléttar saman.
HÆGRI LISTI:
Prjónaður eins og sá vinstri, en með
hnappagötum á þriðja prjóni á móts við
tölurnar. Hvert hnappagat er gert yfir 2
lykkjur.
FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma. Saumið ermarnar
saman, skiljið eftir op jafn breitt og
lykkjurnar 17 sem felldar voru af í hand-
vegi. Saumið ermarnar í og saurnið klauf-
ina við affelldu lykkjurnar á bolnum.
Festið tölurnar á. Saumið þvottamerki
innan íjakkann.
Þvottur á Mandarin Petit
Snúið röngunni út.
Þvoið flíkina eina í
fyrstu skiptin.
Leggið flíkina
strax til þerris í ÞvOttaefnÍ
rett mál, fjam sólar-
ljósi og eKki á ofn.
Spennandi
uppskrift
í næstu Viku
Fallegar gardínur
úr bomullargarni
Notið
—