Vikan


Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 33

Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 33
Danskt pastasalat Margrét Jóhannsdóttir frá Akranesi sendi okkur að þessu sinni spennandi uppskrift að pastasalati sem hún smakkaði fyr- ir nokkrum árum í Dan- mörku. Mar- grét skrifaði hjá sér inni- haldslýsing- arnar sem voru á umbúðunum á salatinu og svo byrjaði tilrauna- starfsemin þegar heim var kom- ið. I dag er þetta eitt af því vin- sælasta hjá henni, bæði fyrir barnaafmæli, útileguna eða saumaklúbbinn. Margrét sendi okkur tvær uppskriftir og þar sem þær voru báðar mjög spennandi ákváðum við að birta þær báðar. Vikan þakkar fyrir uppskriftirnar og sendir glaðn- ing um hæl. Danskt pastasalat 3-4 bollar soðnar pastaslaufur eða -skrúfur 1/2 agúrka, kjarnhreinsuð og söxuð 8-10 skinkusneiðar, saxaðar 1/2 rauð paprika, söxuð 1 1/2-2 msk. steinselja, söx- uð 8 msk. majónes eða 4 msk. majónes og 4 msk. sýrður rjómi grófur pipar arómat Blandið pastanu, agúrk- unni, skinkunni, paprikunni og steinseljunni saman í skál. Hrærið saman majónesið og sýrða rjómann (ef vill) og kryddið. Blandið síðan öllu vel saman og geymið á köld- um stað fram að notkun. Borið fram með brauði, kexi eða sem smáréttur með grófu salati og kældum bjór. Öðruvísi forréttur 450 g niðursoðnar ferskjur, 120 g skinka 2 msk. majónes 2 msk. sýrður rjómi 2 msk. steinselja, söxuð salt og pipar salatblöð steinseljugreinar, til skrauts Látið renna vel af ferskjun- um. Saxið skinkuna og blandið henni saman við majónesið og sýrða rjómann. Kryddið með steinselju, salti og pipar. Raðið salatblöðun- urn á disk og setjið ferskju- helmingana ofan á. Skiptið skinkufyllingunni jafnt ofan í hvern ferskjuhelming og skreytið með steinselju.. ■ V.'- Holl husráð: Fjarlægið móðu af spegli eftir heitt sturtu- bað með því að blása með hárblásara á speg- ilinn... Hárlakk er gott til að fjarlægja blekbletti á veggfóðri. Sprautaðu örlitlu hárlakki á fingur og nuddaðu yfir blek- blettinn... Hefurðu ekki oft lent í því að innkaupa- pokinn í aftursætinu hendist til þegar þú hemlar og vörurnar hendast um allt? Festu pokann með bflbelti... Ef þú þarft að pakka inn stórum hlut er ágætt að pakka honum inn í pappírsdúk... Framlengingar- snúrur er oft erfitt að geyma í hillum. Gott ráð til að láta sem minnst fyrir þeim fara er að rúlla þeim upp og stinga ofan í klósett- pappírshulstur... Flestir þeir sem eiga þurrkara þekkja það eflaust hversu fötin krumpast, taki maður þau ekki úr þurrkaran- um strax og þau eru til- búin. Ef þið lendið í þessu, hendið þá röku handklæði inn í þurr- karann og setjið í gang í stutta stund. Þannig renna krumpurnar úr fötunum... Vaxliti á veggjum er hægt að fjarlægja með því að nudda tann- kremi á blettina. Gætið þess þó að nudda var- lega svo málningin flagni ekki af! Þegar sápa er orðin of lítil til að verða að gagni, er ágætt ráð að stinga sápubútnum inn í svamp. Svampurinn fyllist sápufroðu um leið og hann blotnar... 33 jém
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.